Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 32
32 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009 Ég hef alltaf fundið til tengsla við Ísland 33 » BARROKKHÁTÍÐ er haldin á Hólum í Hjaltadal um helgina. Dagskráin hefst kl. 20 í kvöld með kvöldvöku í Auðunarstofu. Þar ræðir Jón Aðalsteinn Baldvinsson um Hólastað á tímum barrokksins, Pétur Halldórsson segir frá barokk- smiðju Hólastiftis og ræðir um strengjaorgel. Ingibjörg Björnsdóttir danskennari seg- ir frá barokkdönsum og nám- skeiði laugardagsins og ef viðstadda kitlar í iljar verða fyrstu barokksporin stigin. Söngvarar og hljóðfæraleikarar hittast og ræða um verkefni helgarinnar og er tónlistarfólkinu frjálst að hefja upp söng og hljóðfæraslátt og láta fjöllin óma. Listir og fræði Barrokkhátíð á Hólum í Hjaltadal Hóladómkirkja AFADAGAR eru haldnir á Iðnaðarsafninu á Akureyri um helgina. Á Iðnaðarsafninu hef- ur það alltaf verið sérstakt ánægjuefni að taka á móti eldra fólki og flestir hafa lifað þá tíma þegar safnkostur Iðn- aðarsafnsins var hluti af dag- legu lífi og störfum. Til þess að skapa umgjörð utan um sam- skipti kynslóðanna og ýta und- ir að þekking og sögur berist mann fram af manni eru allir krakkar hvattir til að koma með afa sínum í skemmtiferð á safnið en afar eru hafsjór af fróðleik og skemmtilegum sög- um. Frítt verður á safnið fyrir afa en ömmur eru einnig hjartanlega velkomnar. Söfn Afadagar á Iðnaðarsafninu Súkkulaðivél á Iðnaðarsafninu STYRKUR úr sjóði Selmu og Kay Langvads var í gær veitt- ur rannsóknarverkefninu „Á mótum danskrar og íslenskrar menningar. Danir á Íslandi 1900-1970“. Þrír aðilar standa að rannsókninni: Stofnun Vig- dísar Finnbogadóttur, Sagn- fræðistofnun Háskólans og Institut for Nordiske Studier og Sprogvidenskab við Kaup- mannahafnarháskóla. Auður Hauksdóttir, dósent í dönsku, og Guðmundur Jónsson, prófessor í sagnfræði, stjórna verkefninu í samvinnu við Erik Skyum-Nielsen, lektor við Kaupmannahafnarhá- skóla. Sjóðnum er ætlað að efla menningartengsl Íslands og Danmerkur. Fræði Danir á Íslandi fá Langvads-styrkinn Auður Hauksdóttir Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ROBERT Schäfer, ritstjóri fagtímaritsins Topos sem fjallar um landslagsarkitektúr og umhverfishönnun, mun í dag veita áströlsku landslags- arkitektastofunni McGregor and partners alþjóðleg verð- laun kennd við tímaritið, við lok málþings um landslags- arkitektúr í Norræna húsinu. Félag íslenskra landslags- arkitekta, FÍLA, stendur að málþinginu í sam- vinnu við Norræna húsið og ber það yfirskriftina Sustainability and Design, eða Sjálfbærni og hönnun. McGregor and partners hlýtur verðlaun- in fyrir einstaka hönnun sína á sviði sjálfbærni í landslagsarkitektúr og umhverfishönnun. Þetta er í fjórða sinn sem verðlaunin eru veitt og í fyrsta sinn sem þau eru veitt stofu utan Evr- ópu, þ.e. í Ástralíu. Schäfer segir það hafa verið upplagt að veita verðlaunin á málþinginu, slá tvær flugur í einu höggi. „Landslagsarkitektúr nær yfir mjög vítt svið, ekki bara garðyrkju,“ segir Schäfer. Slík hönnun snerti m.a. stjórnmál, umhverfismál og efnahagsmál. Viðleitni