Morgunblaðið - 26.06.2009, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
„ÞETTA er spil sem hægt er að spila
alls staðar,“ fullyrða þeir Steinþór
Steingrímsson og Ölvir Gíslason um
nýútkomið spurningaspil úr þeirra
smiðju. En svo slá þeir tvo varnagla
við þessari yfirlýsingu sinni: „Það er
reyndar ekki hægt að spila það í
vatni, spjöldin eru úr pappír. Einnig
mælum við ekki með því að fólk spili
undir stýri þó spilið sé vissulega
ferðavænt.“ Og það sé vissulega
kostur spilsins, sem ber heitið Spurt
að leikslokum.
Spilið er í handhægum kassa sem
ætti ekki að flækjast fyrir neinum á
ferðalögum. Auk þess inniheldur það
ekkert spilaborð sem auðveldar
spila-glöðum að spila hvar sem er,
svona næstum því.
„Já, við vildum vera lausir við ten-
inga og svoleiðis vesen. Þetta átti að
vera spil sem er bæði þægilegt og
skemmtilegt að spila,“ segir Stein-
þór.
Vanir menn
Spurt að leikslokum er spurn-
ingaspil og segja þeir félagar það
bera öll einkenni slíkra spila.
„Já, þarna eru bæði spurningar og
svörin við þeim,“ fullyrðir Ölvir.
„Svo er hægt að spila spilið á fjóra
mismunandi vegu, allt eftir að-
stæðum og fjölda spilara,“ segir
Steinþór.
Spurningarnar eru flokkaðar í sex
hluta eftir efni þeirra.
„Þarna er meðal annars flokkar
sem heita Náttúra, Vísindi og Matur.
Þar er að finna ýmsar spurningar um
mat og matargerð sem hefur að mínu
mati vantað í spurningaspil í gegnum
tíðina,“ segir Ölvir. „Allir hafa skoð-
anir á mat og það eru meira að segja
margir sem neyta hans daglega.“
Þeir Ölvir og Steinþór hafa gegn-
um tíðina verið iðnir við kolann í
spurningasmíðum og hafa haldið ófá-
ar spurningakeppnirnar í vinahópn-
um og á vinnustaðnum auk þess að
hafa látið til sín taka á pub quiz-
kvöldum á Grand Rokk.
Íslensk framleiðsla
„Það eru örugglega margir sem
vilja fá að vita að þetta er alíslensk
framleiðsla,“ segir Steinþór.
Svo íslensk er hún að þeir Stein-
þór og Ölvir sitja þessa dagana
sveittir og raða spjöldunum í kass-
ana þar sem slíka vél er ekki að finna
hér á landi.
„Það þyrfti nú bara pínulitla vél í
þetta og þær eru til úti í heimi. Eins
og staða krónunnar er núna er hins
vegar frekar óhagstætt að fjárfesta í
einni slíkri. Ef við þurfum að prenta
fleiri eintök af spilinu endurskoða ég
þó málið, ég nenni ekki að raða
meira!“ segir Steinþór. Spilið er
hægt að nálgast í nokkrum versl-
unum N1, Hagkaupum, Spilavinum á
Langholtsvegi og fleiri stöðum. Auk
þess er hægt að panta það á vefsíð-
unni hér að neðan.
Spurt að leikslokum
Þeir Steinþór og Ölvir eru höfundar
nýs íslensks spurningaspils Hægt er
að spila það alls staðar nema í vatni Hrafn Gunnlaugsson þekkja
allir. Hrafn Jökulsson er líka
flestum að góðu kunnur. En
hvað hétu hrafnar Óðins?
Hvaða tvö dýr koma við sögu í
réttinum „Surf ’n’ Turf“, sem
finnst gjarnan á matseðlum
betri veitingahúsa?
Hvaða nýjung innleiddi Willi-
am Crum í fótbolta árið 1891,
sem markaði tímamót í íþrótt-
inni?
Hvert er orðið? Í fleirtölu er
það mikilvægt amboð sjúkra-
flutningamanna. Í eintölu getur
það verið arabískt karlmanns-
nafn, þorp í Svíþjóð eða hljóm-
sveit frá Akureyri.
Svaraðu nú ...
www.spurtadleikslokum.is
Morgunblaðið/Heiddi
Steinþór og Ölvir Spilið þeirra, Spurt að leikslokum, er dæmigert spurn-
ingaspil og inniheldur því bæði spurningar og svör.
750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM 750kr.
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
750k
r.
Stærsta mynd ársins
- 38.000 manns!
ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR
750kr.
UPPLIFÐU FYNDNASTA FERÐALAG
ALLRA TÍMA !!
FRÁBÆR GAMANMYND
Í ANDA WEDDING CRASHERS
750kr.
750kr.
Frá leikstjóranum Michael Bay ásamt stórleikurunum Shia LaBeouf og John Torturo
ásamt kynþokkafyllstu leikkonu heims Megan Fox kemur
FLOTTASTA HASARMYND SUMARSINS
“Stærri, fyndnari, flottari ...
Ef þú fílaðir fyrstu myndina,
þá áttu eftir að dýrka þessa!”
T.V. - Kvikmyndir.is
HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI !
Frá leikstjóranum Michael Bay kemur ein
flottasta HASARMYND SUMARSINS
“... athyglisvert og vandað verk”
- Ó. H. T., Rás 2
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
SÝND Í SMÁRABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ OG BORGARBÍÓ
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef
SÝND Í SMÁRABÍÓ OG BORGARBÍÓ
Year One kl. 5:50 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Ghost of Girlfriends past kl. 5:50 B.i.12 ára
Killshot kl. 8 - 10 LEYFÐ
Tyson kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára Gullbrá og birnirnir þrír kl. 6 LEYFÐ
Year One kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára Angels and Demons kl. 6 - 9 B.i.14 ára
Ghosts of Girlfriends Past kl. 8 - 10:15 B.i. 7 ára
Lesbian Vampire Killers kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
Year One kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára
Terminator: Salvation kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Angels and Demons kl. 5:30 - 8:30 B.i. 14 ára