Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 26
26 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009
✝ Guðrún ÁgústaSigurjónsdóttir
fæddist á Lambalæk í
Fljótshlíð 20. desem-
ber 1919. Hún lést á
dvalarheimilinu
Kirkjuhvoli á Hvols-
velli 17. júní 2009.
Foreldrar hennar
voru Sigurjón Þórð-
arson, f. 22.8. 1891, d.
18.10. 1971, og Guð-
björg Gunnarsdóttir,
f. 2.11. 1888, d. 15.1.
1973. Sigurjón og
Guðbjörg bjuggu
lengst af á Lambalæk. Systkini Guð-
rúnar eru: Gunnar Þórarinn, f.
12.11. 1914, d. 18.11. 2003, Ingi-
björg, f. 5.3. 1916, d. 16.1. 2001, Ingi-
leif Þóra, f. 16.6. 1917, d, 9.1. 2003,
Pálína, f. 14.7. 1918, Sigurbjörg, f.
8.9. 1921, Jónína Guðrún, f. 31.3.
1923, d. 28.1. 1966, Ólafur Gústaf, f.
28.10. 1925, d. 29.9. 1996, og Maríus,
f. 17.5. 1928, d. 12.7. 1928.
Hinn 15. september 1945 giftist
Guðrún Guðmundi Gunnarssyni, f.
26. mars 1916. Foreldrar hans voru
Gunnar Guðmundsson
og Guðrún Eiríks-
dóttir frá Moshvoli í
Hvolhreppi. Börn
þeirra eru: 1) Dreng-
ur, f. 1.2. 1946, d. 9.3.
1946. 2) Gunnar, f.
11.6. 1947, maki Björg
Sigurjónsdóttir, f.
22.8. 1951. Börn
þeirra eru: a) Pálmi, f.
30.6. 1972. Maki Sig-
ríður Ágústsdóttir
Morthens, f. 25.6.
1968. Börn: Bergrós,
Ágúst og Adam. b)
Erla, f. 11.6. 1978. Sambýlismaður
Bjarki Kristjánsson, f. 11.9. 1976.
Dóttir Aníta Ósk. 3) Hákon Mar, f.
9.12. 1949, d, 21.7. 1954. 4) Guð-
björg, f. 6.5. 1953, maki Sæmundur
Holgersson, f. 8.5. 1946. Börn þeirra
eru: a) Pétur Snær, f. 1.2. 1977. Sam-
býliskona Magdalena Margrét Ein-
arsdóttir, f. 10.8. 1976. Börn Guð-
björg Anna og Einar. b) Guðmundur
Ágúst, f. 19.6. 1979. c) Holger Páll, f.
23.8. 1988. 5) Hákon Mar, f. 12.7.
1956, maki 1 Halldóra Kristín Magn-
úsdóttir, f. 25.6. 1957. Börn þeirra: a)
Berglind, f. 25.8. 1979. Maki Einar
Viðar Viðarsson. Börn Hákon Kári
og Védís Ösp. b) Kristrún, f. 5.4.
1986. Maki 2 Jónína Gróa Her-
mannsdóttir, f. 1.7. 1965. Börn Jón-
ínu Gróu og stjúpbörn Hákonar: a)
Helga Guðrún, f. 16.11. 1989, b) Her-
mann Sveinn, f. 19.5. 1993, Lár-
usarbörn.
Guðrún og Guðmundur settust að
á Lambalæk í Fljótshlíð. Þar gætti
Guðrún bús og barna meðan Guð-
mundur vann utan heimilisins við
smíðar á húsum og bílayfirbygg-
ingum. Ekki var um hefðbundinn bú-
skap að ræða en um tíma var verið
með fáeinar kindur og nokkra hesta.
Ávallt var stunduð garðrækt til
heimilisins og var matjurtagarð-
urinn oft á tíðum talsvert fjöl-
breyttur. Árið 1967 tóku hjónin sig
upp og fluttu til Hvolsvallar en þar
fór Guðrún líka að vinna utan heim-
ilisins hjá Prjónastofunni Sunnu við
að sníða og sauma lín og prjónavoð.
Á Hvolsvelli byggði fjölskyldan
myndarheimili með ákaflega fögrum
verðlaunagarði í kring. Á heimilinu
og í garðinum naut einstök natni
þeirra og umhyggja sín mjög vel.
