Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 18
18 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009 FÖSTUDAGSFIÐRILDI Skapandi sum- arhópa Hins hússins munu flögra víðsvegar um miðborg Reykjavíkur í dag milli kl. 12 og 14. Takk&Takk munu kenna gangandi vegfarendum að brosa, Brass-skarar verða í brass- stuði, byrja í Hljómskálanum og enda í miðbænum og ramadansfjelagið verður við ráðhúsið. Á Austurvelli verða Götusögur að nýta samspil orða og aðstæðna til að skemmta gangandi vegfarendum þegar þeir eiga síst von á, Agent Fresco endurútsetur lög sín við Hitt húsið, Götuleikhúsið umbreytir bæn- um með lifandi skúlptúrum á Lækj- artorgi og Austurvelli, Gúmmískáldin standa uppi á svölum Bankastrætis 11 og leika hlutverk erjandi nágranna og Reginfilla spilar frumsamda tón- list í portinu hjá Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda. Líflegur miðbær Skíðaiðkendur og snjóbrettakappar þurfa ekki að örvænta þó sum-arið sé komið því tækifærið til að renna sér niður snævi þaktarbrekkur landsins er enn til staðar. Þó flestar vinsælustu skíða-brekkurnar séu orðnar fullgrænar fyrir marga er enn hægt að skella sér í Kerlingarfjöllin þar sem fjöldi fólks renndi sér síðustu helgi og lét vel af. Að sögn Páls Gíslasonar, framkvæmdastjóra Fannborgar sem á aðstöð- una í Kerlingarfjöllum, er færið mjög gott. „Á þessum tíma árs er alltaf mjög gott færi en það er óvenjuþykkur snjór í ár fyrir ofan 750-800 metr- ana. Það hefur verið kalt undanfarið og ekki farið að taka upp snjó sem heitir getur,“ segir hann. Búið er að hefla veginn frá afleggjaranum og er svæðið einnig kjörið fyrir göngufólk. Engar lyftur eru í Kerlingarfjöllum og þarf fólk því að ganga nema það eigi sleða og geti keyrt upp. „Það er mjög gott færi fyrir þá sem vilja taka með sér sleða,“ segir Páll. Fólk getur ýmist gist í húsum sem rúma 3-16 manns eða á tjaldsvæðinu en þar er í gangi sérstakt tilboð sem ætlað er að höfða til íslensks fjölskyldufólks vilji það ferðast erlendis. Börn yngri en 12 ára búa frítt á tjaldstæðinu en börn 12-14 ára fá helmingsafslátt. Páll segir fólk skíða á hvaða tímum sólarhringsins sem er. „Fólk er að koma og njóta þess að fara í skíði seint á köldin, njóta kvöldsólarinnar. Það má benda á að um helgina er frábær spá fyrir svæðið, sól og blíða,“ segir Páll að lokum. Vert er að benda á að SBA Norðurleið keyrir hjá Kerlingarfjöllum daglega. Lagt er af stað kl. 8 frá BSÍ og er stoppað við afleggjarann að fjöllunum kl. 12:20. Ferðin kostar 4.600 kr. aðra leiðina. Nánari upplýsingar um aðstöðuna í Kerlingarfjöllum er að finna á síðunni www.kerlingarfjoll.is Mikill snjór í Kerlingarfjöllum Ljósmynd/Guðmundur Jakobsson Svig Það er gott bretta- og skíða- færi í Kerlingar- fjöllum. Gott færi er í hlíðunum og er spáð góðu veðri á svæðinu um helgina ÞAÐ er greinilega nóg um að vera hjá Hemma og Valda því í kvöld verða þar haldnir tónleikar sem Reykjavík Grapevine stendur fyrir. Kvenkynið mun ráða ríkjum að þessu sinni en fram koma hinar hæfileikaríku Lydía Grétarsdóttir, Adda, Elín Ey og Pascal Pinon. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og lýkur þeim kl. 23. Kvennafans á Nýlendunni Í dag&kvöld Flott Naglalakk LITAGLEÐI er lykilorðið í förðun í sumar og þar eru naglalökk ekki und- anskilin. Vinsælustu litirnir eru ferskjulitir, pastellitir og bleikir tón- ar. Það er hinsvegar hvimleitt að vera með fallegan lit á nöglunum ef negl- urnar eru gjarnar á að brotna eða klofna. Start to Finish frá OPI er snið- ugt að því leyti að sé það sett á negl- urnar á undan litnum og eftir, þá helst liturinn lengur á auk þess sem það herðir neglurnar. OPI-naglalökk fást víða í snyrti- búðum og apótekum, t.d. Lyfju, Lyfj- um & heilsu og Hagkaupum, en þau hafa reynst vinsæl meðal snyrtifræð- inga sem annarra kvenna vegna þess hversu breiður pensillinn er. Verðið er á bilinu 1.742-1.929 kr. Hverjum einhleypir sofa hjá er mörgum umræðu- og jafnvel áhyggjuefni. Ekki þykir tiltökumál að spyrja mann hvernig það kom til, hvar það gerðist og auðvitað hvernig var. Um þetta eru einhleypir yfir- heyrðir þar sem þeir sitja innikróaðir úti í horni í leiðinlegum fjölskylduboðum þar til þeir rétt ná að