Morgunblaðið - 26.06.2009, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009
á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SÝND M
EÐ
ÍSLENS
KU OG
ENSKU
TALI
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FLOTTASTA
HASARMYND
SUMARSINS
Frá leikstjóranum Michael Bay ásamt
stórleikurunum Shia LaBeouf, John Torturo
og kynþokkafyllstu leikkonu heims Megan Fox „STÆRRI, FYNDNARI, FLOTTARI ...EF ÞÚ FÍLAÐIR FYRSTU MYNDINA,
ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ DÝRKA ÞESSA!“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
TRANSFORMERS 2 kl. 4D - 7D - 10D POWERSÝNING KL. 7 10 DIGITAL
THE HANGOVER kl. 4 - 6D - 7 -8D - 9:10- 10:20D 12 DIGITAL
CORALINE 3D m. ísl. tali kl. 43D L 3D DIGTAL
TRANSFORMERS 2 kl. 5D - 8D - 11D - Powersýning kl. 11 10 DIGTAL ADVENTURELAND kl. 3:40 - 5:50 12
TRANSFORMERS 2 kl. 5 - 8 - 11 - Powersýning kl. 11 LÚXUS VIP STAR TREK XI kl. 10:20 10
THE HANGOVER kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 8:10 - 8:30 - 10:20 - 10:30 - 11 12 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 4 - 6 L
MANAGEMENT kl. 5:50 - 8 10 HANNAH MONTANA kl. 3:40 L
Tæp 70 ár eru liðin frá því aðPáll Ísólfsson organistimælti með því í úvarps-
erindi að byggt yrði tónlistarhús í
hjarta borgarinnar. Hugmyndin
þótti góð árið 1940 og efldi íslenskt
tónlistarfólk til þess að standa fyrir
alls kyns uppákomum sem áttu að
hreyfa við valdafólki hér til þess að
hrinda verkefninu í framkvæmd.
Það var Samkór Reykjavíkur sem
reið á vaðið og hélt fyrstu styrktar-
tónleikana fyrir byggingu hússins
árið 1944. Tónlistarfélag Íslands
hélt nokkra styrktartónleika til að
safna fé fyrir byggingu hússins og
tilkynnti svo árið 1958 að fyrir-
huguð væri bygging „tónlistar-
hallar“. Það hús reyndist svo ein-
ungis vera undir starfsemi
Tónlistarskólans. Háskólabíó var
byggt árið 1961 sem bíóhús og tón-
leikasalur og hefur húsnæðið vissu-
lega verið nýtt sem slíkt en fæstir
myndu kalla það tónlistarhús. Í
kringum 1970 voru uppi fyrirætl-
anir um að byggja tónlistarhús við
Sigtún en úr því varð aldrei. Um-
ræðan komst aftur á skrið tíu árum
síðar en ekkert gerðist. Það var svo
ekki fyrr en árið 1998 að nýkjörin
borgarstjórn Reykjavíkur lýsti því
yfir að bygging tónlistarhúss
myndi hefjast á kjörtímabilinu.
Ákvörðun um byggingu hússins í
Austurhöfn var tekin árið 2000 en
það var svo ekki fyrr en sex árum
síðar að samningur um byggingu
þess var loks undirritaður við há-
tíðlega athöfn í Ráðherrabústaðn-
um. Í janúar 2007 var svo loksins
byrjað að steypa grunninn.
Í ljósi þess að Ísland er þekkt fyr-
ir lítið annað út á við en ótrúlega
náttúrufegurð, afbragðs tónlist og
óráðsíu í peningamálum er í raun
ótrúlegt að Tónlistarhúsið sé enn
ekki löngu orðið að veruleika. Nú
herma nýjustu fregnir frá Reykja-
víkurborg að breyta eigi nafni hús-
beinagrindarinnar við höfnina í Al-
þýðuhöllina. Þetta er auðvitað bara
pólitískt þvaður þar sem ákveðið er
að kalla appelsínu glóaldin. Auðvit-
að snýst málið í raun um að rétt-
læta áfram milljarða framkvæmd
fyrir reiðum almenningi sem berst
við að halda sér á floti eftir stór-
fenglegt klúður útrásavíkinga. Með
þeirri ákvörðun sinni að „útvíkka“
fyrirhugaða starfsemi hússins og
hleypa þangað inn Íslenska dans-
flokknum, Íslensku óperunni, Tón-
verkamiðstöð Íslands og hugs-
anlega Listaháskólanum eru
borgarfulltrúar að reyna friða fólk-
ið í landinu með því að sýna fram á
fjölhliða notkun þess. Á sama tíma
og bensínverð og skattar hækka
upp úr öllu valdi er það skiljanlegt
að yfirvöld vilji koma þeim skila-
boðum á framfæri að ekki sé verið
að bruðla með peningana. Nafnið
Tónlistarhús eða Alþýðuhöll?
AF LISTUM
Birgir Örn Steinarsson
»En nafnið er auðvit-að hræðilegt! Af
hverju þarf alltaf að
réttlæta húsbyggingar
fyrir listastarfsemi á
meðan enginn setur
neitt út á byggingu
íþróttahúsa?
Morgunblaðið/RAX
Tónlistarhús Hin svokallaða Alþýðuhöll verður án efa vinsæl á meðal erlendra og íslenskra menningarvita.