Loks fluttu hjónin að dvalarheim-
ilinu Kirkjuhvoli á vordögum 2003.
Guðrún verður jarðsungin frá
Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð í
dag, 26. júní, kl. 15.
Það var um miðjan vetur rétt fyrir
jólin árið 1919 að lítil stúlka fæddist
nokkru fyrir tímann og var í nettara
lagi, sögð aðeins 6 merkur. Eitthvað
hefur þetta tekið á móður hennar því
nauðsynlegt þótti að gefa henni færi
á að jafna sig. Góð frænka sem var á
staðnum vafði litlu píslina í ullarvoð
og hljóp með hana í vetrarkuldanum
að næsta bæ og hlúði að henni þar.
Var barninu vart hugað líf. Það fór þó
aldeilis á annan veg. Sú litla bragg-
aðist vel, varð atorkumanneskja fram
í háa elli og vantaði aðeins um hálft ár
í að verða níutíu ára er hún lést þann
17. júní síðastliðinn.
Í bernskuminningunni finnst okk-
ur eins og mamma hafi verið að allan
sólahringinn. Hún var í einhverjum
önnum þegar við fórum að sofa og
gjarnan heyrðist diskaglamur úr eld-
húsinu þegar við vöknuðum. Næg
voru verkefnin í sveitinni. Ekki var
hægt að hlaupa í næstu búð til að
kaupa nauðsynjar, því var bjargað
öðruvísi. Mamma var mikil hann-
yrðakona sem ekki einungis bjó til
fallega púða og teppi til skrauts, held-
ur saumaði og prjónaði föt á okkur
krakkana og útbjó sængurföt, dúka
og annað sem vantaði til heimilisins.
Minnisstæð eru nýju náttfötin úr
hveitipokunum á Þorláksmessu og
eftirvæntingin að sjá jólatréð þegar
jólahátíðin gekk í garð og allt var
tilbúið. Á sumrin voru ræktaðir
garðávextir, á haustin útbúið slátur,
matur soðinn niður og saltað kjöt. Á
aðventunni þegar heimarafstöðin
annaði ekki álaginu frá bakarofnum
sjö heimila á sama tíma bakaði
mamma bara á nóttunni þegar aðrir
voru sofnaðir og spennan næg.
Eftir að við vorum sjálf komin með
fjölskyldur var gott að leita til
mömmu ef einhvern vantaði til að líta
eftir börnum okkar og var hún
óþreytandi að sinna þeim og veita fé-
lagsskap. Hún vildi hjálpa öðrum en
átti verra með að þiggja aðstoð.
Skylduræknin og kröfurnar sem hún
setti sér sjálf hljóta að hafa tekið í á
stundum. Matarboð mömmu eru eft-
irminnileg í fjölskyldunni. Á jólum
var kaffiboð þar sem borð svignuðu
undan kræsingum og um hver áramót
útbjó hún matarveislu sem var ekki
síður glæsileg.
Síðustu orkuna notaði hún til að
ljúka við útsaumaða mynd handa sér-
hverju barnabarni. Þær bera vand-
virkninni og eljunni gott vitni.
Mamma var fjölskyldumanneskja
sem naut þess að þjóna sínu fólki. Í
hægð sinni hafði hún sterkar skoðanir
sem okkur þótti sjálfsagt að virða.
Mamma byrjaði svo smá, en varð svo
stór í lífi okkar.
Elsku pabbi, Guð veiti þér styrk.
Gunnar, Guðbjörg og Hákon Mar.
Elsku amma.
Mikið var alltaf gaman að koma til
þín og afa í Stóragerðið, þú varst iðu-
lega að baka krásir eða með eitthvað
á prjónunum. Oftar en ekki fékk ég að
aðstoða við baksturinn, en best þótti
mér auðvitað að fá að smakka deigið.
Best fannst mér að smakka til flat-
kökudeigið og þú skildir nú ekkert í
því að ég gæti borðað það.
Það var auðvitað alltaf boðið upp á
mjólk og kökur ef maður kom við og
maður heyrði eldhúsklukkuna
trekkja sig þegar maður stóð við
gluggann og horfði yfir Gíslahól.
Seinna þegar ég fór í skóla til Reykja-
víkur, passaði ég alltaf upp á að koma
reglulega við hjá ykkur og áttum við
iðulega góðar stundir saman.
