Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 10
Hvalfjörður Langreyður skorin. ENGIN gagnrýni kom fram á hvalveiðar Íslendinga á fundi Alþjóðahvalveiðiráðs- ins sem lauk í gær. „Það er í samræmi við þann sáttatón sem hefur verið á fundinum,“ segir Tómas H. Heiðar, aðal- fulltrúi Íslands í Alþjóða- hvalveiðiráðinu. Allar hvalveiðar sem eiga sér stað eru á dagskrá fundarins. Töluverð umfjöllun var um vísindaveiðar Japana á fundinum og ekki náðist sátt um hnúfubaksveiðar Grænlendinga sem Danir lögðu fram tillögu um. Eins og fram hefur komið verður Ísland í hópi tólf lykilríkja sem er falið að leita málamiðlunar milli hvalveiðisinna og -andstæðinga. Auk þeirra eiga Bandaríkin, Japan, Nýja-Sjáland, Ástralía, Svíþjóð og Þýskaland fyr- ir hönd ESB, Brasilía, Mexíkó, Kamerún, Antígva, Barbúda og ey- ríkjasambandið St. Kitts og Nevis. Fyrir hópnum fer nýkjörinn for- maður Alþjóðahvalveiðiráðsins, Cristian Maquieira frá Chile. Gert er ráð fyrir að aðalfulltrúar ríkjanna verði í hópnum, sem mun funda í dag. Næsti fundur er ráð- gerður í október. halldorath@mbl.is Engin gagnrýni á hvalveiðar Íslendinga Tólf ríki í hóp sem á að miðla málum fram að næsta fundi hvalveiðiráðsins að ári Tómas H. Heiðar 10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009 Ögmundur Jónasson heilbrigðis-ráðherra má eiga það, að hann fer ekkert í launkofa með skoðanir sínar og menn vita því hvar þeir hafa hann. Hann hefur til að mynda aldrei verið hrifinn af hugmyndum um einkaframkvæmd í heilbrigðis- kerfinu.     Allt er það gottog blessað, en þarf ekki ráð- herrann samt sem áður að sýna þeim sem vilja leita hingað frá öðrum löndum með sjúklinga í læknisaðgerðir, undir formerkj- um einkafram- kvæmdarinnar, að minnsta kosti lágmarkskurteisi?     Ráðherrann kvaðst í frétt á for-síðu Morgunblaðsins í gær neita að láta bæjarstjóra Reykja- nesbæjar stilla sér upp við vegg, en Heilsufélag Reykjaness, Salt In- vestments og Nordhus Medical hafa beðið svars ráðherrans frá því í febrúar um hvort leigja megi van- nýttar skurðstofur Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja til þeirra. Orðrétt sagði Ögmundur: „Ef menn geta ekki haldið í sér þær vikur sem þessu vindur fram verða menn að eiga það við sjálfa sig.“     Haldið hverju í sér? Eiga hvað viðsjálfa sig? Hvað þýddi þetta svar ráðherrans?     Norðmaðurinn Otto Nordhus,stofnandi Nordhus Medical, segist í samtali við Morgunblaðið vera gáttaður á því að fá ekki að flytja norræna sjúklinga til Íslands:     Ég skil ekki hvers vegna heil-brigðisráðherrann getur hafn- að boðinu. Ég veit hann er komm- únisti en við höfum einnig komm- únista hér í Svíþjóð og Noregi og þeir hafa stutt þjónustuna.“ Ögmundur Jónasson Ögmundur „kommúnisti“ Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 13 skýjað Lúxemborg 22 léttskýjað Algarve 24 léttskýjað Bolungarvík 5 rigning Brussel 26 léttskýjað Madríd 26 léttskýjað Akureyri 11 rigning Dublin 17 léttskýjað Barcelona 25 léttskýjað Egilsstaðir 7 alskýjað Glasgow 19 heiðskírt Mallorca 27 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 10 rigning London 25 heiðskírt Róm 26 léttskýjað Nuuk 3 alskýjað París 27 léttskýjað Aþena 28 léttskýjað Þórshöfn 12 skýjað Amsterdam 26 léttskýjað Winnipeg 23 léttskýjað Ósló 26 heiðskírt Hamborg 17 skúrir Montreal 28 heiðskírt Kaupmannahöfn 20 skúrir Berlín 20 skýjað New York 23 alskýjað Stokkhólmur 22 heiðskírt Vín 21 skýjað Chicago 31 léttskýjað Helsinki 23 heiðskírt Moskva 14 skúrir Orlando 32 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 26. