Morgunblaðið - 13.10.2009, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2009
SIGURFÖR íslensku kvikmyndar-
innar Algjör Sveppi og leitin að Villa
er hvergi nærri lokið. Hún situr í
fyrsta sæti þriðju vikuna í röð á lista
yfir tekjuhæstu kvikmyndir helg-
arinnar og hafa ríflega 23 þúsund
miðar verið seldir á hana. Myndin er
sýnd í sjö sölum á landinu og ljóst að
þessi mynd fellur vel í kramið hjá Ís-
lendingum, enda fjölskyldumynd og
margar fjölskyldurnar sem fara í bíó
um helgar. Þá hljóta líka að spila inn
í miklar vinsældir Sveppa sem gam-
anleikara og stjórnanda morgun-
þáttar fyrir börn á Stöð 2.
Stúlkan sem lék sér að eldinum er
sýnd í fimm sölum og fylgir fast á
hæla Sveppa í vinsældum. Fleiri
hafa séð þá mynd miðað við meðal-
fjölda á hvern sal en bækur Stiegs
Larsson, um Lisbeth Salander og
Mikael Blomkvist, hafa notið gífur-
legra vinsælda hér á landi líkt og á
öðrum Norðurlöndum. Alls nema
tekjur af þeirri mynd um 10,5 millj-
ónum króna en tekjur af Algjörum
Sveppa 19 milljónum.
Myndin í þriðja sæti er ný á lista,
endurgerð söngleikjamyndarinnar
Fame. Þar dansa og syngja listaspír-
ur í New York og dreymir um fé og
frama. Guð blessi Ísland, mynd um
Hrunið, fer í fimmta sæti, einnig ný
á lista. Hún er að vísu aðeins sýnd í
þremur sölum sem kann að skýra að
einhverju leyti stöðu hennar á lista.
Hryllingsmyndin Orphan, enn og
aftur ný mynd á lista, situr í 6. sæti
en Sæbjörn Valdimarsson gagnrýnir
hana hér til hliðar. Ein frumlegasta
teiknimynd ársins, 9, er í 8. sæti en
hún er aðeins sýnd í tveimur sölum.
Tekjuhæstu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum
Yfir 23 þúsund miðar
seldir á Algjöran Sveppa
!"#
# $
$ % &
! #
' !'
$(#)
#
( " !
*( +
!! ,!
$
- .
/
0 1 (.
(0 2 "
/
Algjör Sveppi Leikstjóri fjölskyldumyndarinnar Algjör Sveppi og leitin að
Villa, hefur ýjað að því að framhaldsmynd verði gerð.
Einn af ónotalegum fylgi-fiskum haustlægðannaeru grimmúðlegar hryll-ingsmyndir sem senda
gesti skjálfandi á beinunum út í
blautan og myrkan kuldagarrann.
Slíkar móttökur veðurguðanna
draga ekki úr áhrifum and-
styggilegra hausthrolla á borð við
Orphan. Það líður ekki á löngu uns
Esther litla fer að sýna sjúklega
hegðun sem gerist æ óhugnanlegri.
Sú stutta er varkár en hvergi bangin
við að beita systkini sín ofbeldi,
morðhótunum og öðrum ámóta
kræsingum til að ná fram vilja sín-
um. Hvað vakir fyrir henni kemur
ekki fram fyrr en í myndarlok og
verður að næsta öfuguggahátt-
arlegum viðsnúningi á ljótri sögu.
Það er sjaldnast heil brú í mynd-
um á borð við þessa. Ef menn á ann-
að borð þola kokteilinn verður að
segja myndinni til hróss að hún
skelfir venjulegt fólk á sínum svæsn-
ustu augnablikum þegar óttinn læsir
í mann kaldri krumlunni. Ekki síst
sakir áreitandi tónsmíða Johns Ott-
mans sem er að verða einn áheyri-
legasti kvikmyndatónlistarmaður
dagsins. Krakkarnir leika furðu vel
miðað við aðstæður, Farmiga á
betra skilið, en Sarsgaard er ekki
sannfærandi sem vingulslegur heim-
ilisfaðir. Hrottaleg mynd en hroll-
vekjandi. saebjorn@heimsnet.is
Óvætturin
frá Eistlandi
Sambíóin
Munaðarleysingi – Orphan
bbbnn
Leikstjóri: Jaume Collet-Serra . Aðal-
leikarar: Vera Farmiga, Peter Sarsgaard,
Isabelle Fuhrman, C C H Pounder,
Jimmy Bennett, Aryana Engineer. 122
mín. Bandaríkin/Spánn, ofl. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Esther „Hvað vakir fyrir henni kemur ekki fram fyrr en í myndarlok og
verður að næsta öfuguggaháttarlegum viðsnúningi á ljótri sögu.“
Aðalleikkonan í Orphan er hin
frekar lítt þekkta Vera Farmiga,
stólpaleikkona, þrjátíu-og-
eitthvað, og hefur smám saman
verið að mjakast upp á yfirborðið
síðasta áratuginn. Ég minnist
hennar fyrst úr Breaking and En-
tering, sem var að öðru leyti
vond mynd frá hendi hins mis-
tæka leikstjóra Anthonys Ming-
hella (The English Patient (́96),
The Talented Mr. Ripley (́99),
Cold Mountain (́03)), sem lést á
síðasta ári. Farmiga fór með lítið,
en vel skrifað, hlutverk vændis-
konu frá austantjaldslandi sem er
boðið að flytja sinn prívatrekstur
í Bentley-lúxusbifreið aðalsögu-
hetjunnar. Það sópaði að Farmiga
og hlutverkið var glettilega fárán-
legt og yndislega upprífandi, í
annars ömurlegri mynd þar sem
hún stal senunni frá Jude Law,
Ray Winstone, Juliette Binoche
og Robin Wright-Penn. Fór létt
með það.
