Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Stórumáfanga ernáð með stöðugleika- sáttmála ríkisstjórnar- innar, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins. Segja má að nú sé búið að leggja grundvöll að þeirri end- urreisn íslenzks atvinnulífs, sem fara verður fram á næstu misserum, þótt mest af endurreisnarstarfinu sé enn eftir. Samstaða hefur náðst um meginmarkmiðin og allir stefna í sömu átt. Einn mikilvægasti þáttur sáttmálans er sá friður og stöðugleiki á vinnumark- aðnum, sem hann á að tryggja. Launþegar, jafnt í einkageiranum sem hjá hinu opinbera, sætta sig við litlar launahækkanir og í raun kaupmáttarskerðingu, en mest ratar þó hlutfallslega til þeirra, sem minnst hafa. Endurreisnarstarfið, ekki sízt við endurskipulagningu bankanna, hefur dregizt úr hömlu. Það er því jákvætt að í sáttmálanum eru negldar niður ýmsar dagsetningar. Endurskipulagningu á eignarhaldi bankanna á að ljúka fyrir 1. nóvember og upplýst verður hvernig farið verði með gjaldeyrisjöfnuð þeirra, sem er stórmál, fyrir 17. júlí næstkomandi. Stefnt er að því að stýrivextir lækki niður fyrir 10% fyrir 1. nóv- ember. Tímasetja á hvernig gjaldeyrishöftunum verði af- létt; sú áætlun á að liggja fyrir 1. ágúst. Þá verður leit- ast við að aflétta hömlum á nýrri erlendri fjárfestingu fyrir 1. nóvember. Það er mikilvægt að hægt verði að standa við þessar dagsetningar. Þær auka traust, bæði innanlands og utan, á stefnu stjórnvalda. Í sáttmálanum er skýrt kveðið á um að erlendir að- ilar geti eignast hlut í rík- isbönkunum og öðrum fjár- málafyrirtækjum. Þetta er mikilvægur þáttur í endurreisninni; að semja frið við alþjóðlegt fjármálalíf og tryggja aðgang Íslands að fjármálamörkuðum. Ríkisstjórnin lofar að greiða götu þegar ákveðinna stórframkvæmda á borð við álverið í Helguvík og stækk- un í Straumsvík. Það verður fróðlegt að sjá hvort þing- menn Vinstri grænna standa við það, ásamt því fyrirheiti að engar hindranir verði af hálfu stjórnvalda í vegi meðalstórra verksmiðja, sem munu þurfa mikla raforku. Í stöðugleikasáttmálanum er gert ráð fyrir að lífeyris- sjóðir taki þátt í fjármögnun stórframkvæmda. Við slíkt samstarf skiptir höfuðmáli að ekki sé tekin áhætta fyrir hönd sjóðfélaganna, sem er meiri en við aðra fjárfestingarkosti. Veikasti hlekkur stöðug- leikasáttmálans er augljós- lega ríkisfjármálahlutinn. Ríkisstjórnin heitir því að hlutfall skattahækkana í að- gerðum til að fylla í gatið verði ekki hærra en 45%. Það er samt of hátt. Ganga hefði átt harðar fram í nið- urskurði ríkisútgjalda. Sennilega hefur stuðningur opinberra starfsmanna við sáttmálann verið keyptur of dýru verði. Verðmætasköp- unin, sem kemur okkur upp úr öldudalnum, mun ekki verða til í opinberum stofn- unum. Verðmætin verða til í fyrirtækjum á frjálsum markaði. Of þungar skatt- byrðar draga kraft úr at- vinnulífinu og seinka endur- reisninni. Launþegar ættu að hafa í huga að sé ætlunin að auka skattheimtu um 60 milljarða, verða þeir peningar ekki bara sóttir til „hátekjufólks“ og „fjármagnseigenda“. Til þess að ná slíkum fjárhæðum inn í ríkissjóð þarf að skatt- leggja alla þjóðina. Hvernig ríkisstjórnin hyggst útfæra það og standa jafnframt við það, sem hún hefur sagt, um að skattahækkanir muni ekki koma niður á þeim sem hafa lágar eða meðaltekjur, á eft- ir að koma í ljós. Samtök atvinnulífsins sam- þykkja framlengingu kjara- samninga með þeim fyr- irvara að sátt náist um breytingar á stjórnkerfi fisk- veiða. Það er eðlileg krafa og raunar dálítið sérkennilegt að ríkisstjórnin skuli ekki sjálf lýsa því yfir að þær breytingar verði gerðar í sátt. Það hefur fyrir löngu verið sýnt fram á að afleið- ingar hugmynda stjórnvalda um fyrningarleið yrðu svo afdrifaríkar fyrir sjávar- útveginn og þar með stóran hluta atvinnulífs á Íslandi, að