Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 40
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 177. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Skrifað undir sáttmálann  Tuttugu og sjö manns skrifuðu í gær undir stöðugleikasáttmálann svonefnda. Forsætisráðherra segir viðbúið að íslenskt efnahagslíf þurfi að búa við veika krónu og háa stýri- vexti. Fjármálaráðherra segir verk- efnin svo stór að ekki verði komist hjá því að hækka tekjuskattinn og óbeina skatta einnig strax á næsta ári. »Forsíða og 4 Boruðu niður í bergkviku  Borað var niður í bráðið berg á 2,1 km dýpi við venjubundna borun á miðvikudag við Kröflu við Mývatn, en þar fer fram djúpborunarverk- efni. Óvíst er hvort haldið verður áfram með verkefnið, en kostnaður við það gæti nú numið yfir einum milljarði króna. » 4 Konungur poppsins allur  Bandaríski söngvarinn Michael Jackson lést á sjúkrahúsi í Los Ang- eles í gær. Jackson sem var fimm- tugur fékk hjartaáfall á dvalarstað sínum í borginni og var meðvitund- arlaus þegar sjúkraliðar komu að honum. Söngvarinn var við æfingar í borginni vegna fyrirhugaðs tónleika- ferðalags. »35 SKOÐANIR» Staksteinar: Ögmundur „komm- únisti“ Forystugrein: Ný þjóðarsátt? Pistill: Samræmd próf Ljósvaki: Spenna fremur en blóð UMRÆÐAN» Smánarlegt og lítilmannlegt Byltingarferlið Þakkarvert grettistak Opið bréf til siðanefndar Banaslysum fækkar í Frakklandi Bílar umferðardóna gerðir upptækir Keppir kona á Formúlu 1 næsta ár? Kreppan krefst Karmanns BÍLAR»                        !    " # $ %  %  " &' ("' "  ) *+,-./ +/0-+1 **/-*2 +1-.34 *.-4.3 *4-*13 **4-3* *-1+42 *.,-/0 *,0-1* 5 675 +2# 89: +//. *+0-+* +/0-,3 **/-3, +3-/*4 *.-,2+ *4-*0* **4-,3 *-11/3 *.,-4, *,0-0* +1/-.+2, &  ;< *+0-2+ +/.-+2 **/-,. +3-/04 *.-0*/ *4-++0 **,-/, *-1131 *.0-+4 *,.-1* Heitast 20 °C | Kaldast 10 °C Hægur vindur, úr- komulítið og léttir smám saman til. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. » 10 Birgir Örn Stein- arsson er ekki hrif- inn af nýju nafni Tónlistarhússins og segir það pólitískt þvaður. »36 LISTIR» Af hverju Alþýðuhöll? TÓNLIST» Snorri úr Sprengjuhöll- inni gerir sólóplötu. »33 Alþjóðleg verðlaun fyrir landslags- arkitektúr verða veitt stofunni McGregor í Nor- ræna húsinu í dag. »32 LISTIR» Topos-verð- launin veitt KVIKMYNDIR» Farrah Fawcett úr Char- lies Angels látin. »38 TÓNLIST» Söngbók Gunna Þórðar flutt af Sinfó. »32 Menning VEÐUR» 1. Michael Jackson látinn 2. Fjölskylda á hringekjunni 3. Mega baða sig topplausar 4. Jarðskjálfti fannst  Íslenska krónan stóð í stað »MEST LESIÐ Á mbl.is FJÓRIR framhaldsskólanemendur úr skólum víðsvegar af landinu leysa erfiðar þrautir tengdar lög- málum eðlisfræðinnar þessa dag- ana. Nemarnir þjálfa stíft fyrir Ól- ympíuleikana í eðlisfræði sem er alþjóðleg keppni framhaldsskóla. Íslendingar þykja frumlegir og frjóir og óttast ekki fikt við skrýtin tæki og tól. | 13 Æfa eðlisfræði Auglýsingadeild Morgun- blaðsins verður opin alla virka daga frá kl. 8-17, en lokuð um helgar. Netfang auglýsinga- deildar er augl@mbl.is, sími 569-1100. Sumaropnunartími auglýsingadeildar SHELLMÓT 6. fl. karla í fótbolta er einn af hápunktum sumarsins hjá fótboltastrákum á