Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3. N Ó V E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
297. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
mbl.is
«FJÖLSKYLDAN Í BORGARLEIKHÚSINU
NÆR ÓAÐFINNANLEGT
SJÓNARSPIL
«ÓÞOL SEM LEYNIST Í BÍÓI
3-bíó með börnum
besta lausnin
96
ára
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
FINNUR Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings,
vildi í samtali við Morgunblaðið ekki svara því hvort for-
dæmi væru fyrir því að eigendur fyrirtækja fengju tugi
milljarða afskrifaða samfara því að halda yfirráðum í fyr-
irtækjunum. Finnur staðfesti jafnframt að ein möguleg
lausn á málefnum eigenda Haga, 1998 ehf., væri að eig-
endur fengju ákveðinn frest til að koma með nýtt hlutafé
inn í rekstur félagsins. „Verið er að kanna hvort sú lausn
gangi upp eða ekki.“ 1998 ehf. er í eigu Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar og fjölskyldu hans.
Getur skipt máli vegna viðskiptatengsla
Finnur segir að áframhaldandi þátttaka eigenda fyr-
irtækja geti skipt máli fyrir framtíðarvirði þeirra, þá sér-
staklega með vísan til hugsanlegra viðskiptatengsla sem
eigendur kunni að búa yfir. „Þetta er þó mismunandi frá
einu tilfelli til annars,“ segir Finnur.
Í verklagsreglum Nýja Kaupþings segir að áfram-
haldandi þátttaka sé meðal annars háð því að viðkomandi
eigendur njóti trausts. Finnur Sveinbjörnsson sagðist
ekki mundu vilja svara því með beinum hætti hvort
traust væri fyrir hendi í tilfelli Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar. „En reglurnar eru skýrar. Ég vil ekki vera með
vangaveltur um það hvernig þetta mál endar,“ sagði
Finnur.
Spurður um það hversu miklu Nýja Kaupþing hefði
tapað á gjaldþroti Baugs sagðist Finnur ekki hafa tekið
það saman. Finnur var jafnframt inntur eftir því hversu
miklu Nýja Kaupþing hefði tapað á viðskiptum við félög
tengd Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, en hann kvaðst vona að
það tap yrði ekki neitt.
Svarar engu um traust
Bankastjóri Nýja Kaupþings útilokar ekki aðkomu eigenda
1998 að endurskipulagningu á eignarhaldi Haga
Eigendur 1998 | 6-7
ÞREIFINGAR Nýja Kaupþings og eigenda Haga um
skuldir þeirra síðarnefndu skipta ekki aðeins sköpum
fyrir Hagkaup, Bónus og 10-11 heldur einnig Ferskar
kjötvörur, Banana, Aðföng, Hýsingu, Debenhams,
Topshop, All Saints, Karen Millen, Útilíf, Warehouse,
Zara, Evans og Oasis, svo nokkur séu nefnd. | 7
MIKIL ÁHRIF Á FJÖLDA FYRIRTÆKJA
Morgunblaðið/Golli
Þrotabú Ís-
lenskrar afþrey-
ingar, áður 365
hf., hefur stefnt
Rauðsól ehf., fé-
lagi í eigu Jóns
Ásgeirs Jóhann-
essonar. Krefst þrotabúið þess m.a.
að rift verði þeirri ráðstöfun Ís-
lenskrar afþreyingar að veita
Rauðsól 155 milljóna króna afslátt
af kaupverði 365 miðla ehf.
Friðjón Örn Friðjónsson, skipta-
stjóri Íslenskrar afþreyingar, segir
í samtali við Morgunblaðið að salan
á 365 miðlum sé enn til skoðunar.
Búið sé að taka ákvörðun um að
krefjast riftunar á þessum einstaka
hluta málsins, en þessi stefna úti-
loki ekki þann möguleika að síðar
verði gerð krafa um að kaupunum í
heild verði rift. »12
Stefnir Rauðsól vegna 155
milljóna afsláttar af 365
Fjármálaeftirlitið, FME, hefur
frá áramótum vísað 25 málum til
sérstaks saksóknara, sem rann-
sakar banka-
hrunið. Alls
hefur FME
tekið fyrir
82 mál þar
sem lög um
verðbréfa-
viðskipti
hafa verið brotin með einhverjum
hætti. Í 45 þessara mála hefur um-
fjöllun lokið með sátt og sekt-
argreiðslum, en til samanburðar
lauk aðeins einu máli hjá FME
með sátt á síðasta ári. Mörg mál-
anna snúast um léleg skil á upp-
lýsingum um innherja. Fimm mál-
um hefur verið vísað til
ríkissaksóknara, tveimur til efna-
hagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra og stjórnvaldssektir
verið lagðar á í fimm málum frá
áramótum. »12
FME hefur vísað 25 málum
til sérstaks saksóknara
Vinsældir Bar-
acks Obama
Bandaríkja-
forseta fara ört
dvínandi. Í ný-
legri úttekt tíma-
ritsins Newsweek
var rýnt í 15
kosningaloforð
Obama, sem sigr-
aði í forsetakosningunum fyrir réttu
ári, og í ljós kom að aðeins tvö höfðu
verið uppfyllt. Stuðningsmönnum
hans finnst hann óákveðinn og líta
aðeins 29% kjósenda á störf hans
með mikilli velþóknun. »16
Vinsældir Baracks Obama
fara þverrandi heima fyrir
GRÆNN
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
.
RAUÐUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
R.
HVÍTUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
.
GULUR
TILBÚINN
TIL NOTK
UNAR
lsi 3 - 11
0 R.
„Skuldaúrvinnsla
einstakra fyr-
irtækja er í hönd-
um bankanna og
þeir verða að
vinna samkvæmt
samræmdum og
vönduðum
reglum í þeim
efnum,“ segir
Steingrímur J.
Sigfússon, fjár-
málaráðherra. Hann ætlast til að
skuldamál Haga og 1998 þoli gagn-
rýna skoðun. »4
Vill að málið þoli
gagnrýna skoðun
Steingrímur J.
Sigfússon
BJARNI Bene-
diktsson, for-
maður Sjálfstæð-
isflokks, segir
alvarlegt að mis-
tekist hafi að
skapa traust á
því ferli sem fer
af stað í bönk-
unum við end-
urskipulagningu
skuldastöðu fyr-
irtækja.
Botn kreppunnar nálgist og í
kjölfarið muni eiga sér stað mikil
verðmætasköpun. „Við þurfum því
að hugleiða það núna, hvort við vilj-
um að sú verðmætaaukning lendi
öll í höndum erlendra kröfuhafa, í
gegnum eignarhald þeirra á bönk-
unum.“ »5
Mistekist hefur að
skapa traust á ferli
Bjarni
Benediktsson
„ÉG SAGÐI þá
að ég teldi ekki
að endurreisa
ætti þau félög.
Ég hef ekki skipt
um skoðun í þeim
efnum og segi
það enn,“ segir
Gylfi Magnússon
viðskiptaráð-
herra um það
sem hann nefnir
„eignarhaldsfélög sem voru hér
allsráðandi á undanförnum árum“.
Gylfi vildi þó ekki lýsa afstöðu
sinni til þessa tiltekna skuldamáls,
enda hefur hann ekkert um það í
höndunum. »6
Hefur ekki skipt um
skoðun á félögunum
Gylfi
Magnússon