Morgunblaðið - 26.06.2009, Qupperneq 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009
Heimilisbókhaldið er í Einkabankanum þér að kostnaðarlausu.
Kynntu þér málið á landsbankinn.is.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
7
6
7
5
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t.
4
7
10
0
8
-2
0
8
0
.
EINKABANKINN | SJÁLFVIRKT HEIMILISBÓKHALD
Með einum smelli
í Einkabankanum
sérðu þína köku
• Fyrsta sjálfvirka heimilisbókhaldið
• Enginn innsláttur í Excel og engir útreikningar
• Þú velur hvaða reikningar og kort mynda kökuritið
• Færslurnar eru flokkaðar fyrir þig
• Hægt er að endurnefna og endurflokka færslur
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
„ÍSLENSKU keppendunum hefur
gengið sérstaklega vel í verklega
hluta keppninnar. Það sem vantar
upp á „teóríu“ bæta þeir upp með
frumlegri og skapandi hugsun,“
segja eðlisfræðikennararnir og þjálf-
arar Ólympíuliðanna til margra ára,
þau Viðar Ágústsson og Ingibjörg
Haraldsdóttir.
„Þeir eru líka óhræddir við að
fikta sig áfram, eru ekki hræddir við
tæki og tól,“ bætir Viðar við. „Ætli
það komi ekki til af því hvað við erum
illa upp alin, allavega ekki eins
strangt og í öðrum löndum,“ segir
Kristinn Kristinsson, keppandi frá
Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Brandur Þorgrímsson, nemi í MA,
segist hafa verið iðinn við að taka
heimilistæki í sundur og stundum
hafi reynst snúið að setja þau saman
aftur. Aðrir keppendur kannast við
að hafa skemmt sér við þessa iðju.
Vatnsmyllur og hvirfilbyljir
Ingibjörg og Viðar segja dæmin
og þrautirnar sem leysa þarf vera á
háskólastigi og að þátttakendur
þjálfi stíft í heilan mánuð í Háskóla
Íslands fyrir keppnina og á meðan sé
lítið hægt að sinna öðru. Einungis
keppandinn frá Reykjavík, Elías
Heimisson, nemi í MR, fær greidd
laun frá borginni á meðan. Hinir
þátttakendur hafa fengið einhverja
styrki, en það dugar skammt. Þeir
eru þó sammála um að þetta sé þess
virði en það myndi þó vafalítið létta
áhyggjum af foreldrunum ef þeir
fengju greiddar ferðir og einhver
laun.
Davíð Örn Þorsteinsson segir
Kaupfélag Sauðkrækinga hafa
styrkt sig með 50 þúsundum krón-
um, en hann vinnur í bygginga-
vörudeildinni hjá þeim með skól-
anum. Hann segir
eðlisfræðikunnáttuna ekki koma
mikið að notum í starfinu. Þess verð-
ur þó kannski ekki langt að bíða að
frumleg hugsun hans byggð á lög-
málum eðlisfræðinnar nýtist kaup-
félaginu!
Ingibjörg og Viðar, sem hafa sótt
marga Ólympíuleikana með íslensku
keppendunum, segja dæmin og
þrautirnar oft „svínslega“ erfið en
jafnframt skemmtileg. Oft séu þau
hagnýt og lýsandi fyrir landið sem
heldur leikana. Á Ólympíuleikunum
í Víetnam hafi verið þrautir með
vatnsmyllur til að vinna hrísgrjón.
Þá hafi verið sett upp dæmi tengt
mengun og fjölda mótorhjóla í
Hanoi. Þegar keppnin var haldin hér
á landi árið 1998 var sett upp dæmi
tengt eldgosi undir jökli. Dæmi
tengd hvirfilbyljum þóttu ekki ólík-
leg í keppninni í Mexíkó.