aldrinum 9-10 ára. Mótið hófst í gær og eru rúmlega 100 lið skráð til leiks og er það mikil fjölgun liða frá því í fyrra. Um 1.000 keppendur sýna takta og tilþrif næstu daga í Eyjum líkt og í þessum leik Aftureldingar og FH. Taktar og tilþrif í Eyjum Einbeittir fótboltastrákar á Shell-móti ÍBV Ljósmynd/Sigfús Gunnar Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is HITABYLGJAN, sem spáð er á landinu um helgina, mun nær örugg- lega tryggja það að hitinn fari upp fyrir 20 stigin í fyrsta skipti á þessu ári. Árið 1979, eða fyrir réttum 30 ár- um, gerðist það síðast að hiti fór aldrei yfir 20 stig á veðurathugunar- stöð á landinu fyrstu sex mánuði árs- ins. Þar áður gerðist það árin 1961 og 1952. Er að keppa við árið 1994 Því má segja að árið 2009 rétt sleppi, því 1. júlí er á þriðjudaginn. Eins má segja að árið í ár sé að keppa við árið 1994, en þá komst hiti ekki í 20 stig fyrr en síðasta dag júní- mánaðar. Ýmsir hafa haft orð á því að sum- arið hafi verið kalt það sem af er. En ef tölfræðin er skoðuð kemur annað í ljós. Þannig var hitinn í maí vel yfir meðallagi á landinu öllu og það sem af er júní er hitinn yfir meðallagi á öllum helstu veðurathugunarstöðv- unum, samkvæmt samantekt Trausta Jónssonar veðurfræðings, sem er mestur sérfræðingur á sviði veðurtölfræðinnar. Þannig var hit- inn 24 fyrstu dagana í júní 0,5 stigum yfir meðallagi í Reykjavík, 0,9 stig- um yfir meðallagi í Stykkishólmi, 0,3 á Akureyri, 0,6 á Dalatanga og 1,0 gráðu á Stórhöfða í Vestmannaeyj- um. Trausti hefur aðgengilegan dag- legan meðalhita frá árinu 1949, eða í 60 ár. Í Reykjavík var meðalhitinn fyrstu 24 daga júní 9,1 stig sem þýðir 25. sæti síðustu 60 árin. Sex hlýjustu tímabilin eftir 2001 lenda á „topp 10“ listanum og þar kann að liggja skýr- ingin á því af hverju fólki finnst júní kaldur að þessu sinni, að mati Trausta. Efst á listanum tróna fyrstu 24 dagarnir í júní árið 2003, þegar meðalhitinn var 11,2 stig. Þar næst kemur árið 2002 með 11,0 stig, árið 2008 með 10,6 stig og 1954 með 10,5 stig. Neðst á listanum er júní ár- ið 1992, þegar meðalhitinn var aðeins 7,6 stig. Júní yfir meðallagi  Fólk orðið svo góðu vant að því finnst sumarið hafa verið kalt til þessa  Hitabylgjan um helgina hækkar meðaltalið Í HNOTSKURN »Sólskinsstundir í Reykja-vík eru fáar, aðeins 121,4 til og með 23. júní. »Þetta er nokkuð undirmeðallagi, en langt frá botninum sem var 1988, en þá mældust sólskinsstundir 1. til 23. júní aðeins 48. »Úrkoma er ekki fjarrimeðallagi í Reykjavík. MERKISSVEITIN Jethro Tull mun halda tónleika í Háskólabíói 11. september næstkomandi. Þetta eru einu tónleikarnir af þessari stærð- argráðu sem tilkynnt hefur verið um í ár. Að sögn tónleikahaldara eru tónleikarnir að undirlagi leið- toga sveitarinnar, Ians Anderson, en Íslandsáhugi hans hefur víst ágerst með árunum. Hann kemur því hingað á eigin kostnað og miða- verði er stillt í hóf. Mögulegur ágóði rennur til fórnarlamba hér- lendrar efnahagskreppu, en Ander- son varð víst sleginn er hann upp- lifði hörmungarnar sem steyptust yfir þjóðina síðasta haust. | 33 Jethro Tull til Ís- lands í september Leiðtogi Ian Anderson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.