hvorki fyrirtæki né laun- þegar á Íslandi gætu unað slíku. Stöðugleikasáttmálinn er góð byrjun. Það þarf að standa við efnisatriði hans og gera það á réttum tíma. Þrátt fyrir galla hans þurfa allir aðilar að vinna af heil- indum að framgangi hans. Tíminn leiðir í ljós hvort hann verðskuldar að verða kallaður ný þjóðarsátt á borð við þá, sem kom landinu út úr erfiðleikum fyrir hátt í tveimur áratugum. Ríkisfjármálin eru veikasti hlekkur sáttmálans} Ný þjóðarsátt? U ndanfarið hafa framhalds- skólar glímt við vandamál vegna þess að ekki voru haldin samræmd próf í grunnskólum í vor. Fram- haldsskólar byggja ákvarðanir um skóla- vist enn sem fyrr á einkunnum en nú er ljóst að einkunnir eru ekki lengur staðlaðar heldur á forræði hvers grunnskóla fyrir sig. Í kjölfarið hefur farið fram umræða um kosti og galla samræmdra prófa. Um þau mál hef ég einhverra hluta vegna sterka skoðun. Samræmi og stöðlun hafa verið ákveðin bannorð í menntafræðum undanfarin ár. Nemendur eiga að njóta einstaklingsmið- aðs náms þar sem tekið er tillit til þarfa hvers og eins. Meiri áhersla skal lögð á aðferðafræði en utanbók- arþekkingu, meiri áhersla á innsæi og skilning o.s.frv. Enginn vill að skólar steypi alla í sama mót. Allt eru þetta markmið og fullyrðingar sem í raun er ekki hægt að mótmæla. En mátum þetta aðeins við raunveruleik- ann. Er óeðlilegt að ætlast til þess að grunnskólar lands- ins hafi sameiginleg viðmið sem mæld eru á samræmd- um prófum um hvaða stöðluðu þekkingu nemendur eigi að búa yfir til að vera tilbúnir undir framhalds- skólanám? Er fáránlegt að ætlast til þess að settir séu staðlar á námið? Er ekki vægi náms einmitt fólgið í ein- hverskonar stöðlun? Ég tel að stöðlunin sé eðli námsins, það sem aðskilji eiginlegt nám frá allri annarri lífs- reynslu. Um þetta mætti skrifa margar bækur, en ég skil ykkur eftir með hugleiðinguna. Að mínu mati er hreinlega hneykslanlegt að íslensk menntayfirvöld hafi ekki sjálfstraust til ákvarða hvaða stöðluðu þekkingu nemendur sem ljúka grunnskóla eigi að búa yfir til að vera sem best búnir undir framhaldsskólanám. Mér finnst menntayfirvöld hreinlega bregðast skyldum sínum. Samræmd próf má sífellt taka til endurskoðunar, og ekki tel ég heilagt að prófa úr þeim fjórum greinum sem haldin hafa verið próf í undanfarin ár, en það hljóta beinlín- is að vera réttindi hvers grunnskólanemanda að fá staðlað mat á því hversu mikið hann hefur lært í samanburði við aðra nemendur. Eftir stendur líklega aðeins óttinn við að ákveða hvaða staðla skuli setja. Við mat á því biðla ég til menntayfirvalda að hefja sig ofar tískustraumum. Það skal enginn segja mér að grunnþekking veraldar sé svo afstæð að hún breytist á nokkurra ára fresti. Við erum varla orðnir svo miklir þrælar lægsta samnefnarans að eina krafan sem við gerum til 16 ára útskriftarnema úr grunnskólum sé að þeir kunni að skrifa nafnið sitt eða segja frá væntingum sínum um framtíðina? Við hljótum að geta fundið einhverja staðla úr tíu ára námi. Eitthvað sem gera má kröfu til að allir viti, þekki og skilji. Og ef við finnum það og sammælumst um það, ættum við ekki að óttast að nemendur séu prófaðir upp úr því á sam- ræmdan hátt. Er það nokkuð? bergur.ebbi.benediktsson@gmail.com Bergur Ebbi Pistill Samræmd próf FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is H afi einhverjir bundið vonir við að með sam- komulagi um stöðugleikasáttmála mundu vextir lækka verulega strax á næstu vikum og gengi krónunnar styrkjast, verða þeir hinir sömu fyrir vonbrigðum. Viðsnúningurinn gæti hins vegar átt sér stað á seinustu mánuðum ársins. Í sáttmálanum lýsa viðsemjendur á vinnumarkaði því að þeir treysti því að skapaðar séu forsendur fyrir því að stýrivextir Seðlabankans lækki í eins stafs tölu fyrir 1. nóv- ember og vextir fari svo áfram