Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009 Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur og Svein Sigurðsson ÍRANSKA Fars-fréttastofan hafði í gær eftir Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseta, að Barack Obama skuli biðjast afsökunar og hætta að skipta sér af írönskum innanrík- ismálum. Á þriðjudag fordæmdi Obama ofbeldið sem íranskir ráða- menn hefðu beitt gegn stjórnarand- stæðingum en hvöss orðaskiptin þykja ekki til þess fallin að milda samskipti ríkjanna á næstunni. Mir Hossein Mousavi, leiðtogi írönsku stjórnarandstöðunnar, sagði í gær, að hann myndi ekki láta hótanir hræða sig frá að krefj- ast þess, að kosningarnar fyrr í mánuðinum yrðu ógiltar. Meira en 100 þingmenn virtu að vettugi sig- urveislu Mahmouds Ahmadinejads forseta og þar á meðal Ali Larijani, forseti þingsins. „Ég mun hvergi hvika frá þeirri kröfu, að réttindi íransks almenn- ings verði virt,“ sagði Mousavi á vefsíðu sinni og sagði að hart hefði verið lagt að honum að draga kæru um kosningasvindl til baka. Yfir 140 manns í haldi Mousavi hvatti fólk til að halda mótmælum áfram en samt innan ramma laganna. Mousavi hefur ekki sést opinberlega frá því í síð- ustu viku og segir hann möguleika sína á mannlegum samskiptum tak- markaða. „Vefsíður okkar eiga í miklum vandræðum, dagblaðinu Kalameh Sabz hefur verið lokað og ritstjórn þess handtekin,“ sagði Mousavi. Óháður fjölmiðill í Íran sagði í gær, að meira en 140 manns væru í haldi eftir mótmælin, þar á meðal háskólakennarar og blaða- menn. Ali Larijani, forseti íranska þingsins, og rúmlega 100 þingmenn aðrir mættu ekki í sigurveislu Ah- madinejads forseta, en þingmenn eru alls 290. Þykir þetta sýna klofn- inginn sem uppi er. Þá varaði Hos- sein Ali Montazeri, einn af æðstu klerkum landsins, stjórnvöld við að bæla mótmælin. Mætti fólk ekki koma saman til að ræða sín lög- mætu réttindi, gæti það orðið til að grafa undan stjórnvöldum hve vold- ug sem þau væru. Montazeri var á sínum tíma mjög náinn Khomeini erkiklerki en féll í ónáð er hann gagnrýndi meðferð á pólitískum föngum og stjórnarandstæðingum. Obama biðjist afsökunar  Íransforseti biður Bandaríkjaforseta að skipta sér ekki af írönskum innanríkis- málum  Klofningur virðist vera meðal stuðningsmanna Mahmoud Ahmadinejads » Höft eru á frelsi erlendra fréttamanna í Íran » Treysta verður á vitni og íranskar fréttaveitur » Mousavi hefur haldið úti vefsíðunni Kalemeh UROS-fólkið í Perú býr í húsum úr reyr og það hefur líka búið til landið, sem það stendur á, úr reyr. Reyreyjarnar eru alls 70 og fljóta fyrir festum rétt við strönd Titicaca-vatns. Flatarmál þess er rúmlega 8.000 ferkílómetrar og það er næstum 4.000 m fyrir ofan sjávarmál. Reyrinn, mýksti hluti stöngulsins, er einnig mikilvæg fæða fyrir fólkið en aðallega lifir það þó á fiski og fugli. svs@mbl.is ÞAR SEM ÁTTHAGARNIR ERU EYJA ÚR REYR Reuters HÆSTIRÉTTUR Rússlands hefur snúið við sýknudómi yfir þremur mönnum, sem sakaðir höfðu verið um aðild að morðinu á blaðakonunni Önnu Polítkovskaja. Verður því réttað yfir þeim aftur. Polítkovskaja var kunn fyrir skrif sín um stríðið í Téts- níu og aflaði sér margra óvina í rússneska stjórnkerfinu og hernum fyrir vikið. Lét rússneski herinn handtaka hana í einni ferða hennar til landsins og leiða í gegnum sýndaraftöku og er hún ætlaði að taka þátt í samninga- viðræðum vegna harmleiksins og gíslatökunnar í barna- skólanum í Beslan í Suður-Rússlandi var eitrað fyrir henni. Hún lifði það þó af og hélt áfram skrifum sínum um framferði rússneskra stjórnvalda. Hún var síðan skotin til bana í uppgangi fjölbýlishússins þar sem hún bjó í Moskvu fyrir þremur árum. Mennirnir þrír, Sergei