Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 25
Minningar 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009
Einar
Jónasson
✝ Einar Jónassonfæddist á Ísafirði
10. júní 1948. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í Kópa-
vogi 13. maí síðastlið-
inn og var jarðsung-
inn frá Seljakirkju 28.
maí.
Meira: mbl.is/minningar
Sigurbjörg
Hallgrímsdóttir
✝ Sigurbjörg Hall-grímsdóttir
fæddist í Gríms-
húsum í Aðaldal 10.
júlí 1931. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga 9. júní
síðastliðinn og var út-
för hennar gerð frá Neskirkju í Aðaldal
16. júní.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
Selhellu 3 Hafnarfirði
Sími 517 4400 • www.englasteinar.is
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARÍA RAGNARSDÓTTIR,
Skógargötu 1,
Sauðárkróki,
verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugar-
daginn 27. júní kl. 11.00.
Ola Aadnegard, Stína Gísladóttir,
Magnús Aadnegard, Kristín Pálsdóttir,
Sigrún Aadnegard, Andrés Viðar Ágústsson,
Kristinn Aadnegard, Ása Björk Snorradóttir,
Sigurður Aadnegard, Sigríður Pétursdóttir,
Knútur Aadnegard, Brynja Kristjánsdóttir,
Jóhann Aadnegard, Eva Sveinsdóttir,
Baldur Aadnegard, Sigríður Jónsdóttir,
Guðríður Aadnegard, Magnús J. Hinriksson,
Ingibjörg Aadnegard, Trausti Kristjánsson,
Stefán Aadnegard, Ingibjörg Ólafsdóttir,
Hilmar Aadnegard, Hallfríður Guðleifsdóttir,
ömmubörn og fjölskyldur.
✝
Eiginmaður minn,
JÓN ÍSBERG
fyrrv. sýslumaður í Húnavatnssýslu,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 24. júní.
Þórhildur Ísberg.
✝
SOFFÍA S. BRIEM,
Hraunvangi 7,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði mánudaginn 22. júní.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu
mánudaginn 29. júní kl. 13.00.
Börnin.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
móður minnar, tengdamóður og ömmu,
EMELÍU STEFÁNSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Hlíð,
áður til heimilis
Hrafnagilsstræti 19,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á dvalarheimilinu Hlíð
fyrir góða umönnun.
Anna Jóna Jóhannsdóttir, Einar Jón Briem,
Mendanita Eyrún Cruz
og barnabörn.
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
FANNEY MAGNÚSDÓTTIR,
lést á Sólvangi Hafnarfirði mánudaginn 22. júní.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 29. júní kl. 15.00.
Anna Magnea Ólafsdóttir, Þórarinn Sigvaldi Magnússon,
Tryggvi Ólafsson, Theódóra Gunnlaugsdóttir,
Lára Ólafsdóttir, Sveinn Andri Sigurðsson
og ömmubörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
SIGURJÓNS INGÓLFSSONAR
frá Skálholtsvík,
Sléttuvegi 13,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar B2 á
Landspítalanum í Fossvogi og L5 á Landspítalanum Landakoti
fyrir frábæra umönnun, hlýhug og virðingu.
Sigfríður Jónsdóttir,
Þorgerður Sigurjónsdóttir, Gunnar Benónýsson,
Anna Sigurjónsdóttir, Guðjón Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Þorbjörg Hólm-fríður Sigurjóns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 12. apríl
1918. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 17. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Sig-
urjón Jónsson bók-
sali, f. 27. júní 1882,
d. 19. nóvember 1957
og Guðlaug Ragn-
hildur Árnadóttir, f.
4. maí 1891, d. 21.
nóvember 1947.
Systkini Þorbjargar eru: Gunnar,
f. 4. september 1913, d. 19. nóv-
ember 1980; Árni, f. 22. febrúar
1916, d. 2. júlí 1999; Jóna, f. 14.
júlí 1920, d. 13. júlí 1999; og Svan-
laug, f. 20. júní 1923.
ur börn. c) Árný Vigfúsdóttir, f.
29. apríl 1976, gift Svavari Herði
Heimissyni, hún á þrjú börn. 3)
María, f. 5. febrúar 1954, gift
Grími Andréssyni. Börn þeirra
eru: a) Rósa, f. 24. mars 1987. b)
Friðrik, f. 16. desember 1988.
Þorbjörg ólst upp á Þórsgötu 4
þangað til hún stofnaði sitt eigið
heimili sem hún sinnti af alúð alla
tíð. Hún var í kvöldskóla K.F.U.M.