Þegar Farmiga bjargaði bíóferðinni
JULIAN Casablancas, söngvari og lagahöf-
undur The Strokes, segir væntanlega plötu
frá hljómsveitinni verða blöndu af tónlist
Thin Lizzy og A-Ha. Söngvarinn gaf í sumar
út fyrstu sólóplötu sína, Phrazes For The Yo-
ung, en lofar því að plata The Strokes sé ekki
langt undan. Hún verður sú fjórða sem sveit-
in hefur sent frá sér.
Casablancas segir hljómsveitina hafa und-
irbúið plötugerð í marga mánuði og flest lög-
in séu tilbúin til upptöku. Helsti þröskuld-
urinn sé að koma öllum fimm meðlimum
sveitarinnar saman á einn stað. „Ofurþétt
rokk frá seinni hluta áttunda áratugarins
með A-Ha ívafi,“ segir Casablancas um það
hvernig hann vilji hafa plötuna.
Blanda af Thin
Lizzy og A-Ha
The Strokes Nýbylgjurokkarar frá New York.
BRUCE WILLIS ER MÆTTUR
Í HÖRKUSPENNANDI MYND SEM
ENGIN MÁ MISSA AF
MANNLEG
FULLKOMNUN
– HVAÐ GETUR
FARIÐ ÚR-
SKEIÐIS?
SURROGATES
HHHH
- K.U. - TIME OUT NEW YORK
"ENTERTAINING AND INGENIOUS!
- ROGER EBERT
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
EKKI ER ALLT
SEM SÝNIST!
88/100 CHICAGO SUN-TIMES,
ROGER EBERT
STRANGLEGA
BÖNNUÐ BÖRNUM
“MORE SHOCKING
THAN ‘THE SIXTH
SENSE.’”
– PAUL CHRISTENSEN,
MOVIEWEB.COM
“NOT SINCE ‘FATAL
ATTRACTION’ HAS A
MOVIE DELIVERED
SUCH SURPRISING
MOMENTS.”
– MARK S. ALLEN,
CBS-TV
MÖGNUÐ
SPENNUMYND
SEM FÆR HÁRIN
TIL AÐ RÍSA
DRAUMAR
GETA RÆST!
ÞESSI KEMUR ÞÉR Í „FEELING“
Frábær tónlist,
frábær dans,
frábær mynd!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
/ KRINGLUNNI
FAME kl. 5:50D - 8:10D - 10:30D L DIGITAL
ORPHAN kl. 6 - 9:10 16
SURROGATES kl. 8:30 - 10:30 12 DIGITAL
ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN... kl. 6D 16 DIGITAL
KRAFTUR Síðasti spretturinn kl. 8D Síðustu sýn. sú síðasta á fimmtud. L DIGITAL
/ ÁLFABAKKA
FAME kl. 5:50 - 8D - 10:20D L DIGITAL FUNNY PEOPLE kl. 8 - 10:50 12
FAME kl. 10:20 LÚXUS VIP HAUNTING... kl. 10:20 16
ORPHAN kl. 8 - 10:30 16 DISTRICT 9 kl. 8 16
SURROGATES kl. 6 - 8 - 10:10 16 DIGITAL BANDSLAM kl. 5:50 L
SURROGATES kl. 6 - 8 LÚXUS VIP UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:50 L
ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN... kl. 5 - 6D L DIGITAL
ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN...
FAME
FUNNYPEOPLE
MANAGEMENT
SURROGATES