Eftir að Sigga kom í fjölskylduna
urðuð þið hinir bestu mátar og gátuð
rætt saman um heima og geima, enda
frændsemin ekki langt undan. Eftir
að börnin fæddust passaðir þú alltaf
upp á að þau ættu prjónaða peysu,
vettlinga eða sokka sem þú gerðir
sjálf og hélst því áfram svo lengi sem
axlirnar dugðu til. Ég átti til að
hringja í þig þegar ég var að flækjast
erlendis vegna vinnu og spyrja þig
vega og þér fannst það alltaf jafn
gaman og hlóst þessi ósköp að því að
ég væri að spyrja þig.
Já, það var oft hlegið í kringum þig
og þú áttir svo margt skemmtilegt
fram að færa, elsku amma.
Elsku amma Gunna, takk fyrir all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
saman og takk fyrir að vera svona hlý
og góð við okkur fjölskylduna.
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástar-augu
ungur réð ég festa,
blómmóðir besta.
(Jón Thoroddsen.)
Pálmi, Sigríður, Bergrós,
Ágúst og Adam.
Guðrún Ágústa
Sigurjónsdóttir
Fleiri minningargreinar um Guð-
rúnu Ágústu Sigurjónsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
✝ Sigríður Páls-dóttir frá
Hvammi í Holtum,
fæddist á Stóru-
Völlum í Landsveit
21. janúar 1926.
Hún andaðist á dval-
arheimilinu Lundi á
Hellu 16. júní 2009.
Foreldrar hennar
voru Páll Jónsson
frá Ægissíðu, f. 10.
jan. 1890, d. 29. okt.
1943 og Sigríður
Guðjónsdóttir frá
Stóru-Völlum, f. 9.
ágúst 1900, d. 26. feb. 1988.
Systkini Sigríðar eru Jens, Jón,
látinn, Óðinn, Þór, látinn, Vall-
aður, látinn, Gunnur, Þýðrún,
Atli, Ragnheiður, Ása og Guðrún.
Sigríður giftist 13. desember
1947 Elimar Helgasyni, f. í
Skammadal í Mýrdal 30. maí
1911, d. 6. mars 1999. Foreldrar
hans voru Helgi Jónasson, síðar
bóndi í Seljalandsseli V-
Eyjafjöllum og Vil-
borg Oddsdóttir frá
Nýjabæ í Landbroti.
Dóttir Sigríðar og
Elimars er Sig-
urbjörg, f. 21. jan-
úar 1957, gift Sveini
Sigurjónssyni, f. 1.
október 1947. Þau
búa á Galtalæk 2 í
Landsveit. Synir eru
Elimar Helgi, í sam-
búð og á tvö börn,
Páll, á konu og tvö
börn, Sigurjón, á
konu og þrjú börn,
Birnir, í sambúð og Víðir, í sam-
búð.
Sigríður fluttist að Hvammi
1947 og bjuggu þau þar í 49 ár.
Elimar veiktist 1995 og fluttist
hún það sama ár í lítið hús á
Hellu.
Útför Sigríðar verður gerð frá
Marteinstungukirkju í Holtum í
dag, 26. júní, og hefst athöfnin
kl. 13
Móðir mín er látin. Hún varð bráð-
kvödd á dvalarheimilinu Lundi á Hellu
16. júní sl. Hafði hún átt við allerfið
veikindi að stríða um nokkurt skeið.
Hún ólst upp í stórum systkinahópi
og var oft mikið fjör á Stóru-Völlum.
Fór að hjálpa til við bústörfin um leið
og hún gat. Hefur alla tíð verið mikið
samband meðal systkinanna og af-
komenda þeirra.
Smá minningabrot komu í hugann.
Eiginleika ýmsa tel,
eldun fyrr á hlóðum,
handavinna, hugans þel,
heimarík á slóðum.
Ljóðum góðum einnig unni,
yndi var að kveðast á,
fjölda mörg hún kvæðin kunni,
kynstrin öll af vísnagná.
Flatkökurnar besta brauð,
bragð í munni lifir.
Blátt í slæðu, blússan rauð
breiddi glingur yfir.
Guð blessi minningu hennar og
þakka skal öllum þeim er aðstoðuðu
hana á einhvern hátt í gegnum árin og
ég bið þeim guðsblessunar.
Sigurbjörg Elimarsdóttir.