1932-33 eftir skyldunám. Þor-
björg var félagi í kristilegu starfi
á vegum K.F.U.M. & K. og
Kristniboðssambandsins. Hún var
einnig félagi í kvennadeild Gí-
deonfélagsins frá 1977. Söngur
var hennar aðaláhugamál og vitn-
isburður.Var hún í ungmeyja-
kórnum og söng bæði í kvennakór
K.F.U.K. og blönduðum kór félag-
anna. Þau hjónin bjuggu lengst af
á Kirkjuteigi en síðustu árin bjó
Þorbjörg hjá dóttur sinni í Mið-
túni 80.
Útför Þorbjargar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 26. júní, og
hefst athöfnin klukkan 11.
Meira: mbl.is/minningar
Hinn 27. maí 1939
giftist Þorbjörg,
Friðriki Vigfússyni,
f. 4. júlí 1913, d. 1.
ágúst 2000. For-
eldrar hans voru
Vigfús Guðbrands-
son klæðskeri og
María Sigurð-
ardóttir. Dætur
þeirra eru: 1) Guð-
laug, f. 23. apríl
1945, d. 27. apríl
1945. 2) Guðlaug, f.
28. október 1947,
gift Ragnari Gylfa
Einarssyni. Hún á þrjú börn. Þau
eru: a) Lilja Klein, f. 5. júní 1965,
í sambúð með Hauki Árnasyni,
hún á einn son. b) Karl Georg
Klein, f. 5. ágúst 1969, í sambúð
með Írisi Ólafsdóttur, hann á fjög-
Elsku amma Obba, nú þegar þú ert
farin er auður stóll við borðið, efri
hæð sem er tóm og hola í hjarta okkar
allra. Enginn getur fyllt þessi skörð,
því að þú ert og verður alltaf amma
okkar, fimmti meðlimur fjölskyld-
unnar. Þrátt fyrir að sjón þín og
heyrn væru farin að gefa sig, varstu
alltaf með á nótunum varðandi gang
og hag fjölskyldunnar, enda varstu
ætíð svo tónelsk og jafnvel farin að
hlusta á djass, sem kom ekki til
greina áður fyrr enda hafði klassíkin
alltaf verið í mestu uppáhaldi hjá þér.
Þú kenndir Fidda að spila á gítar og
hvattir hann til þess að feta tónstig-
ann, enda var gítarinn þér svo hug-
leikinn. Þú slóst á strengi lífs þíns
sem veittu þér ómælda gleði og síðan
spilaðir þú síðustu nóturnar á lífsgít-
ar þinn. Það var kynngimagnað að
fylgjast með því hvernig kona sem
var komin svo langt á efri ár, gat enn
víkkað sjóndeildarhring sinn. Þú
kenndir okkur öllum að vera guðræk-
in, undirstrikaðir mörg vers í Biblí-
unni sem var þín uppáhaldsbók og
varst blessuð með mörgum barna-
börnum og barnabarnabörnum. En
stærsta blessunin var þó sú að eiga
þig sem ömmu og að geta alltaf haft
athvarf hjá þér öll mikilvægustu árin.
Sjónin kom ekki í veg fyrir að þú
myndir missa af einum einasta merk-
isviðburði, hvort sem það var í fjöl-
skyldunni eða á lands- og heimsvísu.
Við dáðumst að því hversu ung þú
varst í anda, enda var heilinn ávallt í
lagi.
Um nóttina þegar við héldum að
við hefðum misst þig fyrir fullt og allt,
gafstu okkur annað tækifæri til þess
að hitta þig og aðeins lengri tíma til
þess að vera með þér. Það var mikil
blessun og fyrir það erum við þér æv-
inlega þakklát, þó að það hafi verið
harmþrungið að sjá þig þjást svona
mikið undir það síðasta.
Við trúum því ekki enn að þú sért
farin. Við eigum enn von á því að þú
gangir niður stigann, setjist að borð-
um hjá okkur og að þegar við göngum
upp stigann þá heyrum við klassísku
tónlistina berast úr herbergi þínu, að
þú sért að hlusta á einhverja fræðandi
bók eða horfa á fréttirnar. Það var því
harla einmanalegt að þú skyldir ekki
vera með okkur þennan sautjánda
júní til þess að sjá landsleikinn en það
er huggun að vita af því að þú vakir
yfir okkur, með afa þér til hægri
handar og fjölskylduna þína og vini til
þeirrar vinstri, þar sem þið öll hvetjið
fjölskylduna og landsliðið til dáða.
