Morgunblaðið - 26.06.2009, Page 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009
Atvinnuauglýsingar
•
Upplýsingar í síma
899 5630
Blaðbera
vantar í
sumarafleysingar
í Njarðvík
Blaðbera
vantar
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Ásgarður 17, 203-6100, Reykjavík, þingl. eig. Haraldur Þór Jónsson,
gerðarbeiðandi Nýi Glitnir banki hf., þriðjudaginn 30. júní 2009
kl. 13:30.
Flúðasel 89, 205-6669, Reykjavík, þingl. eig. Áróra Kristín
Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 30.
júní 2009 kl. 11:30.
Funafold 54, 204-2409, Reykjavík, þingl. eig. Sigurjón H. Valdimars-
son, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTollstjóri, þriðjudaginn 30.
júní 2009 kl. 11:00.
Laugarnesvegur 92, 201-6458, Reykjavík, þingl. eig. Einar Sörli
Einarsson, gerðarbeiðandi P. Árnason ehf., þriðjudaginn 30. júní 2009
kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
25. júní 2009.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Höfðabraut 12 a, mhl. 01-0106, fastanr. 210-0935, Akranesi, þingl. eig.
Brandur Danielsen, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður,
miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 11:30.
Skarðsbraut 3, mhl. 02-0201, fastanr. 210-0709, Akranesi, þingl. eig.
Ásdís Árný Sigurdórsdóttir, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og
Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 12:00.
Skarðsbraut 3, mhl. 02-0202, fastanr. 210-0710, Akranesi, þingl. eig.
Robert Woroszylo, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður,
Íbúðalánasjóður og Nýi Kaupþing banki hf., miðvikudaginn 1. júlí
2009 kl. 12:15.
Stekkjarholt 8, mhl. 01-0101, fastanr. 210-1378, Akranesi, þingl. eig.
Stilda ehf., gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Vátryggingafélag
Íslands hf., miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 10:30.
Ægisbraut 13 A, mhl. 01-0101, fastanr. 210-1060, Akranesi, þingl. eig.
Blómvellir ehf., gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og
Sýslumaðurinn í Borgarnesi, miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 12:40.
Ægisbraut 15, mhl. 01-0101, 210-0154, fastanr. 210-0154, Akranesi,
þingl. eig. Haukur Sigurbjörnsson ehf., gerðarbeiðandi
Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 1. júlí 2009 kl. 13:15.
Ægisbraut 30, mhl. 01-0101, fastanr. 210-0129, Akranesi, þingl. eig.
Glerhöllin ehf., gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður, miðvikudaginn 1.
júlí 2009 kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Akranesi,
25. júní 2009.
Tilkynningar
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavík
Í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með
auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Reyjavíkur 2001-2024, vegna landnotkunar við
Grandagarð í Vesturhöfn.
Vesturhöfn.
Breyttir skilmálar um landnotkun við Granda-
garð.
Breytingartillagan felur í sér að á lóðum við Granda-
garð nr. 15-101 (oddatölur), verði heimiluð verslun
og þjónusta sem ekki fellur undir hafnsækna
starfsemi.
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar
að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20
– 16:15, frá 26. júní 2009 til og með 7. ágúst
2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins,
www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal
skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is,
til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 7.
ágúst 2009. Vinsamlegast notið uppgefið netfang
fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir
sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 26. júní 2009
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með
auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir
Reykjavík.
Bergstaðastræti 16-20, Spítalastígur 6b.
Breytingartillagan felur í sér að breyta notkun
húsnæðisins frá því að vera íbúðarhúsnæði í að
vera hótelíbúðir á Bergstaðastrætisreits vegna
lóðanna nr. 16,18 og 20 við Bergstaðastræti og
lóðarinnar nr. 6B við Spítalastíg.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Tillagan liggur frammi íþjónustuveri Reykjavíkurborgar
að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20
– 16:15, frá 26. júní 2009 til og með 7. ágúst
2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins,
www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal
skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is,
til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 7.
ágúst 2009. Vinsamlegast notið uppgefið netfang
fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir
sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 26. júní 2009
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Tafir geta orðið í framleiðslu
vegabréfa vikuna 29. júní - 3. júlí
Þjóðskrá vinnur nú að breytingu á íslenska
vegabréfakerfinu til að uppfylla þær kröfur um
öryggi vegabréfa sem gerðar eru báðum megin
Atlantshafsins. Meginbreytingin felst í því að
nú verður fingraförum bætt í örgjörva vega-
bréfanna. Þessi breyting snertir eingöngu þá
sem þurfa að endurnýja vegabréf sín hvort eð
er. Eldri vegabréf halda gildi sínu fram að
næstu endurnýjun.
Vegna þessara breytinga á framleiðslukerfi
vegabréfa má búast við töfum í framleiðslu
vikuna 29. júní - 3. júlí. Jafnframt verður engin
skyndiútgáfa (forgangs-/hraðafgreiðsla) í boði
þá viku.
Sjá nánari upplýsingar á vefnum www.vega-
bref.is og í vefriti dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins á vefnum www.domsmalaraduneyti.is.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
25. júní 2009.
