Morgunblaðið - 08.08.2009, Side 1
L A U G A R D A G U R 8. Á G Ú S T 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
212. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
MIKIL VIÐURKENNING
FYRIR ÁRNASTOFNUN
«BARNABLAÐ
Hinsegin orða-
skilningur barnanna
JÓN Leifs – Líf í tónum, er titill ævisögu um tónskáldið
sem tónlistarfræðingurinn Árni Heimir Ingólfsson hefur
ritað. Bókin kemur út í október og segir Árni Heimir að
hann sé fyrstur Íslendinga til að rita ævisögu tónskálds-
ins.
„Jón var ekki glöggskyggn maður þegar kom að pólitík
sem sést best á því að hann gaf embættismönnum nasista
undir fótinn með ýmsu móti, þrátt fyrir að hann væri
sjálfur kvæntur konu af gyðingaættum. Vorið 1938 var
Jón einn þriggja Íslendinga sem gengu á fund embættis-
manns í áróðursmálaráðuneyti Göbbels og buðu embætt-
ismanninum Friedrich Christian prins af Schaumburg-
Lippe konungdóm yfir Íslandi.
Jón hafði þungar áhyggjur af stöðu Íslands eftir sam-
bandsslitin við Dani og honum þótti Íslandi best borgið
sem konungsríki og þóttist viss um að
listin myndi dafna best þannig, þar
sem hún væri í eðli sínu aristókratísk
og þyrfti sterka, fjárhagslega bak-
hjarla. Með þetta í huga fer hann
ásamt Guðmundi Kamban og Krist-
jáni Albertssyni og býður prinsinum af
Schaumburg-Lippe konungstign yfir
Íslandi. Jón vonaðist til að listelskur
konungur myndi taka hann upp á
arma sína og skapa honum fullkomna aðstöðu til listsköp-
unar,“ segir Árni Heimir m.a. um innihald bókarinnar.
Um þennan merkilega atburð hefur áður verið fjallað á
prenti, í bókinni Kóng við viljum hafa! eftir Örn Helgason
sem kom út árið 1992. | 41
Ný ævisaga að koma út um tónskáldið Jón Leifs
Bauð konungdóm yfir Íslandi
Jón Leifs
LOGANDI kyndill við hús á Dalvík í gærkvöldi var
til merkis um að þar væri fiskisúpa í boði. Logi var
við um það bil 50 hús. Fiskisúpukvöldið mikla var
haldið í fimmta skipti og bærinn iðaði af lífi; upp-
takturinn að þeim „stóra“, Fiskideginum mikla.
Flestum götum var lokað fyrir bílaumferð en hefði
jafnvel ekki þurft, mannhafið var slíkt. Tjaldstæði
eru troðfull og nær öruggt að fleiri verða saman
komnir á þessum friðsæla stað við Eyjafjörð í dag
en nokkru sinni. Íbúar eru tæplega 2.000 alla jafna,
talið er að um 30.000 manns hafi verið saman komn-
ir fyrir ári og Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri
hátíðarinnar, er viss um að enn fleiri mæta nú, mið-
að við fjölda á tjaldstæðum. skapti@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Logandi kyndill til merkis
um að enn sé súpa í potti
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
KOSTNAÐUR
Seðlabankans vegna
sérfræðiráðgjafar
bandaríska fjárfest-
ingarbankans JP
Morgan nam rúm-
lega einum milljarði
króna á síðasta ári.
Fram kemur í árs-
reikningi Seðla-
bankans fyrir árið
2008 að kostnaður
vegna aðkeyptrar
sérfræðiráðgjafar
hefði hækkað um 1,1
milljarð miðað við
árið á undan. Langstærsti hluti þessa kostn-
aðar er vegna þjónustusamnings við banda-
ríska fjárfestingarbankann JP Morgan. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins er ekki
víst að tekist hefði að halda greiðslumiðlun
við útlönd jafn greiðri og raun varð á eftir
hrun viðskiptabankanna þriggja ef ekki hefði
komið til sérfræðiráðgjafar bandaríska bank-
ans og er stór hluti kostnaðarins sprottinn af
því.
Án undanfarandi útboðs
Í skýringum í ársreikningi Seðlabankans
er ekki minnst á greiðslumiðlun heldur segir
að sérstök ráðgjöf hafi aðallega lotið að til-
lögugerð og mati á leiðum til aðgerða sem
grípa þyrfti til. Samningurinn við JP Morgan,
sem var gerður án útboðs, er enn í gildi. Ekki
liggur fyrir hversu mikið ráðgjöf JP Morgan
hefur kostað það sem af er þessu ári.