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2.53 0,2 9.01 3,7 15.04 0,3 21.21 4,1 2:59 24:03 ÍSAFJÖRÐUR 5.02 0,1 10.59 2,0 17.08 0,3 23.12 2,4 1:36 25:36 SIGLUFJÖRÐUR 0.53 1,4 7.17 -0,0 13.42 1,3 19.23 0,2 1:19 25:19 DJÚPIVOGUR 0.01 0,5 5.56 2,1 12.08 0,2 18.32 2,4 2:14 23:47 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á laugardag Hægviðri eða hafgola og létt- skýjað að mestu. Hiti víða um 20 stig til landsins, en heldur svalara við ströndina. Á sunnudag Hægviðri eða hafgola, þurrt að kalla og víða bjartviðri. Hiti breytist lítið. Á mánudag Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu og lítilsháttar væta við norðurströndina, ann- ars yfirleitt þurrt og bjart. Hiti 10 til 20 stig, svalast við sjóinn norðanlands. Á þriðjudag og miðvikudag Austlæg eða breytileg átt, úr- komulítið og fremur hlýtt. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægur vindur, úrkomulítið og léttir smám saman til. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. ENGAR upplýsingar hafa komið fram í könnun skilanefndar Glitnis um að fyrirtækið Cosamajo – eða Þröstur Jóhannsson fyrir hönd þess – hafi lagt erindi eða gögn fyrir nefndina sem sýndu fram á að hægt hefði verið að ná mun hagstæðari samningum vegna sölu Sjóvár á Turni IV í Macau. Í Morgunblaðinu í gær var rætt við Þröst og segir hann þar m.a.: „Við sendum þeim fullt af upplýsing- um í tölvupósti, áætlanir og útfærða valmöguleika á því hvernig lausnir væri hægt að vinna með.“ Skilanefnd Glitnis sendi frá sér at- hugasemd vegna fréttarinnar. Þar segir m.a. að það liggi fyrir „að þess- ir aðilar hafa ekki haft samband við SJ-fasteignir, sem er formlegur um- sjónaraðili fjárfestingaverkefnis- ins.“ Unnið með alþjóðlegum fjárfestingaráðgjöfum Þröstur segir í umræddri frétt, að svo virðist sem því fari fjarri að reynt hafi verið til þrautar að ná há- marksvirði út úr samningunum. Skilanefndin telur hins vegar að sú niðurstaða sem fékkst með samn- ingi við Shun Tak og Hong Kong Land sé sú besta sem unnt var að ná „þegar tekið er tilit til allra að- stæðna, s.s. eðlis upphaflegra samn- inga, mats á framtíðarvirði eigna í Macau og síðast en ekki síst hæfis aðila til að reiða fram 70 milljónir USD á næstu mánuðum.“ Einnig kemur fram í tilkynningu nefndarinnar, að við þessa vinnu var unnið í samvinnu við alþjóðlegu fjár- festingaráðgjafastofurnar Savills, Knight Frank og DTZ „sem allar hafa mikla þekkingu á fasteigna- markaði í Suðaustur-Asíu og sér- staklega í Hong Kong. Auk þess hefur alþjóðlega ráðgjaf- arfyrirtækið Catalyst Capital unnið skýrslu í tengslum við verkefnið og stöðu þess. Til grundvallar áliti ráð- gjafanna lágu m.a. þrjú nýleg tilboð fjárfestingahópa í eignina.“ Engin erindi bárust um betri samninga Tap Sjóvá tapaði miklu á turni IV í Macau, í grennd við Hong Kong. Besta niðurstaðan sem unnt var að ná

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.