Við getum vel séð fyrir okkur, hvar
þú situr í hægindastólnum þínum með
áfasta fótskemilinn, sem þú átt hér
heima og sýpur á uppáhaldinu þínu,
kóka kóla, og færð þér smábita af
súkkulaði, nú með fullkomna sjón,
heyrn og heilsu, til þess að fylgjast
með ört stækkandi fjölskyldunni.
Þakka þér fyrir allan stuðninginn,
matinn, kennsluna og allt hið góða
sem þú hefur veitt okkur öllum á þinni
löngu ævi. Með tíð og tíma mun ein-
hver setjast í stólinn þinn, einhver
flytja á hæðina og holan í hjartanu
fyllist. En þetta verður allt holt að
innan, þar til við munum einn daginn
sjást á ný.
Ástarkveðjur, þín barnabörn,
Rósa Grímsdóttir og Friðrik
Grímsson (Fiddi).
Elsku besta amma.
Þegar við lítum til baka og rifjum
upp öll árin með þér, sjáum við hversu
einstaklega heppin við vorum að eiga
þig sem ömmu. Þú varst svo hlý og
hjartagóð og væntumþykjan til okkar
allra var mikil.
Í okkar huga varst þú hin full-
komna amma, alltaf til staðar og dekr-
aðir við okkur. Aldrei fórum við svöng
frá ykkur afa og alltaf töfraðir þú
fram hlaðborð þegar við birtumst á
Kirkjuteig. Amma, þú varst einstak-
lega iðjusöm, alltaf að og stoppaðir
aldrei en hafðir alltaf tíma fyrir okk-
ur.
Hógværð, reglusemi og trúrækni
var þér eðlislæg og var okkur góð fyr-
irmynd. Eitt af því voru bænirnar
sem þú kenndir okkur og baðst með
okkur þegar við gistum hjá ykkur afa.
Þú kenndir okkur og leiðbeindir
með allt sem við tókum okkur fyrir
hendur, hvort sem það voru venjur og
siðir eða gafst þér tíma til að hlusta á
okkur þegar við vorum í tónlistar-
námi, því þú hafðir svo gott tóneyra.
Elsku amma, nú kveðjum við þig
með söknuði og þökkum fyrir allt sem
þú gafst og gerðir fyrir okkur. Guð
blessi þig.
Allt sem faðirinn gefur mér mun koma
til mín og þann sem til mín kemur mun
ég alls eigi brott reka.
(Jóh. 6.37.)
Lilja, Karl og Árný.
Elskuleg móðursystir mín Þor-
björg Hólmfríður Sigurjónsdóttir lést
á Landspítalanum í Fossvogi 17. júní
sl. eftir stutt og erfið veikindi. Mikið
og náið samband var alltaf á milli Þor-
bjargar, sem alltaf var kölluð Obba og
systkina hennar. Það helgaðist ekki
síst af staðfastri trú þeirra allra á
frelsarann Jesú Krist sem þau fengu
að kynnast á æskuheimili sínu að
Þórsgötu 4 í Reykjavík og í kristilegu
félögunum KFUM og KFUK.
Obba og systkinin öll höfðu mikið
yndi af tónlist og þá einkum kristi-
legri tónlist sem tengdist félögunum.
Obba og móðir mín Svana sungu mik-
ið saman hér á árum áður og spiluðu
undir á gítar. Jóna systir þeirra söng
einnig með þeim, einkum í upphafi en
hennar þátttaka minnkaði þegar hún
flutti út á land. Bræður þeirra tóku
einnig virkan þátt í tónlistinni með
þeim. Árni söng og Gunnar lék undir á
píanó. Það er ekki langt síðan að þær
systur Obba og móðir mín spiluðu
saman á gítar og sungu. Mamma spil-
aði á kassagítar en Obba á rafmagns-
gítar. Við eigum mynd af þeim og er
sú mynd alveg dásamleg. Það fylgir
því mikill söknuður að þurfa að kveðja
yndislega konu en við þökkum allar
góðu minningarnar. Ég bið góðan
Guð að styrkja og vera með fjölskyldu
Obbu og blessa minningu hennar.
Ólöf Inga Heiðarsdóttir
Þorbjörg Hólmfríður
Sigurjónsdóttir
Fleiri minningargreinar um Þor-
björgu Hólmfríði Sigurjóns-
dóttur bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.