Morgunblaðið - 20.06.2009, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 20.06.2009, Qupperneq 27
Skoðaðu þína köku í Einkabankanum EINKABANKINN | SJÁLFVIRKT HEIMILISBÓKHALD Heimilisbókhaldið er í Einkabankanum þér að kostnaðarlausu. Kynntu þér málið á landsbankinn.is. • Fyrsta sjálfvirka heimilisbókhaldið • Enginn innsláttur í Excel og engir útreikningar • Þú velur hvaða reikningar og kort mynda kökuritið • Færslurnar eru flokkaðar fyrir þig • Hægt er að endurnefna og endurflokka færslur E N N E M M / S ÍA / N M 3 8 3 0 0 N B I h f. (L a n d s b a n k in n ), k t. 4 7 10 0 8 -2 0 8 0 . Guðmundur Andri Thorsson rit-höfundur hefur þann sið að tilnefna vísu dagsins á Fésbókinni. Nýverið varð honum svo að orði: „Vísa dagsins er eftir langafa minn í föðurætt, Vilhjálm Guð- mundsson sem bjó lengst af á Húsavík og var kenndur þar við Hliðskjálf. Um hann er skrifað töluvert í bók föður míns Raddir í garðinum og einnig kemur hann nokkuð við sögu í bók Stefáns Jónssonar Að breyta fjalli. Hefur smáa vinsemd veitt vorið þránum manna, gefur stráin eitt og eitt undan gljánum fanna.“ Ingólfur Ómar Ármannsson orti á fallegum sumardegi í vikunni: Suðar læna silfurtær syngur fugl á meiði hjalar í laufi ljúfur blær ljómar sól í heiði. Einar Steinn Valgarðsson yrkir á öðrum nótum um pólitíkina: IceSave-skuldum íslenskir óvíst valda. Búast má við byltingu búsáhalda. Og hann bætir við: Hvort mun þjóð á Fróni frjáls, í frera hrærist vagga. Kornabarni hýru um háls hengjum skuldabagga. VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Af stráum og pólitík Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „VIÐ lítum á Höfn sem humarhöf- uðborg norðursins og okkur fannst vanta sérhæfðan humarveitinga- stað,“ segir María Gísladóttir, einn af eigendum Humarhafnarinnar á Höfn í Hornafirði. Veitingastaðurinn var opnaður á Humarhátíð 2007 og varð strax fastur viðkomustaður gesta Hornafjarðar. Eins og heiti staðarins gefur til kynna er gert út á humar. Hráefnið kemur af hornfirskum bátum. Hum- arhalarnir af Sigurði Ólafssyni SF og ekki þykir gestunum slæmt að geta fylgst með humarlöndun út um glugga veitingastaðarins. Heili hum- arinn er keyptur af Skinney- Þinganesi. Lögð er áhersla á fáa rétti; heilan humar, humarhala, hum- arsúpu og svo humarpizzu fyrir börn- in. Einnig er boðið upp á eldisbleikju frá Hala í Suðursveit og örfáa aðra rétti. Leiðbeiningar fylgja Anna Þorsteinsdóttir segir að Hornfirðingar hafi strax tekið starf- seminni vel. „Við bjuggumst ekki við því að heimamenn færu mikið út að borða humar en þeir eru duglegir að koma og margir koma með gesti sína hingað,“ segir Anna. Erlendir gestir eru þó í meirihluta. Eigendur staðarins fengu fransk- an meistarakokk til að fylgja sér af stað og þróa rétti úr hornfirska humrinum og á þeim grunni er ennþá byggt. Auk þess að kenna þeim að matreiða og bera fram heilan humar skildi hann eftir uppskrift af „alvöru“ humarsúpu. „Við notum rauðar ís- lenskar kartöflur til að þykkja súp- una. Það hefur fengið misjafnar und- irtektir íslenskra gesta sem eru vanir öðruvísi humarsúpu en erlendu ferðamennirnir kunna vel að meta hana,“ segir María. Gestir fá leiðbeiningar um það hvernig best sé að bera sig að við að borða heilan humar. Þær eru ekki síst hugsaðar fyrir íslensku gestina. Fólk byrjar á því að lesa leiðbeining- arnar og smakka pent en svo er svuntan sett upp og hendurnar not- aðar af krafti þannig að það verður að sérstakri upplifun að borða og getur tekið langan tíma. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Humarhöfnin María Gísladóttir og Anna Þorsteinsdóttir kenna Hornfirð- ingum og gestum þeirra að borða heilan humar. Veitingastaður þeirra er í virðulegu gömlu verslunarhúsi kaupfélagsins sem þær keyptu og löguðu. Upplifun að borða heilan humar FERÐAFÉLAG Íslands heldur stofnfund Ferðafélags barnanna mánudaginn 22. júní við Esjurætur, við göngustíginn á Þverfellshorn. Með stofnun félagsins vill Ferða- félag Íslands leggja lóð sitt á vog- arskálarnar til að hlúa að heilbrigði og virkni allra barna og fjölskyldna. Eitt aðalmarkmið Ferðafélags barnanna verður að fá öll börn til að upplifa sanna gleði í náttúrunni og upplifa sjálf leyndardóma umhverf- isins. Ferðir verða sniðnar að þörf- um barna upp í tólf ára aldur, segir m.a. í fréttatilkynningu. Öll börn munu geta gerst með- limir og þau fá skírteini sem gildir sem aðgangskort á ýmsa viðburði. Árgjaldi verður stillt í hóf. Ganga Ferðir verða sniðnar að þörfum barna að tólf ára aldri. Börn upplifi leyndardóma náttúrunnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.