Morgunblaðið - 26.06.2009, Qupperneq 31
Velvakandi 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞÚ GETUR NOTAÐ
VENJULEGT LÍMBAND TIL
AÐ LOSA ÞIG VIÐ
KATTAHÁRIN...
...AF HÚSGÖGNUNUM
ÞÍNUM
HVAÐA
GLOTT ER
ÞETTA?
SKRÍTIÐ... ÉG HÉLT
AÐ „FRUIT OF THE LOOM“
VÆRI BETRA Á BRAGÐIÐ
ÞÚ ERT
BÚINN AÐ FÁ
KVÖLDMAT!
ÞÚ FÆRÐ
EKKI MEIRA
ÉG BORÐA VEGNA ÞESS
AÐ MÉR LÍÐUR ILLA
ÞÚ VILT BARA BORÐA ALLAN
DAGINN, ALLA DAGA!
OG MÉR LÍÐUR ILLA ÞVÍ ÉG
FÆ EKKI NÓG AÐ BORÐA
SNJÓSKRÍMSLIN
ERU SOFANDI
NÚNA
GETUM VIÐ
LOSAÐ
OKKUR VIÐ
ÞAU
KLUKKAN ER
TÍU! VIÐ
MEGUM EKKI
FARA ÚT!
MAMMA
OG PABBI
ERU ENNÞÁ
VAKANDI
VIÐ
VERÐUM AÐ
BÍÐA AÐEINS
LENGUR
Í VOR BÍÐUR ÞÍN SVOLÍTIÐ ÓVÆNT! ÞÚ FÆRÐ AÐ RAKA SAMAN LAUFUNUM, ÞVÍ
ÞÚ VARST OF LATUR TIL AÐ GERA ÞAÐ
SÍÐASTA HAUST
ÉG HÉLT AÐ ÞAÐ YRÐI LEIÐINLEGT
AÐ EYÐA FRÍINU MEÐ FORELDRUM
ÞÍNUM HÉRNA Í FLÓRÍDA...
EN EFTIR AÐ VERA
FASTUR ÚTI Á HAFI MEÐ
PABBA ÞÍNUM OG VINI
HANS ÞÁ ÁTTAÐI ÉG MIG
Á ÞVÍ AÐ LÍFIÐ HÉRNA
ER ALLT ÖÐRUVÍSI
EN ÉG HÉLT
MEIRA
SPENNANDI? ÉG ÆTLAÐIREYNDAR
AÐ SEGJA
„HÆTTULEGRA“
LALLI, ÉG
FANN NÝJA
LEIÐ TIL AÐ
VEIÐA
ÞÚ ERT SÁ SEM ER AÐ NEYÐA
JAMESON TIL AÐ SELJA BLAÐIÐ SITT!
ÉG MYNDI EKKI
SEGJA „NEYÐA“
ÉG BAUÐ ÞÉR ÚT AÐ BORÐA
MEÐ MÉR UM DAGINN
ÉG SAGÐI „NEI“
ÞAÐ SEGIR ENGINN
„NEI“ VIÐ MIG
VERSLUNARGATAN Laugavegur er komin í sumarbúninginn ef marka
má þessa skemmtilegu mynd af blómstrandi mannlífi og litríkum blómum
sem ljósmyndari Morgunblaðsins tók í góða veðrinu á dögunum.
Morgunblaðið/Heiddi
Laugavegur í blóma
Rangar upplýs-
ingar um helgihald
í Akureyrarkirkju
FJÖLSKYLDAN fór
norður í land í síðustu
viku. Dvalið var á Ak-
ureyri yfir helgina þeg-
ar Bíladagar voru þar í
bænum okkur til hrell-
ingar sökum hávaða og
óláta. Til andlegrar
upplyftingar var
sunnudagurinn tekin
snemma í góðri sund-
lauginni í Gilinu.
Síðan var tekin
stefnan á Akureyr-
arkirkju þar sem fjölskyldan hafði
áhuga á að sjá þessa fallegu kirkju
innandyra og hlýða á rómaðan org-
anistann leika. En þegar komið var
að kirkjudyrum kl.10.55 reyndist
kirkjan lokuð og læst. Skilti við
dyrnar sagði á íslensku og ensku að
messa væri á sunnudögum kl. 11.
Þessa auglýsingu höfðum við lesið
kvöldinu áður. Nokkrir erlendir og
íslenskir ferðamenn komu og fóru á
þeim mínútum sem við stöldruðum
við kirkjudyrnar.