lækk- andi. Lögð er áhersla á að vextir lækki hratt á næstu mánuðum en ekkert er þó að finna í aðgerðunum sem tryggir að svo verði í sumar. Um tíma var rætt um að taka upp fastgengisstefnu. Ekki er á það minnst í sáttmálanum en samkomu- lag náðist um að gerð verði tímasett áætlun um ráðstafanir í gengis- málum sem leggja á fram fyrir 1. ágúst um afnám hafta. Markmiðið er að tryggja stöðugleika krónunnar og að leitast verði við að aflétta hömlum á nýrri fjárfestingu fyrir 1. nóv. Svarið er bara aðildarumsókn Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra segir að vinna þurfi að mörgu til að styrkja gengi krón- unnar. Seðlabankinn hafi viljað fara varlega við lækkun stýrivaxta vegna áhrifa á gengið. „Við vonum að þessar aðgerðir sem við erum að ráðast í, sem bæði hafa áhrif á hvernig við getum unnið okkur út úr gengishöftunum og höf- um sett okkur markmið um að styrkja ríkisfjármálin verulega, muni hafa þau áhrif að styrkja krón- una og skapa það svigrúm sem þarf til að stýrivextir lækki. Allt þetta vinnur mjög saman að því að styrkja gengi krónunnar. Mín skoðun er samt sú að við munum um einhvern tíma, kannski of langan, búa við of veika krónu og svarið við því er bara eitt, að sækja um aðild að Evrópu- sambandinu,“ segir hún. Atvinnurekendur hafa lagt höf- uðáherslu á nauðsyn þess að vextir lækki. „Lykilatriði til að koma krón- unni upp er að koma fjárflæðinu í gang á milli Íslands og annarra landa,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins. „Þess vegna leggjum við ofurkapp á að bankarnir séu end- urreistir og að erlendir eigendur komi þar að, sem hafa aðgang að er- lendu lánsfé. Við erum líka að horfa til stórra fjárfestinga í atvinnulífinu og orkugeiranum. Þannig getum við fengið inn fjármagn. Með því að geta lækkað vextina og tryggt útflutningnum betra aðgengi að fjármagni á eðlilegum kjörum, eygjum við möguleika á að meiri hreyfing verði á útflutningnum. Þeg- ar allt þetta er lagt saman höfum við trú á að við náum genginu til baka svo það nálgist jafnvægisgengi,“ segir Vilhjálmur. Í sáttmálanum er beinlínis stefnt að því að erlendir aðilar geti eignast meirihluta í einhverjum nýju bank- anna og eftir atvikum öðrum fjár- málafyrirtækjum. Ljúka á end- urskipulagningu á eignarhaldi bankanna í síðasta lagi 1. nóvember. Morgunblaðið/Eggert Sáttir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, fögnuðu samkomulaginu að lokinni undirritun í gær. Veik króna og háir vextir enn um sinn Eitt af markmiðum stöðugleika- sáttarinnar er að styrkja gengið og lækka vexti. Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætisráðherra telur að í einhvern tíma enn verði þó að búa við of veika krónu. ER einhver von til þess að erlend- ir aðilar vilji eignast hlut í bönk- unum? ,,Það eru kannski ekki mörg tilboð sem við höfum feng- ið um erlenda eignaraðild að bönkunum,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Hún segist þó telja að þegar sjá- ist til lands varðandi efnahags- reikninga bankanna og endur- fjármögnun þeirra, sem gæti orðið í júlí, þá muni hugsanlega skapast tækifæri til að erlendir eignaraðilar sýni þessu meiri áhuga en hingað til. Það sé mjög brýnt. Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármála- fyrirtækja, hefur enga trú á að er- lendir aðilar vilji eiga í bönkunum. En fjármálaþjónustan muni rísa á ný, „á íslenska vísu en ekki með einhverri aðstoð utanfrá. Fjár- málastarfsemi er svo einskorðuð við þjóðir. Þú sérð varla nokkurn einasta útlendan banka á öllum Norðurlöndunum. Þeir höfðu eng- an áhuga í uppgangsárunum þeg- ar allt var hér í blóma og sögðu alltaf að efnahagslífið og krónan væru svo óstöðug og markaður- inn lítill. Þeir hafa engan áhuga á að koma hérna inn í niðursveiflu.“ Koma með fé?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.