Morgunblaðið - 13.10.2009, Page 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2009
Þetta helst ...
● VELTA á skuldabréfamarkaði nam
6,6 milljörðum króna í gær. Hækkaði
ávöxtunarkrafa á ríkisskuldabréf um
0,02-0,10 prósentur og hækkaði hún
meira á styttri flokkum en lengri. Úr-
valsvísitalan hækkaði um 0,06% í
Kauphöllinni í gær en veltan nam 52,5
milljónum. Nær öll veltan var með
hlutabréf Marels án þess að gengi fé-
lagsins breyttist. bjarni@mbl.is
Sex milljarða velta
● SÆNSKI bank-
inn Swedbank hef-
ur hótað því að
draga mjög úr um-
svifum sínum í
Eystrasaltsríkj-
unum gangi áform
lettneskra stjórn-
valda eftir um að
breyta lögum um
fasteignalán.
Fela hugmynd-
irnar það í sér að geti lántaki ekki leng-
ur greitt af láni fái lánveitandi aðeins
markaðsvirði fasteignarinnar upp í lán-
ið, en geti ekki gengið að lántaka að
öðru leyti. Swedbank er stærsti sænski
bankinn á svæðinu. bjarni@mbl.is
Banki Útibú Swed-
bank í Litháen.
Swedbank ósáttur við
lettnesk stjórnvöld
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
STJÓRN Geysis Green Energy
(GGE) fór fram á það við stjórnend-
ur félagsins að þeir innheimtu þær
15 milljónir dala, um 1,9 milljarða
króna, sem bandaríska fyrirtækið
Wolfensohn & Co. hafði skuldbundið
sig til að greiða fyrir 3,9% hlut í fé-
laginu. Eftir þessum tilmælum hafi
hins vegar ekki verið farið. Aðspurð-
ur staðfestir Þorsteinn Vilhelmsson,
fyrrverandi stjórnarmaður í GGE,
þessa atburðarás. „Meirihluti stjórn-
arinnar ákvað að setja í gang inn-
heimtuaðgerðir, en núverandi for-
stjóri og stjórnarformaður vildu ekki
fara í þær. Forstjórinn fór ekki í þær
aðgerðir sem stjórnin fól honum að
framkvæma.“ Forstjóri GGE er Ás-
geir Margeirsson og stjórnarfor-
maður félagsins Eyjólfur Árni
Rafnsson, en hann situr þar fyrir
hönd VGK Invest.
Hættu einfaldlega við að borga
Wolfensohn, sem er bandarískt
fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki
og meðal annars í eigu James Wolf-
ensohns, fyrrverandi bankastjóra
Alþjóðabankans, tilkynnti kaup á
hlut í GGE í júlí síðastliðnum. Fyr-
irtækið ætlaði að borga 15 milljónir
dala, um 1,9 milljarða króna, fyrir
hlutinn og í kjölfarið settist Adam
Wolfensohn, sonur James, í stjórn
GGE.
Wolfensohn hætti hins vegar að
greiða framlag sitt til GGE í kjölfar
bankahrunsins og bar fyrir sig
óvenjulegar aðstæður. Stjórn GGE
sætti sig ekki við þessar niðurstöður
og samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins lét hún vinna fyrir sig
lögfræðiálit sem sagði að góðar líkur
væru á innheimtu fjárins ef farið yrði
í lögfræðilegar aðgerðir. Þorsteinn
segir að ekki hafi verið um hlutafjár-
loforð að ræða, heldur samning um
að auka hlutafé. Wolfensohn hafi því
einfaldlega skuldað kaupverðið.
„Hann [innsk. blaðam. Wolfensohn]
skrifaði undir samninga þess efnis að
hann hefði komið inn með nýtt
hlutafé. Hann sest síðan í stjórn en
hættir svo við allt saman.“ Að öðru
leyti vildi Þorsteinn ekki tjá sig um
málið.
Segir málið í ferli
Ásgeir Margeirsson hafnar því að
málið hafi ekki verið sett í ferli.
„Þetta mál var rætt í stjórninni og
Wolfensohn var sent bréf. Þeir hafa
svarað því bréfi og menn eru einfald-
lega ekki sammála um túlkun samn-
ingsins. En málið fór í meðferð lög-
fræðinga til þess að fara í innheimtu.
Það er mikill ágreiningur um þetta
mál milli Geysis Green og Wolfen-
sohn. Ég veit ekki hversu langan
tíma það tekur né í hversu hart verð-
ur farið. En málið er komið í þetta
ferli.“
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Forstjóri Ásgeir Margeirsson, for-
stjóri GGE, segir málið í ferli.
Segir Geysi Green ekki
innheimta tvo milljarða
Þorri stjórnar vildi setja skuld Wolfensohn í innheimtu
● HOLLENSKI bankinn DSB var í gær
settur undir stjórn Seðlabanka Hol-
lands til þess að koma í veg fyrir
áhlaup. Segir í úrskurði héraðsdóms að
samþykkt hafi verið beiðni frá DSB um
neyðarheimild til þess að bankinn yrði
færður undir seðlabankann. Verður
sjálfstæður skiptastjórnandi skipaður
til þess að gæta hags kröfuhafa.