smeygja sér að kökuborðinu og forða sér svo heim. Einkalífinu afsalað Þegar kemur að því að sofa snýst dæmið þó við því einhleypum má nefnilega auðveldlega hola niður í stofum, svefnloftum eða tjöldum og skiptir þá engu hverjir sofa þar fyrir. Ekki er víst að hinn einhleypi einstaklingur sé al- veg sammála þessu en hann virðist í slíkum aðstæðum að mestu missa atkvæðisrétt sinn og afsala sér einkalífi sínu í ákveðinn tíma. Af þessu vita kannski ekki allir en ákvæði þetta er neðst í samningnum með afar litlum stöfum sem enginn nennir að lesa. Nýlega stóð fyrir dyrum fjölskylduferð þar sem sjö manns áttu að gista saman í sumarbústað. Þar sem ég var sjöunda hjólið lék mér forvitni á að vita hvernig raðað yrði í herbergin og hvort ekki væri einhvers staðar notalegt einstaklingsherbergi þar sem ég gæti lesið fram á nótt, sent sms að vild á und- arlegum tímum (nokkuð sem ætíð vekur for- vitni hjá tvíhleypum) og jafnvel dregið þangað með mér feng næturinnar. En nei, svo var nú ekki. Stóð mér til boða að sofa með einu af pörunum þremur, kúldrast í stofusófanum, nú eða kannski bara logn- ast út af á pallinum eftir stífa kokteila- drykkju. Ég gat með öðrum orðum átt von á því að vakna við óæskileg hljóð um miðja nótt, vakna með tak í baki eftir að hafa legið í keng á litlum sófa eða einfaldlega vaknað og munað ekki eftir neinu. Svo sem ekkert sem ég hafði ekki upplifað áður en ekki sér- lega ákjósanlegir kostir í fjölskyldu- ferð. Ég var því þeirri stund fegnust þegar hætt var við ferðina og lífið gat haldið áfram að ganga sinn vanagang með spurningum um hvernig, hvar og auðvitað með hverjum ég hefði sofið? ’Skiptir enguhjá hverjum ég sef? Á föstudegi María Ólafsdóttir Morgunblaðið/Jakob Fannar ÞEGAR bjóða á vinum og kunn- ingjum í heimsókn lenda margir í vandræðum með hvað eigi að hafa á boðstólum. Ekki hentar alltaf að bjóða upp á saltstangir eða flögur og grípa þá margir til þess ráðs að kaupa kex og osta. Eitt tilbrigðið við ostana er að bera fram Gullost eða Höfðingja með apríkósumarmelaði og furu- hnetum, glóðvolga úr ofninum. Hefur það aldrei valdið von- brigðum og bregst ekki að einhver spyrji gestgjafann hvernig hann hafi farið að. Góð tilbreyting frá köldu ostunum. Ostur með marmelaði 1 Gullostur eða Höfðingi Apríkósumarmelaði Furuhnetur Ritz-kex Smyrjið fremur þykku lagi af apríkósumarmelaði á ostinn. Stráið furuhnetum yfir. Hitið ofninn í 180°C blástur. Ef þið eruð með Höfðingja þá er hæfilegur tími í ofninum 10-12 mínútur en þar sem Gullosturinn er stærri þarf hann 15-20 mínútur. Berið fram með Ritz-kexi eða snittubrauði. Ekki er verra að hafa ferska ávexti með, líkt og vínber eða jarðarber. Bragðgóður ostur í boðið Í gogginn Ljósaskipti eftir Stephenie Meyer Það getur verið flókið að verða ástfanginn af manneskju sem er allt öðruvísi en mað- ur sjálfur. Isabella Swan veit meira en flestir aðrir um þann vanda því Edward Cullen sem hún er innilega ástfangin af og elskar hana einlæglega er vampíra. Þessi fyrsta skáldsaga Stephenie Meyer hefur hrifið ungt fólk víða um heim, er orðin að vinsælli kvikmynd og framhaldsbækur hafa fylgt í kjöl- farið. Meyer segir sjálf að hug- myndin að Ljósaskiptum hafi komið til sín í draumi. Heimur vampír- unnar er ekki bara forvitnilegur og spennandi heldur leynast þar víða hættur eins og söguhetja þessarar bókar kemst svo sannarlega að raun um. Bókin fæst í Máli og menningu og kostar 1.980 kr. kolbrun@mbl.is Bókin Heimur vampírunnar Hvað viltu lesa? Sendu okkur tölvupóst á daglegtlif@mbl.is Gullgrafararnir í The Treasure of the Sierra Madre frá 1948 minna óneitanlega á ís- lenska útrás- arvíkinga og raunar minnir myndin öll á sögu íslenska efnahags- undursins. Í henni segir frá æv- intýramönnum í Mexíkó og hvernig gullæði og græðgi stýrir örlögum þeirra. Þessi mynd talar sterkt til íbúa Nýja-Íslands en er umfram allt frábær kvikmynd, enda yfirleitt hægt að treysta Humphrey Bogart til að hafa ofan af fyrir fólki. Draumaborgin er löngu hætt að geta af sér snilld sem þessa. Nálgast má ræmuna á Laugarásvídeó fyrir litlar 500 kr. Skylduáhorf. skulias@mbl.is Gamalt&gott Gamli Bogart klikkar ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.