mannsins til umbóta. Á málþinginu munu erlendir landslags- arkitektar ræða um sjálfbærni og hönnun en einnig taka til máls rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson, Sigurður Gunnarsson bygg- ingaverkfræðingur og Birkir Einarsson lands- lagsarkitekt. Sjálfbær landslagsarkitektúr snýst í stuttu máli um skipulag og hönnun svæða undir berum himni og þarf þar að taka tillit til umhverfisþátta og notkunar á svæðinu, að skipulag og hönnun sé í sátt við náttúru og menn og bæti umhverfið. „Það er mikið í tísku að nota orðið sjálfbærni, fólk heldur þá að eitthvað áhugavert sé á ferð- inni,“ segir Schäfer og hlær en bætir við að auð- vitað feli hugtakið í sér mikla vinnu og rann- sóknir. „Tilgangurinn er að komast að því hvort hægt sé að blanda saman fagurri og góðri hönn- un og sjálfbærni í víðum skilningi,“ segir hann um starf landslagsarkitektsins. Það hafi verð- launastofan McGregor and partners svo sann- arlega gert. „Ekki bara garðyrkja“  Topos, alþjóðleg verðlaun fyrir landslagsarkitektúr, verða veitt í Norræna húsinu  Málþing um sjálfbærni í landslagsarkitektúr verður haldið þar í dag Brett Boardman fyrir tímaritið Topos BP Park McGregor and Partners gjörbreytti 2,5 hektara menguðu iðnaðarsvæði í eigu olíufélagsins BP við norðurhöfnina í Sydney í Ástralíu, í huggulegan iðnaðarminjagarð. Robert Schäfer Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Það er spenna í loftinu þegar ég geng inní sal Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíó; Páll Óskar leggur frá sér hljóðnemann, búinn með sitt lag, og í rökkvuðum salnum sé ég söngvarana sem þjóðin þekkir, tvo útsetjara og fleira fólk – ekki þann sem ég leita að. Niðrí búningsherbergjum geng ég á hljóðið, þrjár kunnuglegar raddir æfa sig, ein spilar á gítar. Það er maðurinn; Gunnar Þórðarson tónskáld og mennirnir tveir eru Ragnar Bjarnason og KK – Kristján Kristjánsson. Tónleikarnir sem verið er að undirbúa og fara fram í kvöld kl. 19.30 í Háskólabíó heita Söng- bók Gunna Þórðar og þar syngur rjómi ís- lenskra söngvara lög meistarans með Sinfón- íuhljómsveit Íslands. „Mér líst mjög vel á þetta,“ segir Gunnar. „Ég er búinn að heyra útsetningarnar eftir strákana og er mjög ánægður með þær.“ Strákarnir eru þeir Hrafnkell Orri Egilsson og Haraldur V. Sveinbjörnsson, en þeir útsettu þorra laganna sem flutt verða á tónleikunum, en sjálfur útsetti Gunnar fimm þeirra. „Þeir gera þetta glæsilega og hafa greinilega legið yfir útsetningunum.“ Gunnar valdi söngvarana í samvinnu við hljómsveitina og útsetjarana. Fyrir utan þá sem þegar hafa verið nefndir, eru það Margrét Eir, Dísella, Páll Rósinkranz og Svavar Knút- ur. „Við vorum mjög sammála um þetta val.“ Lög með kjöt á beinunum Þau er mörg lögin hans Gunna Þórðar sem hafa hljómað í eyrum okkar í á fimmta áratug. Bláu augun þín, Ástarsæla, Þitt fyrsta bros, Starlight, Vetrarsól, Þú og ég, Gaggó Vest, Lít ég börn að leika sér – og öll hin, sem saman- lagt hafa tekið sér bólfestu í íslenskri þjóðar- sál. Lögin á tónleikunum verða nítján, og Gunnar segir að valið hafi ekki verið erfitt. „Ég valdi það sem mér fannst passa best fyrir hljómsveitina, lög með kjöt á beinunum. Þetta eru ballöður og lýrík, en líka smá stuð. Ég á lög sem mér finnst ágæt, en passa kannski ekki fyrir Sinfóníuhljómsveitina, þau vantar þá einhverja lógík sem þarf að vera til staðar. Þetta eru lög frá öllum mínum ferli, Fyrsti kossinn og Við saman, sem er þriggja ára. Þetta eru bestu lögin – finnst mér.