Samkvæmt upplýsingum frá Seðla-
banka Hollands þýðir úrskurður hér-
aðsdóms að tímabundið munu við-
skiptavinir DSB ekki geta tekið út
fjármuni sína úr bankanum. Segja þeir
skýringuna á því að óskað var eftir
heimildinni þá að mikið fjárstreymi út
úr bankanum að undanförnu hafi skap-
að hættu á falli DSB. guna@mbl.is
Einn evrópskur banki
til viðbótar fallinn
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
MIÐAÐ við efni samkomulags um
uppgjör milli gamla og nýja Lands-
bankans munu 90 prósent nást upp í
forgangskröfur í gamla bankann, að
því er segir í tilkynningu frá skila-
nefnd hans. Forgangskröfur í bank-
ann eru nær eingöngu vegna innlána
í Icesave-reikninga í Bretlandi og
Hollandi.
Bókfært virði eigna gamla bank-
ans, eftir skuldajöfnun, telst vera
2.545 milljarðar króna. Er nú gert
ráð fyrir því að áætlað verðmæti
þessara eigna sé um 1.180 milljarðar,
eða um 46,4 prósent af bókfærðu
virði.
Skuldir bankans eru sagðar 3.655
milljarðar króna, en þar af eru al-
menn innlán 1.319 milljarðar króna.
Miðað við áðurnefnt verðmat eign-
anna munu þær því ná upp í 89,5 pró-
sent af almennum innlánum. Eftir
standa 139 milljarðar króna.
Í tilkynningunni er tekið fram að
hafa beri í huga að virði eigna sé háð
óvissu, m.a. vegna þróunar í efna-
hagsmálum, hér heima og erlendis.
Þegar vænt virði eigna og skulda
er skoðað eftir starfsstöðvum sést að
stærstur hluti almennra innlána er í
Bretlandi og Hollandi, sem ekki
kemur á óvart, enda voru Icesave-
reikningar Landsbankans umfangs-
mestir í þessum tveimur löndum.
Vænt virði eigna bankans í þessum
löndum nemur hins vegar aðeins 345
milljörðum króna. Bróðurparturinn
af eignum gamla bankans er hér á
landi, eða um 700 milljarðar.
Ríkið eigi áfram 80 prósent
Munar þar mestu um skuldabréf
frá nýja Landsbankanum, NBI, og
hlutafjáraukningu.
Samkomulagið gerir ráð fyrir því
að NBI gefi út skuldabréf til gamla
bankans að fjárhæð 260 milljarðar
króna til tíu ára. Þá er gert ráð fyrir
því að gefin verði út hlutabréf til
gamla bankans að fjárhæð 28 millj-
arða króna, sem svarar til um 20%
heildarhlutafjár NBI.
Fjórir fimmtu hlutafjár í nýja
bankanum verða áfram í eigu ís-
lenska ríkisins.
Fjárhæð skuldabréfsins tekur mið
af mismuni á áætluðu virði þeirra
eigna og skulda, sem færðar voru úr
gamla bankanum í þann nýja. Fari
svo að verðmæti yfirfærðra eigna
reynist meira en matið gerir nú ráð
fyrir, mun NBI gefa út viðbótar-
skuldabréf til gamla bankans og
gæti það numið um 90 milljörðum
króna. Á móti fengi ríkissjóður áður-
nefnd hlutabréf til sín aftur að miklu
leyti. Lokamat verður lagt á eign-
irnar í árslok 2012.
Gera áætlanir ráð fyrir því að
hlutafé NBI verði um 155 milljarðar
króna og mun ríkissjóður leggja
fram 127 milljarða í formi ríkis-
skuldabréfa.
Í tilkynningunni er haft eftir
Steingrími J. Sigfússyni, fjármála-
ráðherra, að samkomulagið sé eitt af
lokaskrefum ríkisstjórnarinnar í
endurreisn bankanna þriggja. Það
uppfylli öll meginmarkmið um að Ís-
lendingar standi á ný upp með traust
bankakerfi, að sanngjarnt uppgjör
við kröfuhafa hafi farið fram og að
útlit sé fyrir ásættanlega ávöxtun á
eiginfjárframlagi ríkisins.
Gera ráð fyrir því að
90% náist upp í Icesave
Áætlað raunvirði eigna gamla Landsbankans er um 46% af bókfærðu virði þeirra
Morgunblaðið/Eggert
Bankar Í júlí greindu stjórnvöld frá því að uppgjöri milli gamla og nýja Kaupþings annars vegar og Glitnis og Ís-
landsbanka hins vegar væri lokið. Óvissan um Landsbankann var hins vegar meiri og beið uppgjör hans þar til nú.
Í HNOTSKURN
»Hlutafé nýja Landsbank-ans (NBI) verður um 155
milljarðar króna og mun rík-
ið eiga 80% hlut í bankanum,
en gamli landsbankinn 20%.
»Bókfært virði eignagamla bankans er 2.545
milljarðar króna og skuldir
3.655 milljarðar.
»Vænt virði eignanna erhins vegar 1.180 millj-
arðar. Forgangskröfur, þ.e.
almenn innlán, nema alls
1.319 milljörðum króna. Ná
væntar eignir því upp í 89,5%
af almennum innlánum.