Morgunblaðið - 26.06.2009, Side 7
og ASÍ, sem ákváðu að samtök
þeirra semdu sín á milli og ríkis-
stjórninni yrði boðið til samninga um
stöðugleikasáttmála á þeim grund-
velli sem þeir höfðu komið sér saman
um.
Stjórnaði af mikilli festu
Það var undir kvöld í fyrradag
sem forsætisráðherra kallaði alla að-
ila á sinn fund í stjórnarráðinu, en þá
höfðu opinberir starfsmenn ákveðið
að snúa aftur að borðinu.
Á þessum fundi segja viðmælend-
ur, að Jóhanna hafi sýnt slíka
ákveðni og festu, að ákveðna hrifn-
ingu hafi vakið. Hún hafi ekki ætlað
að sleppa mönnum, fyrr en niður-
staða væri fengin, m.a. í ágreiningi
um fjárframlög til Starfsendurhæf-
ingarsjóðs. Þeir telja að ráðherra
hafi staðist prófið með glans.
Opinberir starfsmenn voru, þegar
þetta var, búnir að átta sig á því, að
SA og ASÍ myndu semja sín á milli
hvort sem þeir væru með eða ekki.
Þeir sáu einnig, að það væri ekki
vænlegur kostur fyrir þá, BSRB, KÍ
og BHM, að sitja einir eftir.
Þeir söðluðu því snimmendis um
og forsætisráðherra sendi viðsemj-
endur sína eftir það til síns heima og
fulltrúar SA og ASÍ fóru á ný í Karp-
húsið, þar sem tekið var til við
lokafrágang á texta stöðugleikasátt-
málans. Það starf stóð fram á nótt.
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009
SA setja sérstakan fyrirvara í stöð-
ugleikasáttmálann vegna sjávar-
útvegsins. „Samtök atvinnulífsins
viðhalda þeim fyrirvara gagnvart
framlengingu kjarasamninga að
vinna á vegum ríkisstjórnarinnar
um endurskoðun fiskveiðistjórnunar
verði í þeim sáttafarvegi sem lagt
var upp með við skipan nefndar til
þess að vinna að því máli,“ segir þar.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, sagði í gær, að
samtökin vænti þess að ráðist verði í
þessa vinnu nefndarinnar, án þess
að niðurstaðan sé gefin fyrirfram,
„og reyni eins og þeir geta að ná sátt
um þetta mál. Við gerum okkur al-
veg grein fyrir því að það eru skiptar
skoðanir á því. Þetta er mjög mikið
hagsmunamál, ekki bara fyrir sjáv-
arútveginn, heldur líka fyrir allt at-
vinnulífið og alla sem koma að sjáv-
arútvegi með beinum eða óbeinum
hætti,“ sagði hann. Vilhjálmur bætti
við að menn væru reiðubúnir að
koma að þessu sáttastarfi og vonuðu
að niðurstaðan yrði farsæl.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði að engin breyting
væri ákveðin varðandi sjávarútvegs-
málin. „Þegar þessi ríkisstjórn tók
við ákváðu aðilar að setjast við borð
og reyna að ná sameiginlegri nið-
urstöðu í þessu máli, eins og hægt
væri og vita hvort það væru sameig-
inlegir fletir í þessu. Ríkisstjórnin
hefur í engu fallið frá þeim áformum
sem hún er með í sínum stjórn-
arsáttmála. Menn eru að setjast að
þessu borði í þeim tilgangi að reyna
að ná sátt. Það er áréttað hérna af
hálfu Samtaka atvinnulífsins þannig
að þar er engin breyting á.“
omfr@mbl.is
Fyrirvari SA vegna sjávarútvegsins
Ríkisstjórnin í engu fallið frá áformum
í stjórnarsáttmála, segir Jóhanna
GREIÐA á götu
ákveðinna stór-
framkvæmda,
s.s. álvers í
Helguvík og
Straumsvík.
Kappkostað
verður að engar
hindranir skulu
verði af hálfu
stjórnvalda
vegna þess eftir 1. nóvember
2009, að því er segir í sáttmál-
anum.
„Við leggjum áherslu á að við-
ræðum við lífeyrissjóðina um að
koma að fjármögnun fram-
kvæmda verði hraðað sem mest,“
segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ. Að sögn Gylfa eru á teikni-
borðinu framkvæmdir að virði 3,7
milljarða sem væri hægt að setja
í gang með skömmum fyrirvara.
Gylfi nefnir Vaðlaheiðargöng og
samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni
sem dæmi. Upphæðin vegur nær
jafnt á móti niðurskurði í vega-
framkvæmdum.
Greiða götu
framkvæmda
Gylfi Arnbjörnsson
Í ÁLYKTUN frá
BHM kom fram
að sérstaklega
þurfi að huga að
nýliðun háskóla-
menntaðra á
vinnumarkaði
þannig að þekk-
ing þeirra fari
ekki forgörðum.
Þá þurfi að gæta þess að raska
ekki því kynjajafnrétti sem áunn-
ist hefur. Undir þetta tók formað-
ur KÍ og sagði ekki verið að
leggja áherslu á karlastörf á
kostnað kvennastarfa.
Ekki bara fyrir karla
á kostnað kvenna