Ertu að leita þér
að vinnu? atvinna
✝ Dagný Sverr-isdóttir fæddist í
Reykjavík 24. apríl
1960. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 16. júní
2009. Foreldrar henn-
ar eru þau Sverrir
Halldórsson, f. 16.
nóvember 1938 og
Steinunn Ingv-
arsdóttir, f. 27. febr-
úar 1943. Foreldrar
Sverris voru þau Hall-
dór Ólafsson og
Lovísa Kristín Páls-
dóttir. Foreldrar Steinunnar eru
þau Ingvar Guðfinnsson og Fjóla
Gísladóttir.
Systkini Dagnýjar
eru a) Hrafnhildur, f.
24. september 1962,
maki Magnús Haf-
steinsson, f. 26. febr-
úar 1962. Dóttir
þeirra er Steinunn
Ósk, f. 29. desember
1986. b) Guðrún
Guðný, f. 9. júní 1968,
maki Chris Frankish,
börn hennar eru
Sigursteinn Sverrir,
f. 31. ágúst 1988 og
Atli Már, f. 14. apríl
1992.
Útför Dagnýjar fer fram frá
Grensáskirkju í dag, 26. júní, og
hefst athöfnin kl. 13.
Það var á björtum vordegi hinn
24. apríl að lítil stúlka leit daginn
ljós og fékk hún nafnið Dagný
Sverrisdóttir. Foreldrar hennar eru
Steinunn Ingvarsdóttir og Sverrir
Halldórsson. Sín fyrstu ár bjó þessi
litla fjölskylda á Njálsgötu 112 og
flutti síðan í Kaplakrika i Hafn-
arfjörð og þar liðu hennar fyrstu
ár. Það leið ekki á löngu þar til
önnur dóttirinn bættist í og fékk
hún nafnið Hrafnhildur. Þær systur
brölluðu mikið saman, t.d léku þær
sér saman við að byggja sér bú, þar
var bæði eldað, bakaðar drullukök-
ur og skúrað gólf en auðvitað var
þetta allt í plati. Svo fórum við í
lækinn, auðvitað máttum við það
ekki, en það sá enginn til okkar að
við héldum. En hann Kolur gamli
var nú ekki á því að láta systurnar
tvær fara saman, ef eitthvað kom
upp á, þá hentist hann beina leið
heim og gelti þangað til að mamma
kom út til þess að athuga með syst-
urnar.
Dagný byrjaði sína skólagöngu í
Lækjarskóla í Hafnarfirði með
splunkunýja skólatösku á bakinu
sem var nær því jafn stór og hún
sjálf. Þarna hófst hennar skóla-
ganga og hennar lífsganga. Síðan
flytur fjölskyldan á Hofteig 20 og
þar fæddist önnur systir og fékk
hún nafnið Guðrún Guðný. Tveimur
árum seinna kom drengur sem náði
ekki að tendra sitt ljós, en lifir samt
í hjörtum okkar.
Dagný gekk í Laugarnesskóla og
gekk hennar skólaganga vel, hún
var fljótlega læs og fannst henni
gaman í skólanum. Dagný var fljót
að eigna sér vini, hún kláraði
grunnskóla í Hvassaleitisskóla, ætl-
aði svo að sjá til hvað hana langaði
að gera. Eins og margir var hún
ekki alveg viss hvað beið hennar í
þessum stóra heimi sem var sko
ekki alltaf góður við hana. En hún
lét það ekki á sig fá, fékk sér vinnu
í frystihúsinu Granda.
Dagný var þeim hæfileikum
gædd, að er hún sá eitthvað aumt
þá vildi hún hjálpa til, hún styrkti
líka ungan dreng frá Afríku, og
sendi hann henni oft myndir sem
hann hafði teiknað. Hún sendi hon-
um nýja strigaskó og slunkunýjan
fótbolta. En hennar augasteinar
voru Steinunn Ósk, Sigursteinn
Sverrir og Atli Már en í þeim átti
hún hvert bein og elskaði þau eins
þetta væru hennar börn.
Dagný bjó í Hátúni 10 og vann í
Múlalundi þar sem hún stundaði
vinnu sína af kostgæfni. Ingvar,
fyrrverandi maður hennar, reyndist
Dagnýju mikil stoð og stytta í henn-
ar veikindum og viljum við fjöl-
skyldan þakka honum og fjölskyldu
hans fyrir ómetanlegan stuðning.
Dagný flutti svo í sitt gamla hverfi
að Sléttuvegi 9, henni fannst að nú
væri hún komin heim. En ekki naut
hún þess eins lengi eins og hún
hefði viljað. Hún sagði það líka
stundum í gríni að núna þyrfti hún
ekki lengur á leigubílum á að halda
því að nú ætti hún heima beint á
móti Borgaspítalanum. Dagný var
svo sem ekkert óvön því að þurfa að
vera á spítölum vikum saman, en
þar komu hennar sterku hæfileikar í
ljós, sem var þolinmæði. Hún kvart-
aði aldrei eða bað um neitt. Svona
var Dagnýju lýst, algjör perla.
Sverrir Halldórsson og
Steinunn Ingvarsdóttir.
Dagný Sverrisdóttir
Fleiri minningargreinar um Dag-
nýu Sverrisdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.