Frumleg og skapandi
hugsun skiptir öllu
Ólympíuleikarnir í eðlisfræði eru alþjóðleg keppni framhaldsskólanema
Fjórir íslenskir nemar úr jafnmörgum skólum æfa stíft fyrir keppnina
Þjálfarinn Ingibjörg Haraldsdóttir eðlisfræðikennari hefur þjálfað margan
þátttakandann, og sótt marga Ólympíuleikana ásamt Viðari Ágústssyni
Morgunblaðið/Heiddi
Eðlisfræðisnillingar Davíð Örn, Kristinn, Brandur og Elías óttast ekki fikt við flókin tæki.
Ólympíuleikarnir í eðlisfræði
eru árleg keppni framhalds-
skólanema í fræðilegri og
verklegri eðlisfræði. Fjórir ís-
lenskir framhaldsskólanemar
frá jafnmörgum skólum taka
þátt í leikunum sem verða
haldnir 12.-19. júlí í háskól-
anum í Merida á Yucat-
anskaga í Mexíkó. Þetta er í
26. sinn sem við tökum þátt í
leikunum sem voru haldnir
hér heima árið 1998. Allajafna
taka um 400 keppendur frá
um 80 löndum þátt í leik-
unum. Íslendingum hefur
gengið vel öll árin og tvisvar
komið heim með brons-
verðlaun. Keppendur eru vald-
ir í landskeppni. Um fjórtán
eru valdir í forval og úr þeim
hópi fjórir til fimm sem fara
alla leið.
Eðli leikanna
SAMTÖKIN Raddir fólksins standa
fyrir útifundi á Austurvelli á morg-
un, 27. júní, klukkan 15.
Kröfur samtakanna eru að Ice-
save-samningurinn verði stöðv-
aður, sinnuleysi stjórnvalda í mál-
efnum heimila og fyrirtækja er
mótmælt og þess er krafist að þeg-
ar í stað verði réttað yfir „hvít-
flibbaglæpamönnum“.
Ræðumenn á morgun eru m.a.
Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur
og Guðmundur Magnússon, vara-
formaður Öryrkjabandalagsins.
Raddir fólksins boða
enn til útifundar
ÁKVÖRÐUN
heilbrigðisráð-
herra um leigu á
vannýttum skurð-
stofum Heilbrigð-
isstofnunar Suð-
urnesja er ekki
væntanleg fyrr en
15. ágúst. Óvíst er
hver sú ákvörðun
verður. Þetta seg-
ir Árni Sigfússon, bæjarstjóri og
stjórnarformaður Heilsufélags
Reykjaness, sem ræddi við ráðherra í
gær. Árni kveðst hafa áhyggjur af því
að verkefnið tefjist, það sé þarft og
áhugavert.
„Ég hef sagt að þetta er ekki álver
heldur heilbrigðisþjónusta. Við höf-
um talið að þetta væri jákvætt fyrir
okkar samfélag, og að það myndi
styrkja Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja að nýta skurðstofurnar,“ seg-
ir Árni og tekur sem dæmi að aukin
nýting á skurðstofunum myndi styðja
við fæðingarþjónustu á svæðinu.
Verkefnið snýst um að Heilsufélag
Reykjaness, Salt Investments og
norræna heilbrigðisfyrirtækið Nor-
dhus medical vilja leigja skurðstof-
urnar til að skera upp norræna sjúk-
linga sem eru á biðlistum í heima-
landinu. halldorath@mbl.is
Ráðherra
mun svara
15. ágúst
Árni Sigfússon
Ekki álver heldur
heilbrigðisþjónusta
SVANDÍS Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra hefur skipað aðgerðar-
hóp til að berjast gegn utanvega-
akstri á Reykjanesi og lagfæra þær
skemmdir sem þegar hafa orðið.
Hægt er að skoða myndir af ljót-
um gróðurskemmdum af völdum
bíla og mótorhjóla á sérstökum vef,
sites.google.com/a/ust.is/
reykjanesfolkvangur.
Gegn utanvega-
akstri á Reykjanesi