Sigríður Pálsdóttir
✝ Guðrún JónaBjarnadóttir
fæddist á Augastöðum
i Hálsasveit 22. ágúst
1912. Hún lést 15. júní
2009. Foreldrar henn-
ar voru Ágústa Jóns-
dóttir og Bjarni Jóns-
son (drukknaði áður
en Guðrún fæddist).
Fóstri hennar var Jón
Ottason.
Fyrstu ár ævinnar
bjuggju þær mæðgur
á Ferstiklu í Hvalfirði
hjá foreldrum Ágústu.
Árið 1920 fluttust þær á Akranes
og bjó Guðrún þar alla tíð síðan
eða í hart nær 90 ár. Hún vann m.a.
við fiskvinnslu og hjá Mjólkurbúi
Akraness og einn vetur nam hún
við Héraðsskólann á Laugarvatni.
Guðrún giftist Þjóðleifi Gunn-
laugssyni, f. 2. okt 1896, d. 16.
ágúst 1972. Eignuðust þau þrjá
syni. 1) Jón Otti, f. 18. maí 1937 d.
21. júní 1944; 2)
Bjarni, f. 29. janúar
1939. Kona hans er
Sigríður Sigtryggs-
dóttir. Bjarni var áð-
ur kvæntur Ingigerði
Þóreyju Guðnadótt-
ur, f. 1940, d. 1982.
Þeirra börn eru fjög-
ur; 3) Davíð, f. 21.
mars 1942. Kona
hans er Guðbjörg El-
ín Ásgeirsdóttir og
eiga þau tvö börn.
Frá árinu 1936
bjuggu Guðrún og
Þjóðleifur við Skólabraut 19, en
1953 reistu þau húsið Skólabraut
23 og ráku þar verslun, með hús-
gögn, fatnað og raftæki, fram á
sjöunda áratug síðustu aldar. Síð-
ustu æviárin bjó Guðrún á Dval-
arheimilinu Höfða.
Útför Guðrúnar verður gerð frá
Akraneskirkju í dag, 26. júní og
hefst klukkan 14.
Það er mikil gæfa að hafa fengið að
vera samvistum við ömmu eins lengi
og raunin var. Sérstaklega þar sem
hún naut góðrar heilsu næstum fram
á síðasta dag.
Að vera barn í Reykjavík og eiga
ömmu sem bjó uppi á Akranesi var
mikið ævintýri. Ég á margar yndis-
legar minningar frá því ég tók Akra-
borgina upp á Skaga og amma tók á
móti mér á höfninni. Alltaf var hún
búin að elda mat sem hefði nægt fyrir
heilt fótboltalið þótt maður væri einn
á ferð.
Við nýttum tímann til að prjóna og
hekla ásamt því að fara í gönguferðir
um Akranes og Langasand. Þaðan
kom maður alltaf vel siðaður, hreinn
og strokinn. Á unglingsárunum þótti
mér hún ganga fulllangt þegar hún
hafði pússað hermannaklossana mína
þar til þeir glönsuðu eins og lakkskór.
Ég hafði lagt mikið á mig til að gera
þá snjáða eins og tíska þess tíma
sagði til um.
Amma hafði mikinn áhuga á garð-
yrkju og fékk að njóta þessa áhuga-
máls í sumarbústaðnum sínum í Hval-
firðinum. Þangað var alltaf gaman að
koma. Á lóðinni gróðursetti hún tré
sem í dag eru orðin svo stór að það
sést ekki í bústaðinn lengur frá veg-
inum. Hún kenndi okkur systrunum
nöfnin á öllum plöntunum sem vaxa á
sumarbústaðarlóðinni. Nýt ég þessa
lærdóms ríkulega í dag.
Amma var frábær hannyrðakona
og prjónaði vettlinga og sokka fyrir
öll barnabörnin í fjölskyldunni fyrir
hver jól. Þessum gjöfum fylgdu alltaf
súkkulaðistykki.
Hún prjónaði sjöl og heklaði dúka
sem voru listaverk og var búin að
flosa „Drottinn blessi heimilið“ fyrir
börn og barnabörn. Amma flosaði eitt
slíkt verk fyrir saumastofuna mína,
en þar stendur „Drottinn blessi
saumastofuna“ . Eitthvað þótti henni
þetta nú vera stílbrot en lét sig þó
hafa það. Verkið vekur stöðugt at-
hygli þeirra sem koma á saumastof-
una. Amma mun lifa í minningum
mínum um ókomna tíð – veganestið
sem hún gaf mér með umhyggju sinni
mun fylgja mér ávallt.
