Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009 Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is SLÁTURHÚS SS á Selfossi brá á það ráð í vor að auglýsa eftir hross- um til slátrunar, til að tryggja að það gæti uppfyllt samning til Sviss um sölu á hrossakjöti. Ástæða þess að hross vantaði er hversu margir losuðu sig við hross síðastliðið haust í því skyni að minnka rekstr- akostnað tengdan hestaeign. Einar Hjálmarsson, sláturhús- stjóri hjá SS á Selfossi, segir að strax í febrúar hafi biðlistar eftir hrossaslátrun klárast. „Í haust hrúguðust hross inn á biðlista hjá okkur þegar menn fóru að bregðast við hækkandi verði á heyi, áburði og öðrum aðföngum sem þurfa til að eiga hesta.“ Mönnum hefur legið nokkuð á að losna við hrossin því stór hluti þeirra fór að hans sögn í önnur sláturhús. „Það var slátrað miklu af hrossum t.d. fyrir norðan á Hvammstanga og víðar svo bið- listarnir tæmdust hér hjá okkur.“ Viðbrögðin ágæt Við svo búið mátti ekki standa, enda þarf Sláturfélagið að uppfylla sölusamninga við Sviss um sölu á hrossakjöti. „Við byrjuðum því að auglýsa eftir hrossum 22. apríl á vefnum okkar og höfum líka sett auglýsingar í héraðsblöðin hér á Suðurlandi,“ segir Einar. „Vorin eru alltaf erfiðasti tíminn að ná inn hrossum, því þá geta þau verið af- lögð eftir veturinn og fólk vill bíða með að slátra þeim fram á haustið. En viðbrögðin hafa verið ágæt og við sjáum ekki annað en að það gangi í sumar að fylla upp í pant- anir.“ Að hans sögn er nú slátrað um 20 hrossum vikulega á staðn- um. Guðmundur Svavarsson, fram- leiðslustjóri hjá SS, segir hrossa- kjötsverðið vera 90 krónur á kílóið, svo reikna má að fyrir meðalhross fáist 16–18 þúsund krónur. Hann segir hrossakjötið nokkuð „mis- skilda afurð“ hér á landi en á meg- inlandinu, s.s. í Sviss, Frakklandi og á Ítalíu þyki það herramanns- matur. „Hins vegar hefur orðið al- ger sprenging í neyslu á folald- akjöti hér, enda lúxusmatur.“ SS auglýsir eftir hrossum til slátrunar Hestaeigendur losuðu sig við fjölda skepna sl. haust til að spara kostnað Morgunblaðið/Frikki Á beit Rekstrarkostnaður hesta eykst með lækkandi gengi og margir hafa því frekar hug á að fækka hrossum sínum en að fjölga þeim. » Mikil eftirspurn eftir hrossakjöti í Sviss » Um 20 hrossum slátrað í viku » Kílóverðið 90 krónur KARLMAÐUR situr í gæslu- varðhaldi vegna alvarlegrar lík- amsárásar í byrjun vikunnar. Mað- urinn verður alla vega í haldi til 29. júní nk. Í greinargerð lögreglu kemur fram að mikið slasaður maður hafi fundist á berangri á sunnudags- kvöld. Honum var komið undir læknishendur þar sem gert var að sárum hans. Maðurinn reyndist vera með augntóftarbrot á báðum augum, þrjá stóra skurði á höfði og vörum. Einnig var hann með marga yfirborðsáverka á höfði, brjóst- kassa og útlimum. Lögreglan fór í hús þar sem talið var að árásin hefði verið gerð og þar inni mátti glögglega sjá um- merki eftir líkamsárás: Blóð víða á veggjum, þvegill, sem var blautur og blóði drifinn og blóð á hús- gögnum. Fimm voru handteknir, fjórum sleppt en umræddur maður úrskurðaður í gæsluvarðhald. Blóði drifin íbúð eftir líkamsárás YFIR áttatíu svokallaðir grennd- argámar eru víða um höfuðborg- arsvæðið og eru þeir hugsaðir til þess að einstaklingar eigi styttri leið í að losna við ýmist flokkan- legt rusl. Grenndargámarnir eru hins vegar ekki ætlaðir fyrir- tækjum, þau eiga að leita til end- urvinnslustöðva. Morgunblaðinu barst þó ábend- ing um fyrirtæki sem hefði losað talsvert magn af bæklingum í slík- an gám. Forsvarsmenn fyrirtæk- isins kváðust gera það í góðri trú eftir að hafa spurst fyrir hjá Sorpu. Samkvæmt upplýsingum frá Sorpu gengur mjög vel að reka grenndargámana og sjaldgæft mun að fyrirtæki