Morgunblaðið - 13.10.2009, Page 15
Fréttir 15VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2009
FORSVARSMENN vogunarsjóðsins
Boreas Capital segja, að tilgangur
þeirra með því að taka þátt í fund-
um forsvarsmanna Framsóknar-
flokksins með norskum þingmönn-
um, hafi verið að útskýra hvernig
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi
hegðað sér gagnvart Íslendingum.
Í tilkynningu, sem Ragnar Þóris-
son og Frank Óskar Pitt hafa sent
frá sér, „vegna óhróðurs í garð vog-
unarsjóðsins Boreas Capital hjá
„blogglúðrasveit“ Samfylkingar-
innar um helgina“ segja þeir m.a.
að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi
dregið lappirnar í lánveitingum
vegna Icesave, og veikt samnings-
stöðu Íslendinga gagnvart Bretum
og Hollendingum.
Þá gagnrýna þeir að Boreas og
starfsmenn hans hafi í umræðunni
verið spyrtir við Landsbankann og
Björgólf Thor Björgólfsson. Spyrja
þeir hvort fyrrverandi starfsmenn
Landsbankans, sem nú starfi fyrir
einstaka ráðherra sæti sömu gagn-
rýni. Nefna þeir sem dæmi um slíkt
aðstoðarmenn félagsmálaráðherra,
efnahags- og viðskiptaráðherra og
iðnaðarráðherra. bjarni@mbl.is
Gagnrýna
„blogg-
lúðrasveit“
Morgunblaðið/Heiddi
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
TÚNFISKELDISSTÖÐ í Króatíu
hefur náð fram hrygningu hjá tún-
fiski í kvíum og í kjölfarið fengið
hrognin til að klekjast í rannsókn-
arstöð. Er það í fyrsta sinn í heim-
inum, sem það tekst án notkunar
hormónalyfja eða annarra ónátt-
úrulegra leiða til að auka líkur á
hrygningu og klaki.
Króatíska fyrirtækið Kali Tuna
er dótturfélag Atlantis Group, sem
er í meirihlutaeigu Íslendinga. Að
ná hrygningu í kvíum og klaki í
kjölfarið er mikilvægt skref í átt að
seiðaframleiðslu og sjálfbærri tún-
fiskrækt. Hingað til hefur túnfisk-
rækt farið þannig fram að villtur
fiskur er veiddur í net og dreginn í
kvíar, þar sem hann er alinn.
Óli Valur Steindórsson, forstjóri
Kali Tuna, segir að kalla megi klak
í kvíum hinn heilaga kaleik túnfisk-
eldisins. „Við höfðum í raun aðeins
vonast til að ná fram hrygningu í
kvíunum. Að safna saman frjóvg-
uðum hrognum og ná að klekja þau
var framar okkar björtustu von-
um.“
Selja til Japans
Segir hann að rannsóknunum
verði haldið áfram, en markmiðið
sé sjálfbært túnfiskeldi.
Að því markmiði náðu verði auk-
in áhersla lögð á fóðrun fisksins.
„Við fóðrum túnfiskinn í kvíum
okkar á fiski eins og sardínum, an-
sjósum og síld, en ólíkt laxi og
þorski er erfiðara að fóðra túnfisk á
þurrmat. Túnfiskurinn fær stóran
hluta af því vatni sem hann þarf úr
fæðunni og þá verður að hafa í huga
að við erum að ala fisk, sem veiddur
hefur verið villtur. Ekki er ólíklegt
að auðveldara verði að nota hærra
hlutfall af plöntuprótíni við fóðrun
fiska, sem ekki þekkja annað.“ Seg-
ir hann að aðstæður við strendur
Króatíu séu hinar bestu til túnfisk-
eldis, sjórinn hlýr og engin rándýr,
sem stefnt geti kvíunum í hættu.
Atlantis var stofnað árið 2002 af
Íslendingum, en í eigendahópnum
núna er fólk frá Ástralíu og öðrum
ríkjum. Hefur fyrirtækið sérhæft
sig í miðlun sjávarafurða með Jap-
an sem endastöð.
Íslendingar ala túnfisk í Króatíu
Mikilvægum áfanga í sjálfbæru túnfiskeldi var náð í sumar hjá dótturfélagi íslensks fyrirtækis í Króatíu
HREIN eign líf-
eyrissjóða-
kerfisins til
greiðslu lífeyris
nam 1.738 millj-
örðum króna í lok
ágúst og hafði
aukist um 5,6
milljarða króna
frá mánuðinum á
undan. Miðað við
ágúst 2008 hefur eignin hins vegar
minnkað um 84,9 milljarða, eða 4,7
prósent.
Þegar tekið er tillit til verðbólgu á
tímabilinu er raunávöxtun lífeyris-
sjóðakerfisins síðustu 12 mánuði nei-
kvæð um 14 prósent.
Fyrir helgi greindi Seðlabankinn
frá því að hrein eign lífeyrissjóðanna
hefði aukist um 45 milljarða króna í
ágúst. Fyrir mistök hafði liðurinn
„aðrar eignir, nettó“ verið sagður já-
kvæður um rúma tuttugu milljarða,
meðan hið rétta var að hann var nei-
kvæður um rúma 20 milljarða.
bjarni@mbl.is
Raunávöxtun
neikvæð um
14 prósent
Seðlabanki Íslands.
bmvalla.is