Gerður Bjarnadóttir.
Þegar ég var yngri varði ég miklum
tíma uppi á Akranesi hjá ömmu. Þær
voru ófáar ferðirnar með Akraborg-
inni í öllum veðrum sem ég fór upp á
Skaga. Þegar ég var einn á ferð kom
amma og tók á móti mér niðri á
bryggju. Mér fannst þetta gaman og
það var ætíð tilhlökkun að fara upp á
Skaga. Amma tók alltaf vel á móti mér
og hugsaði vel um mig. Kjötbollur í
brúnni sósu, vöfflur með rjóma og rice
crispies með flóaðri mjólk voru réttir
hússins. Það var ekkert bruðl á Skóla-
brautinni og ástæðan fyrir því að
mjólkin var flóuð var vegna þess að
Amma frysti alltaf mjólkina svo hún
skemmdist ekki þannig að einhvern
tíman þegar ég var að fara að borða
morgunmat þurfti hún hita hana í
potti fyrir mig. Eftir það vildi ég alltaf
rice crispies með flóaðri mjólk hjá
ömmu. Það var ekki verið að traktera
mann með einhverjum óþarfa eins og
sætindum, þó svo hún hafi laumað að
mér einum og einum kandísmola. Síð-
an laumaðist maður bara niður og
bankaði upp á hjá Þóru og fékk nýbak-
aðar kleinur og sætindi.
Ég á góðar minningar frá Akranesi.
Amma var dugleg að gera ýmislegt til
að hafa ofan af fyrir litlum strák. Hún
kenndi mér að spila Marías og gerðum
við það óspart. Ómissandi hluti af
heimsóknum til ömmu voru fjöruferð-
irnar. Við gengum fjörurnar og söfn-
uðum steinum og öðrum áhugaverð-
um hlutum sem ráku á land. Það voru
oft miklir fjársjóðir í augum 10 ára
stráks. Einnig keyrðum við oft inn í
bústað á Hvalfjarðarströnd þar sem
við fórum í berjamó og ég fékk að
smíða í kjallaranum á gamla bústaðn-
um. Þeir bíltúrar eru mér minnisstæð-
ir, en ekki þó vegna þess að mér þóttu
þeir skemmtilegir. Við fórum hægt yf-
ir og amma notaði tímann til að kenna
mér öll bæjarnöfn og segja mér sögur
þeim tengdar á leiðinni inn á strönd.
Næsta dag þegar við keyrðum aftur
inn eftir var mér svo hlýtt yfir og þeg-
ar ég var 10 ára kunni ég flest bæj-
arnöfnin frá Akranesi inn að bústað.
Hún amma mín var ótrúleg kona.
Ef ég verð eitthvað nálægt því jafn-
frískur og hún var á elliárunum get ég
verið ánægður. Það voru sönn forrétt-
indi að kynnast henni og hún kenndi
mér margt sem ég mun búa að um
ókomna tíð.
Ég er þakklátur fyrir allan tímann
sem við áttum saman og ég er þakk-
látur fyrir að hún varð jafn langlíf og
heilsugóð og hún var. Ég er sérstak-
lega þakklátur fyrir þær stundir sem
við áttum saman á síðustu árum og að
hún náði að kynnast dóttur minni,
yngsta afkomanda sínum, áður en hún
fór. Mér eru ofarlega í huga fyrstu jól
dóttur minnar þegar amma kom og
var hjá fjölskyldunni mini á aðfanga-
dag og eins þegar hún kom og átti
kvöldstund með okkur í fyrrasumar í
bústað við Hreðavatn, það voru ynd-
islegar stundir sem ég mun alltaf
geyma og þykja vænt um.
Elsku amma, takk fyrir allt og hvíl í
friði.
Brjánn.
Guðrún Jóna
Bjarnadóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Greinar, sem berast eftir að útför
hefur farið fram, eftir tiltekinn skila-
frests eða ef útförin hefur verið gerð
í kyrrþey, eru birtar á vefnum,
www.mbl.is/minningar. Æviágrip
með þeim greinum verður birt í
blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Minningargreinar