Þetta voru okkur vonbrigði að
engin væri messan og dapurlegt að
ekki skuli betur vera auglýst fyrir
aðkomufólk með hvaða hætti helgi-
hald er í Akureyrarkirkju yfir sum-
armánuðina. Við skoðun á heimasíðu
kirkjunnar í bókabúðinni í nágrenn-
inu þar mátti lesa: „Hinar almennu
sunnudagsguðsþjónustur eru yf-
irleitt kl. 11:00, en á sumrin er kvöld-
messa í annað hvert skipti.“ Gott
hefði verið að vita þetta.
Vinsamleg tilmæli til þeirra sem
málið varðar að hafa rétta messu-
tilhögun læsilega við Akureyrar-
kirkju fyrir þá sem þangað vilja
leita.
Ferðamaður.
Sparnaður
í þjóðfélaginu
ÞAÐ er mikið rætt um
niðurskurð og skatta-
hækkanir og fleira til
að leysa þessi vanda-
mál sem við erum kom-
in í. Ég vil nefna eitt,
og sé ég mikinn sparn-
að í því. Það er að
minnka Alþingi úr 63 í
49, eða jafnvel 39 þing-
menn.
Hvað mun sparn-
aðurinn vera mikill fyr-
ir þjóðina?
Þetta er bara
304.000 manna þjóð og
mörg stærri lönd eru með miklu
færri þingmenn á hvern ríkisborg-
ara en 1/5000.
Ég spyr, hvað spörum við mikið
með þessum niðurskurði?
Þosteinn Halldórsson.
Sigmund
ÉG vil fá Sigmund aftur og tek undir
með Þorvaldi og Guðrúnu í Velvak-
anda 24. júní, sem sakna hans.
Teikningar hans glöddu mann á
hverjum degi og sérstaklega gaman
var að skoða öll smáatriðin í þeim
sem oft voru fyndnust. Það sem kom
í staðinn gerir það að verkum að ára-
tuga áskrift að blaðinu hangir á blá-
þræði og lítið þarf til að hann slitni.
Ég les venjulega ekkert sem er á
sömu síðu og teikningin. Ef ég get
ekki sleppt því að lesa eitthvað þar
breiði ég blað yfir hana svo ég þurfi
ekki að hafa hana fyrir augunum.
Eldri borgari í Árborg.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-16.30,
binbó kl. 13.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, opin
smíðastofa kl. 9-16.3, bingó fellur niður
í júní og júlí.
Bólstaðarhlíð 43 | Handavinna, böðun,
fótaaðgerð, hárgreiðsla. Kaffi/blöðin.
Dalbraut 18-20 | Föstudagssöngstund
er komin í sumarfrí.
Eftirlaunadeild símamanna | Vegna
forfalla geta nokkrir bæst við í sum-
arferðina 21.-26. júlí til Austfjarða og
Norðausturlands: Þórbergssetur á Hala,
Papey, Kárahnjúkar, Raufarhöfn, Mel-
rakkaslétta, Tjörnes, Hágöngulón á
Sprengisandi o.fl. Hafið samband við
Ragnhildi í s. 551-1137 eða 898-4437
eða Valgarð s. 897-7550.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, hádegisverður og fé-
lagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, prjóna/bragakaffi og
stafganga kl. 10. Mánud. 29. júní er
ferðalag um Árnesþing, m.a. ekið um
Þingvöll, Grafning, Laugarvatn, Biskups-
tungur o. fl., lagt af stað kl. 13. Skrán-
ing á staðnum og í s. 575-7720.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Opnar vinnustofur í Jónshúsi kl. 10-16,
matur kl. 12-13, kaffi kl. 14.30-16.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Bridds fyrir konur í Setrinu kl. 13.
Hraunsel | Brids kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Bingó 13.30.
Hæðargarður 31 | Opið í sumar kl. 9-
16. Félagsvist, matur, kaffi, morg-
unsamvera, bankaþjónusta, Stef-
ánsganga, púttvöllurinn o.fl. Boðið upp
á námskeið fyrir atvinnulausa í skart-
gripagerð 29. til 3. júlí. S. 411-2790.
Fótaaðgerðir, s. 897-9801, s. hár-
greiðslustofa 568-3139.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10, leikfimi kl. 11, opið hús –
vist/brids kl. 13. Hárgreiðslust., s. 862-
7097, fótaaðgerðastofa, s. 552-7522.
Norðurbrún 1 | Leikfimi með Janick kl.
13, síðasta samveran með Margréti
djákna í sumar kl. 14.
Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík |
Örfá sæti laus í ferð á Snæfellsnes 17. -
18. júlí n.k. Skráning og upplýsingar á
Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar
ehf. s. 511-1515.
Vesturgata 7 | Sungið v/flygilinn við
undirleik Sigurgeirs kl. 13.30, dansað í
kaffitímanum undir stjórn Sigvalda
danskennara kl. 14.30-16.
Þórðarsveigur 3 | Salurinn opnarkl. 9.