Forsætisráðuneytið áætlar að það þurfi að
greiða 296,2 milljónir fyrir sérfræðiráðgjöf
sem tengist hruninu. Stærsti kostnaðarlið-
urinn eru greiðslur til bresku lögmannsstof-
unnar Lovells LLP, en hún veitti m.a. ráðgjöf
vegna hugsanlegra málaferla ríkisins við
bresk stjórnvöld. Alls kostaði þjónusta lög-
mannsstofunnar 109,3 milljónir.
Ráðgjöf
kostaði
milljarð
Kostnaðarsöm ráðgjöf
JP Morgan í hruninu
Í HNOTSKURN
»JP Morganaðstoðaði
Seðlabankann
m.a við að
tryggja
greiðslumiðlun
við útlönd og í
áætlanagerð eft-
ir hrun við-
skiptabankanna
þriggja.
300 milljónir í ráðgjöf | 24
BESTU vextir
á óverðtryggðum
og óbundnum
innlánum hjá
stóru ríkisbönk-
unum halda ekki
lengur í við verð-
bólgu. Hún er nú
um 11% en vext-
irnir aðeins 8-9%.
Þetta er breyting
frá því sem var í
vetur. Bankavextir hafa almennt
lækkað mikið á þessu ári og mun
meira heldur en stýrivextir Seðla-
bankans og ársverðbólga.
Þá virðist vaxtamunur innlána og
útlána vera að aukast. Útlánatap,
gjaldeyrismisvægi í efnahagsreikn-
ingnum og lágir innlánsvextir hjá
Seðlabankanum þrýsta í samein-
ingu á lægri vexti og meiri vaxta-
mun. »12
Vextir lækka hratt og vaxta-
munur inn- og útlána eykst
Peningar Vextir
fara ört lækkandi.
GERT er ráð fyrir stífum funda-
höldum hjá fjárlaganefnd Alþingis
um helgina. Þar stendur til að ná
víðtækri samstöðu um afgreiðslu
Icesave-málsins með fyrirvara um
ríkisábyrgð. Vonast er til að nefnd-
arálit liggi fyrir snemma í næstu
viku og þá megi taka frumvarp um
ríkisábyrgðina til umfjöllunar í
þingsölum. Stjórnarandstaðan tel-
ur ólíklegt að málið vinnist svo
hratt. Þverpólitísk lausn í málinu sé
þó ekki útilokuð, enda hafi stjórn-
arflokkarnir í þessu máli fært sig
nær minnihlutanum. »4
Fjárlaganefnd fundar stíft
um lausn Icesave-málsins
RÓBERT
Wessman, fjár-
festir, hefur ekki
getað höfðað mál
gegn Glitni
vegna banns við
málshöfðun gegn
fjármálafyr-
irtækjum í
greiðslustöðvun.
Róbert keypti
hlutabréf í Glitni fyrir milljarða
rétt fyrir bankahrunið í haust og
segist engan grun hafa haft um
stöðu bankans á þeim tíma.
Hann á sem stendur í viðræðum
við Glitni og hefur riftun til skoð-
unar, en bankinn var seljandi bréf-
anna. thorbjorn@mbl.is »16
Á í viðræðum við Glitni
vegna hlutabréfakaupa
Róbert Wessman
„ÉG ÁTTI engan kærasta, en ég átti
börnin. Ég hugsa stundum að það
hefði verið skemmtilegra að eiga
kærasta,“ segir Ingrid Marie Sigfús-
son, sem í dag fagnar 100. afmælis-
degi sínum.
Ingrid fæddist í Danmörku, en
giftist Brynjúlfi Sigfússyni, kaup-
manni, söngstjóra og organista frá
Vestmannaeyjum, og flutti til Ís-
lands. Brynjúlfur lést í febrúar 1951
og Ingrid tók við rekstri Brynjúlfs-
búðar og forsjá heimilisins. Brynj-
úlfur var eini maðurinn í lífi hennar.
Ingrid er farin að tapa heyrn og
naut því aðstoðar barnabarns síns,
Sigrúnar Gylfadóttur, í viðtali við
Morgunblaðið. | 6
Hefði verið skemmti-
legra að eiga kærasta
Morgunblaðið/RAX
100 ár Ingrid og Sigrún Gylfadóttir.