Morgunblaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2009
SPARBÍÓ 550 krkr á allar sýningar merktar með appelsínugulu
STÆRSTA BÍÓOPNUN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2009
LANG VINSÆLASTA MYNDIN!
38.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
„ÉG HEF EKKI SKEMMT MÉR BETUR Í BÍÓ SÍÐAN
EINHVERN TÍMANN Á SÍÐUSTU ÖLD.“
„ÞÁ ER HANDRITIÐ MEINFYNDIÐ,
UPPFULLT AF GEGGJUÐUM UPPÁKOMUM.“
„FLEST LEGGST Á EITT AÐ HALDA MANNI Í NÁNAST
ÓSTÖÐVANDI HLÁTURSKASTI OG „GÓÐUM FÍLING“,
ALLT FRÁ UPPHAFSMÍNÚTUNUM...“
S.V. - MBL
SÝND MEÐÍSLENSKUTALI
FRÁBÆR
FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
SÝND Í KRINGLUNNI Á SUNNUDAG
SÝND M
EÐ
ÍSLENSK
U TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA
/ AKUREYRI
TRANSFORMERS 2 kl. 5 - 8 - 11 Powersýn. kl.11 10
THE HANGOVER kl. 6 - 8 - 10 12
/ KEFLAVÍK
TRANSFORMERS 2 kl. 5 - 8 - 11 Powersýning kl. 11 10
GULLBRÁ OG BIRNIRNIR 3 kl. 6 L
YEAR ONE kl. 8 7
ADVENTURELAND kl. 10:10 12
/ SELFOSSI
TRANSFORMERS 2 kl. 5 - 8 - 11 Powers. kl. 11 10
GULLBRÁ OG BIRNIRNIR 3 kl. 6 L
MANAGEMENT kl. 8 - 10:20 10
„Alþýðuhöllin“ undirstrikar þetta
auðvitað best en skilaboðin þar eru
klárlega að húsið sé eign okkar
allra og sé fyrir alla. Þetta undir-
strikaði Júlíus Vífill Ingvarsson,
borgarfulltrúi Sjálfsstæðisflokks-
ins, í spjalli við mbl.is á miðviku-
daginn. Þar sagði hann að engin
ein tegund tónlistar eða ein starf-
semi færi þangað inn heldur eitt-
hvað sem væri við allra hæfi.
Þó nýtt nafn hússins sé auðvitaðekkert annað en spaugileg til-
raun stjórnmálamanna til þess að
reyna að stýra skoðunum fólksins
um byggingu hússins á jákvæðari
brautir ber að fagna þessari op-
inberu yfirlýsingu um „útvíkkun“
starfseminnar. Það sést skýrt á
þeirri starfsemi sem nú er þegar
búið að samþykkja að hleypa þang-
að inn að byggingin er ennþá að-
allega hugsuð fyrir tónlistartengda
starfsemi. Síðustu misseri höfðu
popp- og rokktónlistarmenn lýst yf-
ir áhyggjum af því að þeir fengju
ekki inni með tónleika sína þar sem
starfsemin væri aðallega hugsuð
fyrir tónleika Sinfóníuhljómsveitar
Íslands og aðrar uppákomur í
„fínni“ kantinum. Það er ekki hægt
að skilja orð Júlíusar Vífils á annan
hátt en svo að tónlistarmenn á borð
við Bubba Morthens, Sigur Rós eða
Björgvin Halldórsson geti hætt að
bóka íþróttahallir fyrir stærstu við-
burði sína um leið og dyrnar á Al-
þýðuhöllinni opnast.
Nú stefnir því í að starfsemin
geti orðið nær þeirri sem fer fram í
Barbican Center í London. Þar eru
engir fyrirfram ákveðnir listrænir
rammar. Þar fær allt áhugavert
inni, hvort sem það er á sviði tón-,
leik- eða danslistar eins lengi og
talið er að viðburðirnir séu það eft-
irsóttir að miðar seljist.
En nafnið er auðvitað hræðilegt!Af hverju þarf alltaf að rétt-
læta húsbyggingar fyrir lista-
starfsemi á meðan enginn setur
neitt út á byggingu íþróttahúsa? Ef
við berum saman árangur þjóð-
arinnar í íþróttum og listum er
augljóst að skoðanir fólks taka lítið
mið af árangri. Það eru engar
Bjarkir eða Sigur Rósir á sviði ís-
lenskra íþrótta. Prófið bara að
spyrja hvaða túrista sem er um
landsliðið í handbolta ef þið trúið
mér ekki. Og Eiður? Flestir halda
að hann sé frá Svíþjóð. Lengi lifi
Tónlistarhúsið!
biggi@mbl.is
Án hvers geturðu ekki verið? Vina minna!
Ætlar þú að sjá Húmanímal þegar það
verður tekið upp í haust? (spyr síðasti
aðalsmaður, Margrét Bjarnadóttir,
dansari.) Hef nú þegar séð verkið og
fannst það mjög skemmtilegt.
Hvar læturðu helst til þín taka á
heimilinu? Ég er æst í hreingern-
ingum.
Er sjónvarpið ekki bara dautt sem
miðill. Er netið ekki málið? Netið
klikkar aldrei en Mónitor á Skjá
Einum klikkar seint.
Hvaða persónu myndirðu vilja
hitta? Vá, þær eru svo margar og
ólíkar. Vivienne Westwood er of-
arlega á listanum ásamt Michael
Jackson.
Besti sjónvarpsþátturinn (fyrir utan
Monitor þ.e.)? Ég er algjör sjónvarps-
þáttanörd og elska mest Arrested
Development, Office (US), Klovn, Calif-
ornication, Mad Men, Family Guy, Sein-
feld, Simpsons og Gossip Girl.
Segðu okkur eitthvað um Atla Fannar,
ritstjóra Monitor, sem enginn annar
veit. Hann er í leynilegu ástarsam-
bandi.
Hvaða plötu hlustar þú mest á þessa dagana?
Síðasta plata sem ég nauðgaði var Rules með
The Whitest Boy Alive.
Borðar þú morgunmat? Þar sem eitt fyrsta
orðið sem kom út úr mér sem barn er morg-
unmatur verð ég að segja já! Ég þarf mitt
kaffi og með því.
Fyllirðu bílinn af bensíni þegar þú tekur bensín,
eða kaupir þú fyrir ákveðna upphæð? Ég á ekki
bíl en fæ þá ófáa lánaða yfir vikuna og skelli þá
þúsund krónum á kaggann.
Hver er tilgangur lífsins? Lifa, elska og njóta þess!
Hefurðu lagt í stæði ætlað fötluðum? Því miður,
já.
Leno eða Conan? Leno.
Hverju myndirðu vilja breyta í eigin fari?
Kannski að hætta að segja djók. Djók... Nei,
djók. Djók.
Ef þú værir neydd til þess, gætirðu útskýrt ís-
lenska bankahrunið? Græðgi, spilling og
veruleikafirring. Of mikill yfirdráttur, of mik-
ið Epal og of mikið af 50 cent, Tinu Turner og
gullrísottó.
Býrðu yfir leyndum hæfileika?
K.A.R.Ó.K.Í.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda?
Hvernig leggst sjónvarpsþátturinn Mónitor í
þig?
HVAÐ VAR ÞETTA
MEÐ GULLRÍSOTTÓIÐ?
AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER ERNA BERGMANN, UMSJÓNARMAÐUR
MAGASÍNÞÁTTARINS MONITOR SEM HÓF GÖNGU SÍNA Á SKJÁ EINUM Í VIKUNNI.