Morgunblaðið - 20.06.2009, Side 20

Morgunblaðið - 20.06.2009, Side 20
20 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2009 Þetta helst ... ● Velta á skuldabréfamarkaði í Kaup- höllinni nam 18,7 milljörðum króna í gær. Til samanburðar var meðalveltan síðustu vikuna í maí 8,8 milljarðar króna, samkvæmt gögnum frá Kaup- höllinni. Rólegt var á hlutabréfamarkaði og millibankamarkaði með krónu, en veltan var nærri eitt hundrað millj- ónum króna, samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka. helgivifill@mbl.is 19 milljarða velta ● Póst- og fjar- skiptastofnun (PFS) ætlar að út- hluta Nova tíðni- leyfi á gsm 1800 MHz-tíðnisviðinu með tilteknum skilyrðum, án sér- staks útboðs. Þetta kemur fram í nýrri samantekt stofnunarinnar. Þar kemur fram að bæði Síminn og Tal hafi lagst gegn áformum PFS. „Nova hefur byggt upp eigið 3G- farsímakerfi og því er ekki um nýtt gsm-kerfi að ræða heldur eru þessar tíðnir settar sem viðbót inn í núver- andi kerfi Nova,“ segir Liv Bergþórs- dóttir, framkvæmdastjóri Nova. thorbjorn@mbl.is PFS úthlutar Nova GSM-leyfi án útboðs Liv Bergþórsdóttir ● Bráðabirgðastjórn Spron sótti í gær um slitameðferð til Héraðsdóms Reykjavíkur. Það var einnig gert fyrir dótturfyrirtæki Spron, Frjálsa Fjárfest- ingabankann. Þetta kemur fram í fréttatilkynningum. Bráðabirgðastjórn Spron segir ljóst, að félagið uppfylli ekki lengur skilyrði laga fyrir áframhaldandi rekstri sem fjármálafyrirtæki. Fjármálaeftirlitið ákvað 21. mars að taka yfir vald hluthafafundar og víkja félagsstjórn Spron frá í heild sinni. Jafnframt var skipuð skilanefnd (nú bráðabirgðastjórn) fyrir Spron sem tók við öllum heimildum stjórnar. helgivifill@mbl.is Spron og Frjálsi óska eftir slitameðferð einstaki eigandi Fasteignar með 38,42 prósent hlutafjár. Aðrir eig- endur voru ellefu sveitarfélög, meðal annars Reykjanesbær. Heildarupphæð lánsins var um 1,2 milljarðar króna og hlutur Reykja- víkur 100 milljónir króna. Lánið var veitt til að fjármagna fasteigna- framkvæmdir í Reykjanesbæ með veði í Hljómahöllinni svokölluðu, sem margir þekkja sem Stapann. Víxillinn var á gjalddaga 22. maí og ljóst var að Fasteign gat ekki staðið við greiðslu á honum. Því var óskað eftir því að lengt yrði í honum í átján mánuði. Fjármálastjóri Reykjavíkur hafn- aði upphaflega þessu tilboði, enda er borginni óheimilt að taka þátt í áhættufjárfestingum. Á endanum var málið þó metið á þann veg að best þótti að ganga að tilboði Fast- eignar. Mikið var undir fyrir félagið að fá skuldbreytinguna samþykkta því endurskoðendur Fasteignar höfðu bent á víxilinn sem óvissuþátt í uppgjöri félagsins. Þau málalok voru síðan lögð fyrir borgarstjórn síðast- liðinn þriðjudag og voru samþykkt með átta atkvæðum meirihlutans. Áttu að vita um eignasafnið Ágreiningur var á milli fjárstýr- ingar Reykjavíkur og Glitnis um hvort heimilt hefði verið að kaupa víxla. Glitnir gerði ekki greinarmun á víxlum og skuldabréfum í þessu sambandi en því voru starfsmenn borgarinnar ósammála. Því var innri endurskoðandi fenginn til að vinna greinargerð um málið. Hann kemst að því að „Fjárstýringardeild mátti vera það ljóst hvernig eignarsafni borgarinnar hjá bankanum var fyr- irkomið.“ Hann telur einnig að rétt viðbrögð fjármálastjóra borgarinnar þegar ágreiningurinn kom upp hefðu átt að vera að „upplýsa borgarstjóra og borgarráð um áframhaldandi eignarhald á víxlunum. Þá er rétt að benda á að betur hefði farið á því að öll gögn málsins hefði legið fyrir á fundi borgarráðs þegar taka þurfti afstöðu til tilboðs EFF [innsk. blaðam. Fasteign] um endur- fjármögnun víxils.