Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
LÖGIN um strandveiðar hafa öðlast
gildi og í gær undirritaði Jón Bjarna-
son sjávarútvegsráðherra reglugerð
um veiðarnar. Hægt er að sækja um
leyfi til strandveiða á heimasíðu
Fiskistofu og hafa allmargar beiðnir
borist nú þegar, að sögn Auðuns
Ágústssonar, forstöðumanns veiði-
heimildasviðs. Telur Auðunn ekki
útilokað að fyrstu leyfin verði gefin
út í dag. Strandveiðar eru bannaðar
föstudaga og laugardaga og geta
veiðarnar því hafist í fyrsta lagi á
sunnudaginn.
Strandveiðarnar eru frjálsar
handfæraveiðar með allnokkrum
takmörkunum. Eins og fram hefur
komið í fréttum hefur verið mikill
áhugi á þessum veiðum og síminn
varla stoppað hjá Fiskistofu. Stofn-
unin hafði áætlað að um það bil 350
smábátar myndu stunda veiðarnar í
sumar. Hver endanlegur fjöldi veiði-
leyfa verður mun ekki skýrast fyrr
en að allnokkrum dögum liðnum.
Það kann að hafa áhrif á fjölda um-
sókna að upphaf strandveiðanna hef-
ur dregist um einn mánuð frá því
sem upphaflega var ætlað. Veiði-
tímabilið mun því einungis vera tveir
mánuðir í sumar.
Afgreiddar í réttri röð
Umsóknir um veiðileyfi til strand-
veiða verða afgreiddar í þeirri röð
sem þær berast og Fiskistofa tekur
fram að ekki sé leyfilegt að hefja
veiðarnar fyrr en veiðileyfið er kom-
ið um borð í bátinn. Gjald fyrir veiði-
leyfið er 17.500 krónur.
Samkvæmt reglugerðinni verður
heimilt að veiða alls 3.955 lestir af
óslægðum þorski. Kvótanum verður
skipt á fjögur landsvæði. Sama fiski-
skipi verður aðeins veitt leyfi frá
einu landsvæði á fiskveiðiárinu og
útgerð skips verður að eiga heimilis-
festi samkvæmt þjóðskrá eða fyrir-
tækjaskrá ríkisskattsjóra á því land-
svæði.
Hver veiðiferð skal eigi standa
lengur en 14 klukkustundir. Miðað
er við þann tíma er fiskiskip lætur úr
höfn til veiða til þess er það kemur til
hafnar aftur til löndunar. Aðeins er
heimilt að fara í eina veiðiferð á
hverjum degi.
Fiskiskip skal hafa sjálfvirkan
fjareftirlitsbúnað um borð og er hin
sjálfvirka skráning lögð til grund-
vallar við útreikning sóknar.
Aldrei er heimilt að hafa fleiri en
fjórar handfærarúllur um borð. Þá
skulu engin önnur veiðarfæri en
handfærarúllur vera um borð.
Á hverju fiskiskipi er aðeins heim-
ilt að draga 800 kg af kvótabundnum
tegundum, miðað við óslægðan afla, í
hverri veiðiferð.
Fyrstu strandveiði-
leyfin gefin út í dag?
Fiskistofa er byrjuð að taka við umsóknum frá trillukörlum
Jón Bjarnason gaf í gær út reglu-
gerð um byggðakvóta fyrir yfir-
standandi fiskveiðiár og nemur
hann allt að 3.083 þorskígildis-
lestum af botnfiski.
Kvótanum á að ráðstafa til
minni byggðarlaga sem lent hafa í
vanda vegna samdráttar í sjávar-
útvegi og háð eru veiðum og/eða
vinnslu á botnfiski.
Einnig skal ráðstafa honum til
byggðarlaga sem orðið hafa fyrir
óvæntri skerðingu á heildarafla-
heimildum fiskiskipa sem gerð
hafa verið út og landað hafa afla í
viðkomandi byggðarlögum og sem
veruleg áhrif hefur haft á atvinnu-
ástand í byggðarlögunum, eins og
segir í reglugerðinni. Heimilt er að
ráðstafa aflaheimildum sam-
kvæmt þessum lið til allt að
þriggja ára í senn.
Aflaheimildir skiptast þannig á
eftirtaldar botnfisktegundir, mið-
að við slægðan fisk:
Þorskur 1.420 lestir, ýsa 1.590
lestir, ufsi 1.111 lestir og steinbítur
239 lestir.
Byggðakvótinn í ár verður 3.083 lestir
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Undirskrift Jón Bjarnason undirritaði reglugerðina um strandveiðar við Reykjavíkurhöfn í gær.
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
NÝ SENDING
Kjóll kr. 8900
litir: blátt, hvítt, rautt og svart
Ermar kr. 7900 – fleiri litir
Seljum og merkjum fatnað,
húfur og töskur.
Vel merkt vara er góð auglýsing
Bróderingar
og silkiprentun
www.batik.is • sími: 557 2200
Laugavegi 54,
sími 552 5201
20%
afsláttur
af öllum vörum
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Salou
frá kr. 69.950
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð til Salou á Spáni 10. og 17. júlí.
Salou er einn allra fallegasti bær Costa Dorada strandarinnar, sunnan
Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmtigarður
Spánar. Stórkostlegar strendur, fjölbreytt aðstaða, úrval veitingastaða og
litríkt næturlíf. Í boði er gisting á Cye Holiday Centre sem er okkar vin-
sælasta íbúðahótel í Salou sem býður góðan aðbúnað, frábæra staðsetn-
ingu og fjölbreytta þjónustu í sumarfríinu.
Frábær kostur. Fjölbreytt þjónusta og stutt á ströndina.
Verð frá kr. 69.950
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára í íbúð á Cye Holiday
Centre í viku. Verð m.v. 2 í íbúð kr.
79.950. Aukavika kr. 25.000.
Sértilboð 10. og 17. júlí.
Frábær sértilboð
Cye Holiday Centre ***
· Frábær staðsetning
· Góður aðbúnaður
· Fjölbreytt þjónusta
10. og 17. júlí
Ótrúlegt verð - aðeins örfáar íbúðir í boði
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík,
sími 568 2870 – www.friendtex.is
ÚTSALA
Opið mán.-fös. frá kl. 11.00-18.00
laugardaga frá kl. 11.00-16.00
Nú er hægt að gera
skemmtilega
góð kaup