“ Gunnar segir hljómsveitina flotta, það verði ekki af henni tekið. „Stjórnandinn, Benjamin Pope, er líka helv... klár. Hann kemur frá West-End í London.“ Ballöður og stuð  Sinfóníuhljómsveit Íslands opnar Söngbók Gunna Þórðar í kvöld  Sjö söngvarar syngja Morgunblaðið/RAX Söngbókin Gunnar Þórðarson er ánægður með útsetningarnar á lögunum hans. Í AIX-en-Provence hafa risið harðar deilur um áform ríkisstjórnar Nicol- asar Sarkozy Frakklandsforseta um að leggja nýja hraðlestarteina þvert gegnum Bogadalinn, Vallée de l’Arc. Það merkilega er, að laust fyrir árið 1870 urðu samskonar mótmæli í þessari sögufrægu suður-frönsku sveit af sama tilefni. Þá tók málarinn frægi, Paul Cézanne, sig til og mál- aði mynd af fjallinu Sigurhæðum, St. Victoire, sem rís fyrir enda dalsins þar sem lestin átti að liggja. Allt var það jafn fagurt og endranær sem úr pensli meistarans draup, nema hvað hann málaði rautt svöðusár í náttúr- una á þeim stað sem fyrirhugað var að leggja teinana. Cézanne er einn frægasti sonur þessarar sveitar og málaði mörg meistaraverka sinna einmitt á þess- um slóðum. En lestin var lögð og ekki aftur snúið. Eftir daga málarans héldu sveitungarnir nafni hans á lofti og kölluðu dalinn við Aix jafnvel Céz- anne-sveitina til að vekja athygli á staðnum og listamanninum. Atgangurinn í mótmælunum í dag er engu minni en var þá, um 1879. Íbúarnir vilja ekki að ný hraðlest milli Parísar og Nice skeri fallega dalinn þeirra. Fremstur í flokki mót- mælenda er Philippe Cézanne, 68 ára langafabarn listmálarans. Í Sig- urhæðum er enn göngustígur sá er langafi hans gekk forðum, og það var faðir Philippes, sonarsonur Céz- anne, sem barðist fyrir því um miðja síðustu öld að bílvegur yrði gerður úr göngustígnum og hafði sigur. Mörgþúsund manns hafa tekið þátt í mótmælum gegn lagningu járnbrautarinnar og vísa til síns besta vopns og frægasta sonar, Pauls Cézanne. Og slagorði sínu beina mótmælendur einmitt til hans: „Vaknaðu Cézanne, þeir eru orðnir kolbrjálaðir!“ Lestarspori mótmælt í Cézanne-sveitinni Cézanne Ein mynda listmálarans af dalnum og Sigurhæðum. Vaknaðu Cézanne! Landslagsarkitektúr er fimm ára háskólanám sem lýkur með meistaragráðu í viður- kenndum háskóla og er lögvernduð starfs- grein hér á landi. Íslenskir landslags- arkitektar hafa sótt menntun sína til margra landa, m.a. til Bandaríkjanna, Kanada, Norð- urlandanna, Bretlands og Þýskalands, að því er fram kemur á vefsíðu FÍLA, félags íslenskra landslagsarkitekta. Yfir 70 landslags- arkitektar eru í félaginu og segir Robert Schäfer þá mjög marga miðað við höfðatölu. Margir landslagsarkitektar Frekari upplýsinar: topos.de, mcgregorp- artners.com, nordice.is og fila.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.