Morgunblaðið - 15.05.2009, Page 52
B
A
-1
5-
05
-2
00
9-
1-
1-
F
E
R
D
-3
8-
ha
rp
a-
C
M
Y
K
52| ferðasumar 2009 Morgunblaðið
Kirkja - gisting - veislusalur - veitingar - tjaldstæði - sundlaug - golfvöllur - bensínstöð - hestaleiga
Kirkjuferð fyrir hópa eldriborgara
Veitingar og léttara hjal í veitingastaðnum
Réttinni á eftir.
Nánari upplýsingar og tilboð í síma
6995500 eða uthlid@uthlid.is
Komið og skoðið Úthlíðarkirkju í Biskupstungum og
njótið leiðsagnar Björns Sigurðssonar kirkjubónda.
Nánari upplýsinga á www.uthlid.is - 6995500 - uthlid@uthlid.is
Margir kannast við að um leið og
keyrt er úr bænum þá líður
spennan úr líkamanum. Stund-
um er hins vegar ekki nóg að
keyra í burtu frá annríki hvers-
dagsins til að slaka á og þá er
gott að láta þreytuna líða úr sér í
þægilegum potti eða gufubaði.
„Við leggjum áherslu á að fólk
gleymi sér hjá okkur. Þess vegna
höfum við ekki klukkur hér uppi á
vegg,“ segir Sigyn Sigvarðar-
dóttir, einn af rekstraraðilum
Riverside Spa á Hótel Selfossi.
„Hér er því ákveðið tímaleysi og
fólk kann að meta það þegar
það slakar á.“
Gott fyrir kvefið
Á Riverside Spa er boðið upp á
alla almenna snyrtingu og þar á
meðal ýmislegt sem hefur ekki
fengist á Suðurlandi áður að
sögn Sigynar. „Hér er til dæmis
hægt að koma í eyrnakerti sem
hentar mjög vel ef fólk er með
mikinn þrýsting í höfðinu, kvef og
þess háttar. Meðferðin er komin
frá indíánum en þetta er lítill
hólkur sem við leggjum upp að
eyranu. Svo er kveikt á hólknum
og þá myndast sog sem hreinsar
gangana í eyrunum. Þetta er
mjög róandi og á meðan viðkom-
andi er með kveikt á hólknum þá
fær hann höfuðnudd. Það eru
ákveðnir punktar í höfðinu sem
eru nuddaðir til að hjálpa til við
að losa stíflur.“
Ískalt klakabað
Heilsulindin er ekki síður vinsæl
og Sigyn talar um að aðsóknin
hafi verið mikil. „Hugsunin á
bak við spa er kulda- og hita-
meðferðir en þannig örvast húð-
in og blóðrásin. Að fara úr hita
og í kulda er til dæmis það
besta sem maður gerir við bjúg.
Í hitanum erum við með sauna-
klefa, blautgufu og heitan pott
með arineldi . Í kuldaeining-
unum erum við með sturtu þar
sem fólk fær yfir sig kalda gusu,
sturtu sem lítur út eins og foss
og sturta sem er eins og rigning.
Við erum líka með nokkurs kon-
ar klakabað sem er eins og
krapís sem kemur út úr veggn-
um og er ofsalega vinsælt,
bæði til að skrúbba sig með og
til að kæla drykki.“
Afslöppun Á Riverside Spa er auðvelt að slappa af og hafa það gott.
Góð örvun fyrir
húð og blóðrás
www.selfosshotel.is/Islenska/
Heilsulindin/
Mitt á milli Gullfoss og Geysis
er búið að opna svefnskála
sem er rekinn eins og fjalla-
skáli. Vilborg Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Gljásteins
sem rekur húsið, segist búast
við að skálinn verði mjög vin-
sæll. „Þessa þjónustu hefur
vantað hér en í skálanum eru
kojur fyrir 32 manns. Skálinn
er alls 285 fermetrar og hér
eru átta herbergi og fjögur
rúm í hverju herbergi. Her-
bergin eru mjög rúmgóð og
stór og það eru því engin
þrengsli. Svo er hér 100 fer-
metra salur með mjög góðri
eldunaraðstöðu, tvær elda-
vélar og tveir vaskar. Það er
líka tilvalið fyrir hópa að taka
skálann á leigu.“
Við skálann er líka aðstaða
fyrir hesta, girðing og hesthús,
en Vilborg segir að lengi hafi
skort þá þjónustu fyrir hesta-
fólk á svæðinu. „Ég býst við
að það verði mjög vinsælt og
ég vona að það verði nýtt. Svo
erum við með sturtur og kló-
sett í skálanum og aðstaðan
öll er því mjög góð,“ segir Vil-
borg en skálinn var opnaður
18. apríl. „Viðtökurnar hafa
verið mjög jákvæðar og fólk af
götunni er farið að tínast inn.“
Rúmgóður skáli
Skálinn Myrkholti Það geta 32
manns sofið í skálanum að Myrkholti
sem er 285 fermetrar að stærð.
Skálinn Myrkholti
www.gljasteinn.is