“ Sérstök áhættu- matsúttekt á verklagi fjárstýring- ardeildar borgarinnar verður gerð í kjölfar þessa máls. Reykjavíkurborg keypti víxil af Fasteign með veði í Stapa Glitnir lagði fé borgarinnar í Sjóð 9 og víxla Fasteignar, Icelandair og Byrs Reykjanesbær Reykjavíkurborg á veð í fasteignaframkvæmdum í bænum. FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is REYKJAVÍKURBORG átti fjár- muni í Sjóði 9, víxla útgefna af Ice- landair og Byr og var meðal eigenda að víxilláni til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar með veði í Hljómahöll- inni í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í greinargerð innri endurskoð- anda borgarinnar sem lögð var fyrir borgarráð á fimmtudag og Morg- unblaðið hefur undir höndum. Borgin flutti tvo milljarða króna í eignastýringu hjá Glitni í janúar 2008. Fjármunina átti að leggja í skuldabréf og innlán. Í greinargerð- inni segir orðrétt að „samkomulagið gerði ráð fyrir að fjárfest yrði í gegn- um sjóð Glitnis (þ.e. Sjóð 9) með dreifðri áhættu.“ Rúmlega 60 pró- sent af eignum Sjóðs 9 á þessum tíma voru skuldabréf útgefin af áhættusæknustu fyrirtækjum lands- ins á borð við FL Group, Baug, Ex- istu, Milestone, Glitni og Kaupþing. Öll þessi fyrirtæki eru í dag í þroti, greiðslustöðvun eða í miklum erf- iðleikum. Glitnir lagði um 1,2 millj- arða af fé borgarinnar í sjóðinn en seldi sig út úr honum 3. október, þremur dögum fyrir neyðarlaga- setningu. Borgin hafði þá tapað 87,5 milljónum króna á fjárfestingunni. Með veð í Stapanum Eignastýring Glitnis notaði rest- ina af fjármunum borgarinnar sem henni voru látnir í té til að kaupa m.a. annars víxla útgefna af Ice- landair, Byr og Fasteign. Fasteignar-víxillinn var hluti af stóru víxilláni margra aðila (Glitnir var langstærsti eigandi hans) til fé- lagsins. Glitnir var einnig stærsti Innri endurskoðun Reykjavíkur skilaði greinargerð þar sem kem- ur fram að fé borgarinnar var not- að í áhættusamar fjárfestingar. Borgin á veð í Hljómahöllinni, sem best er þekkt sem Stapinn. Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is HEIMILDIR Morgunblaðsins herma að líklega verði óskað eftir gjaldþrotaskiptum Northern Travel Holding (NTH) á næstu dögum, en NTH keypti meðal annars danska flugfélagið Sterling af FL Group á 20 milljarða króna í lok árs 2006. Einu eignirnar sem eftir eru inni í NTH eru Sterling og annað dansk félag, Flyselskapet, sem bæði eru gjaldþrota. Allar aðrar eignir höfðu verið seldar til Fons, eignarhaldsfélags í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, og því eru ekkert nema skuldir eftir í NTH. Express fært á milli Fons hefur þegar verið tekið til gjaldþrota- skipta. Áður en það gerðist voru breska flugfélag- ið Astraeus, sem leigir út flugvélar, og Iceland Ex- press seld frá Fons til eignarhaldsfélagsins Fengs á lágmarksverði. Eigandi Fengs er Pálmi Har- aldsson. Færslan á Iceland Express milli félaga er til skoðunar hjá skiptastjóra þrotabús Fons. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður óskað eftir því að sami skiptastjóri verði settur yf- ir NTH og sér um skiptingu á búi Fons. Þannig væri hægt að öðlast heildarsýn á þau félög sem heyra undir NTH líka. Fons greiddi sér 4,4 milljarða króna í hagnað vegna árangurs á árinu 2007. Arðgreiðslunar fóru til félags í Lúxemborg í eigu Pálma og Jóhann- esar. Rúmu ári síðar var Fons tekið til gjaldþrota- skipta. Helstu lánardrottnar Fons eru stóru ís- lensku bankarnir þrír. NTH á leiðinni í þrot  Keypti Sterling á 20 milljarða í árslok 2006  Ekk- ert eftir í félaginu nema gjaldþrota félög og skuldir Scanpix Sterling Viðskipti FL Group með félagið eru nú til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeildinni. :;< , :;< -    :;<  . =<     >? @  A ( B      /. >C<      :;< /$ :;< 050      ● Landsbankinn hefur gert samninga við alþjóðlega banka um greiðslu- miðlun í erlendri mynt en frá því í haust hefur erlend greiðslumiðlun aðallega verið hjá Seðlabankanum. Landsbank- inn hefur samið við Citibank um opnun reikninga í öllum helstu viðskiptamynt- um, Bandaríkjadal, evru, pundi, sviss- neskum franka og japönsku jeni. Bankinn hefur jafnframt opnað reikning í kanadískum dollurum hjá Royal Bank of Canada, sænskum krónum hjá SEB í Svíþjóð, dönskum krónum hjá Jyske Bank í Danmörku og norskum krónum hjá DnB Nor í Noregi. thorbjorn@mbl.is Landsbankinn semur um greiðslumiðlun Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur kært stjórn Lífeyrissjóðs starfs- manna Kópavogsbæjar (LSK) til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra vegna gruns um blekkingar og hugsanleg hegningarlagabrot. Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, staðfesti þetta í sam- tali við Morgunblaðið. „Þeir fengu frest til þess að bæta úr lántökum sveitarfélagsins hjá sjóðnum þannig að þær rúmuðust innan heimilda. Þeir veittu síðan upplýsingar um að það hefði verið gert en það reyndist ekki vera rétt,“ segir Helgi Magnús. Stjórn lífeyris- sjóðsins sendi í gær út yfirlýsingu þar sem hún lýsir furðu sinni á „hörðum aðgerðum“ Fjármálaeftir- litsins (FME) og fjármálaráðuneyt- isins gegn stjórn sjóðsins en í gær var stjórn sjóðsins og framkvæmda- stjóra vikið tímabundið frá. Elín Jónsdóttir, lögfræðingur, var skipuð umsjónarmaður með rekstri sjóðsins til tveggja mánaða vegna gruns um að ákvarðanir um fjárfestingar hafi ekki verið í samræmi við lög. Áður en tekin var ákvörðun um að skipa umsjónarmann hafði ítrekuðum kröfum FME um úrbætur ekki verið sinnt. Málið snýst m.a. um kaup líf- eyrissjóðsins á skuldabréfi sem Kópavogsbær gaf út. Með því gat bærinn fjármagnað sig að hluta gegnum lífeyrissjóðinn en í stjórn hans sitja m.a. kjörnir fulltrúar bæj- arins og Gunnar I. Birgisson, bæj- arstjóri, er formaður stjórnar sjóðs- ins. Í tilkynningu frá stjórninni segir að skuldabréfið, sem er verðtryggt, hafi verið undir lögbundnu 10% há- marki af heildareignum sjóðsins við útgáfu þess. Vegna verðbólgu, áfall- inna vaxta auk eignarýrnunar hafi uppreiknað verð þess farið yfir 10% hámark í 10,57% af heildareignum. Þar segir jafnframt að á fundi, sem LSK boðaði til með fulltrúum FME 19. maí sl., hafi verið samið um að LSK hefði frest til 31. júlí nk. til að gera úrbætur. Helgi Magnús segir að svo virðist sem um ákveðna einföldun sé að ræða. „Kæran snýr að því að þeir hafi lánað bænum með ólögmætum hætti,“ segir Helgi. Hann nefnir svo- kölluð „peningamarkaðslán“ og aðr- ar beinar lánveitingar. Stjórn lífeyrissjóðs kærð til lögreglu  Fjármálaeftirlitið kærir stjórn LSK vegna blekkinga og hugsanlegra hegningarlagabrota  Stjórn sjóðsins harmar aðgerðir FME og fjármálaráðuneytis en stjórn var vikið frá tímabundið í gær Helgi Magnússon Gunnar I. Birgisson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.