Khadzhíkúrbanov og bræðurn- ir Dzhabraíl og Íbragím Makhmúdov, voru sýknaðir fyrir herrétti í Moskvu en rússneskir blaðamenn og mannrétt- indasamtök gagnrýndu þá niðurstöðu harðlega. Menn- irnir höfðu verið sakaðir um aðild að morðinu en meintur morðingi Polítkovskaju er talinn vera Rústam Makhmú- dov, bróðir fyrrnefndra bræðra, en ekki hefur tekist að hafa hendur í hári hans. Verjandi mannanna sagði dóminn af pólitískum rótum runninn og raunar furðaði lögfræðingur Polítkovskja- fjölskyldunnar sig líka á honum vegna þess, að hann hafði ekki beðið um hann. svs@mbl.is Önnur réttarhöld vegna morðsins á Polítkovskaju Reuters Blaðakonu minnst Kveikt á kerti í minningu Önnu Polítkovskaju eftir útifund í Moskvu í október 2006. Hæstiréttur Rússlands ógilti sýknudóm fyrir herrétti BANDARÍSKA stúlkan Brooke Greenberg er 16 ára en á stærð við ungbarn. Hún er með erfðasjúkdóm sem veldur því að hún hefur sáralítið stækkað frá fæðingu. Læknar þekkja ekki sjúkdóminn,. Þeir standa því ráðþrota gagnvart hon- um. En finnist lækning gæti um leið fundist skýring á því hvað veldur öldrun, segir í Jyllandsposten. Andlegur þroski Brooke er minni en hjá jafnöldrum hennar en stöðv- aðist þó ekki við fæðingu. „Við elsk- um hana eins og hún er,“ segir faðir hennar, Howard Greenberg. Brooke kann ekki að tala en þekk- ir greinilega fólk sem hún umgengst, hún á þrjár systur sem allar hafa þroskast eðlilega. Richard Walker, læknir sem starfar við háskóla Suð- ur-Flórída, segir að líkamshlutarnir þroskist ekki í takt. Þannig sé Brooke enn með barnatennurnar en beinin séu eins og í 10 ára barni. Að- eins hár og neglur vaxa eðlilega. kjon@mbl.is Brooke er sextán ára ungbarn Lítil Greenberg með móður sinni. ELSTA hljóðfæri sögunnar er lík- lega flautan en fundist hafa alls átta flautur sem gert er ráð fyrir að hafi verið smíðaðar fyrir a.m.k. 35.000 árum. Nútímamaðurinn, sem núlif- andi Evrópufólk er komið af, var um þetta leyti að koma fram á sjónar- sviðið í álfunni. Fyrir voru Neander- dalsmenn sem dóu út. Vísindamenn við Tübingen- háskóla segja að best varðveitt sé um 20 sentimetra löng flauta úr vængbeini af gammi. Á henni eru fimm göt, hún fannst í Hohe Fels- helli en þar hafa fleiri fornminjar fundist. Einnig voru flautur gerðar úr vígtönnum loðfíla. kjon@mbl.is Elsta hljóðfærið? Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is FÁEINAR vikur eru þar til forseta- kosningar fara fram í Afganistan og þótt óvinsældir Hamids Karzai for- seta hafi aukist mjög bendir nú flest til þess að hann sigri, segir í The New York Times. Karzai er kennt um margt sem aflaga hefur farið, ekki síst uppgang Talíbana en hann hefur líka reynst ákaflega snjall í að snúa á hugsanlega keppinauta. Bandaríkjamenn taka ekki af- stöðu í kosningunum enda lítt fúsir að láta bendla sig við óvinsælan for- seta. Einnig hafa þeir leynt og ljóst gagnrýnt að hann skuli ekki taka af meiri festu á fíkniefnaframleiðslu og smygli. Bróðir forsetans er sagður athafnasamur fíkniefnasali. En kannanir sýna að þrátt fyrir áföll er Karzai með langmest fylgi allra frambjóðenda sem sumir eru lítt þekktir. Þess má geta að þegar Karzai var kosinn í fyrsta sinn var kjörsókn yfir 70%, þrátt fyrir átök við Talíbana. En nú gætir sinnuleys- is og margir eru líklegir til að sitja heima á kjördag. „Karzai mun ekki breytast, hann hefur sýnt það,“ segir Ashraf Ghani, sem eitt sinn var náinn vinur Karza- is en býður sig nú fram gegn honum. „Ef hann vinnur liggur leiðin bara niður á við.“ Karzai spáð sigri Óvinsæll en snýr á keppinautana Reuters Leiðtogi Veggspjald með mynd af Hamid Karzai við rústir í Kabúl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.