Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 53
B
A
-1
5-
05
-2
00
9-
1-
1-
F
E
R
D
-3
9-
ha
rp
a-
C
M
Y
K
Það getur verið ansi skemmti-
legt að eyða eftirmiðdeginum í
kajakferð og kannski er helsta
spennan fólgin í því að sjá
hvort einhver fari í vatnið. Á
Stokkseyri er fyrirtækið Kajak-
ferðir með aðstöðu og Reynir
Már Sigurvinsson, fram-
kvæmdastjóri Kajakferða, seg-
ir að öll fjölskyldan geti haft
gaman af kajak. „Það geta allir
farið á kajak hjá okkur. Við er-
um eingöngu með örugga báta
og það er engin hætta á ferð.
Vissulega gerist það að ein-
hverjir detti í vatnið en fólk er
laust í bátunum og dettur þá
bara úr þeim. Svo eru vitanlega
allir í björgunarvesti.“
Líka fyrir börn
Reynir talar um að það sé mis-
jafnt hverju fólk sækist eftir
þegar það fer í kajakferð. „Það
fer eiginlega bara eftir ein-
staklingum og hópum. Ef það
eru hópar sem koma hingað þá
er það oftast hópefli og mikið
fjör og stuð. Við fáum líka tals-
vert af fjölskyldufólki hingað
sem er bara að njóta stundar-
innar saman,“ segir Reynir og
bætir við að börn geti alveg far-
ið á kajak ein. „Við erum líka
með tveggja manna báta en ef
veðrið er gott geta börn allt nið-
ur í sjö ára aldur farið ein á kaj-
ak. Aftur á móti getur verið erf-
itt að stýra kajak ef veðrið er
slæmt. Svo er vatnið það
grunnt að maður nær í botninn
alls staðar.“
Meira fuglalíf
Ein vinsælasta ferð kajakferða
er ferð sem ber nafnið Chal-
lenge en það er um klukkutíma
sigling á vatninu, að sögn
Reynis. „Ég held hún sé vin-
sælust því þetta er ferð með
leiðsögumanni sem er heldur
ekki of löng. Reyndar getum við
farið í allt að tveggja tíma ferðir
á vatninu enda stórt vatn. Í
„challenge“ ferðinni förum við
ákveðna leið og allir fara sam-
an í hóp. Ef þetta eru stórir
hópar þá erum við með fleiri en
einn leiðsögumann, einn aft-
ast, annan fremst og jafnvel
einn í miðjunni líka. Þannig get-
um við tekið allt að fimmtíu
manna hópa. Erlendu ferða-
mennirnir eru hrifnastir af sjó-
ferðunum en þá förum við á
kajak út á sjó. Það er meira líf í
kringum það því þar er meira
fuglalíf og selirnir láta líka sjá
sig. Það hefur komið fyrir að við
höfum verið með 10-15 seli í
kringum okkur sem er alveg frá-
bært því þeir koma alveg við
bátana.
Umkringd selum úti á sjó
Á Kajak Ef veður er gott geta allir farið á kajak enda fjölskyldu-
skemmtun fyrir börn og fullorðna sem allir hafa gaman af.
Kajakferðir
www.kajak.is
ferðasumar 2009 Morgunblaðið | 53
Sveitadvöl fyrir fjölskyldur og vinahópa í Hestheimum
– aðeins 50 mínútur frá Reykjavík
Notaleg gisting í 2-3 manna herbergjum með
sérbaði, heitur pottur og hægt að panta nudd.
Fallegt umhverfi og heimilislegt andrúmsloft.
Einstakt tækifæri til að fá innsýn í daglegt líf í svei-
tinni, njóta samvistanna við náttúruna og dýrin.
Tilboðsverð á gistingu með fullu fæði. Daglega er
boðið uppá hestaleiguferðir. Frábærar göngu- og
reiðleiðir eru í nágrenni Hestheima. Getum sótt
hópa til Reykjavíkur gegn vægu gjaldi.
Nánar upplýsingar veittar í síma: 487-6666 og hestheimar@hestheimar.is www.hestheimar.is