misnoti þessa að- stöðu, enda er lúgan á gámunum lítil og því erfitt að koma miklu magni þar inn. halldorath@mbl.is Grenndargámar ekki ætlaðir fyrirtækjum FIMM ungir menn á Ísafirði eru að ljúka smíði kofa á smíðavellinum á Ísa- firði. Kofinn er hinn myndarlegasti, með háu risi og er lang-veglegasta húsið á svæðinu. Kofar af þessu tagi eru yfirleitt rifnir á haustin og það urðu örlög kofa sem þeir smíðuðu í fyrrasumar. Strákarnir sjá svolítið eftir honum því hann var þriggja hæða og enn stærri en sá sem nú er risinn. Smiðirnir ætla að forða nýja kofanum undan bæjarvinnunni og hafa fengið leyfi til að flytja hann heim í garðinn til eins úr hópnum. „Við ætlum að prófa að setja rafmagn í kofann, mála og gera hann regnheldan. Síðan ætl- um við að gista í honum,“ sagði einn úr hópnum. helgi@mbl.is FLYTJA KOFANN HEIM Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is KATRÍN Jakobsdóttir menntamálaráðherra hyggst skoða inntökukerfið í framhalds- skólana sem sætt hefur gagnrýni. Samræmd lokapróf upp úr 10. bekk voru afnumin með nýjum grunnskólalögum sem tóku gildi í fyrra- sumar og tóku framhaldsskólarnir mið af skólaeinkunnum nú í vor við inntöku nýrra nemenda. Vantar skýrari sýn „Þetta eru ný lög og það hafa margir úr skólasamfélaginu rætt um að það vanti skýrari sýn á hvað felist í skólaeinkunn,“ segir menntamálaráðherra. Bent hefur verið á að misræmi sé milli skólaeinkunna þar sem grunnskólarnir hafi engan ramma frá menntamálaráðuneytinu um hvernig sú einkunn skuli fundin. Þar með sitji ekki allir nemendur við sama borð þegar þeir eru metnir inn í framhaldsskólana. Í nýju grunnskólalögunum segir að nem- endur í fyrri hluta 10. bekkjar skuli þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, stærðfræði og ensku. Önnur próf skuli haldin samkvæmt ákvörðun ráðherra. Ekki stóð til að menntamálaráðuneytið sendi framhaldsskólunum niðurstöður þessara samræmdu könnunarprófa sem reyndar voru ekki haldin í vetur. „Það þarf að taka afstöðu til þess hvort framhaldsskólarnir eigi að fá upplýsingar um þá einkunn,“ segir Katrín. Val og framboð skoðað Hún segir einnig ástæðu til þess að endur- skoða val um fjóra framhaldsskóla. Dæmi eru um að nemendur með háar einkunnir hafi ekki komist í neinn þeirra fjögurra skóla sem þeir settu á óskalista. „Við þurfum kannski líka að velta fyrir okkur hvort framboð á hefðbundnu bóknámi sé nóg vegna þessarar miklu ásóknar í slíka skóla.“ Katrín kveðst ekki hlynnt hverfaskiptingu framhaldsskólanna. „En maður veltir slíku náttúrlega fyrir sér. Ég veit hins vegar að sumir skólar geyma pláss fyrir nemendur úr sínum hverfum og það er þeirra ákvörðun.“ Ráðherra skoðar inntökukerfið  Segir að taka þurfi afstöðu til upplýsingagjafar til framhaldsskóla um niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum  Jafnframt þurfi að endurskoða kerfið um val á fjórum framhaldsskólum Morgunblaðið/Eggert Skoðað í heild Katrín Jakobsdóttir segir ástæðu til að fara yfir málin á ný. Menntaráð Reykjavíkurborgar sam- þykkti á fundi sínum þann 24. júní sl. að skipa starfshóp um námsmat í grunnskólum borgarinnar. Hópurinn á að skoða námsmats- aðferðir innan grunnskólans og við brautskráningu úr honum. Sérstaklega á að fara yfir samræmd próf og þær breytingar, sem nú standa yfir á þeim, með tilliti til hagsmuna nemenda. „Ég tel gengisfellingu samræmda prófsins ekki vera til góðs,“ segir Kjartan Magnússon, formaður mennta- ráðs. „Það er gott að allt skuli ekki jafn- prófmiðað og áður og að námsmatið skuli vera orðið fjölbreyttara en jafn- framt slæmt að gengisfella þetta mik- ilvæga hjálpartæki sem ég tel sam- ræmdu prófin vera,“ bætir hann við. Starfshópur um námsmat

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.