Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2009
✝ Pétur Ólafur Wel-ker Ólafsson
fæddist í Dassow í
Þýskalandi 3. sept-
ember 1942. For-
eldrar hans voru
Katrín Vilhelmsdóttir,
f. í Dassow 6. ágúst
1923, d. 19. mars 2005
og Rudolf Welker, f. í
Worms 12. ágúst 1921,
d. 12 nóvember 1992.
Alsystir Péturs er
Karen og sammæðra
er Ólafur, þau búa í
Reykjavík, og sam-
feðra systur Péturs eru Haike,
Petra og Ute, sem allar eru búsettar
í Þýskalandi. Pétur ólst upp í Þýska-
landi til 12 ára aldurs og lá leið hans
til Íslands árið 1954 ásamt systur
sinni Karen til móður þeirra sem
geirssyni, þau eiga þrjú börn, Frið-
geir, f. 10.8. 1966, d. 8.1. 1995, lét
eftir sig tvö börn, og Hrólfur Arnar,
f. 30.12. 1968, kvæntur Sólveigu Sæ-
bergsdóttur, þau eiga fjögur börn.
Sigrún og Pétur giftu sig hinn 31.
desember 1970. Börn þeirra hjóna
eru: Pétur Ólafur, f. 24.2. 1971,
maki Jónheiður B. Kristjánsdóttir,
þau eiga tvö börn, Rúnar Þór, f. 8.8.
1976, maki Heiða Steinarsdóttir,
þau eiga eitt barn, Karen Welker, f.
11.11. 1979, maki Stefán Egilsson,
þau eiga tvö börn, og Birgir Michael
Welker, f. 24.9. 1983, maki Stefanía
Helga Bjarnadóttir, Birgir á eina
dóttur.
Pétur byrjaði snemma að vinna
og 18 ára gamall réð hann sig á olíu-
skipið Hamrafell og svo lá leiðin í
land og lagði Pétur stund á járn-
smíði og varð það hans ævistarf,
lengst af vann hann svo hjá Olíufé-
laginu Esso. Pétur var einn af þess-
um mönnum sem kalla má þúsund-
þjalasmiði.
Pétur verður jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju í dag, 3. nóvember, og
hefst athöfnin kl. 13.
var gift Ólafi Ingólfs-
syni, f. 19. nóvember
1919, d. 16. janúar
1981, sem gekk þeim í
föðurstað .
Árið 1962 kynntist
Pétur svo eiginkonu
sinni Sigrúnu Þór-
önnu Welker Frið-
geirsdóttur, f. í Vest-
mannaeyjum 17.5.
1948, og lágu leiðir
þeirra ekki saman
fyrr en 1969. For-
eldrar hennar voru
Friðgeir Guðmunds-
son, f. 21. júlí 1916, d. 6.júní 2001 og
Elínborg Dagmar Sigurðardóttir, f.
8. sept 1915, d. 9. júlí 1991. Sigrún
Þóranna átti fyrir þrjú börn sem
Pétur gekk í föðurstað: Guðrún
Ólöf, f. 30.7. 1965, gift Þorbirni Ás-
Ástin mín, nú er komið að kveðju-
stundu.
Alltaf þrái ég þig heitt
þó líði ár
í heiminum getur ei neitt
þerrað mín tár.
Þó líði ár og öld
er ást mín ætíð ætluð þér
þó gleymir þú í heimsins glaum
öllu um mig
ég elska þig.
Í svefni sem vöku
sé ég þig
brosandi augun þín
yfirgefa ei mig.
Svo flykkjast árin að
og allt er breytt
í minningunni brenna þó
augun þín heit.
(Kristmann Vilhjálmsson.)
Elsku Pétur minn, í mínum augum
varstu mikil hetja, minninguna um
þig mun ég ávallt geyma í hjarta mínu
þar til við hittumst aftur. Ég vil koma
á framfæri sérstöku þakklæti til Ax-
els F. Sigurðssonar hjartalæknis sem
annaðist okkur í þínum miklu veik-
indum og stóð með okkur allt til loka,
enn fremur starfsfólks á gjörgæslu-
deild LHS við Hringbraut og í Foss-
vogi og þá sérstaklega Rannveigar.
Minning þín er ljós í lífi mínu.
Ástin mín, nú er komið að kveðju-
stund, sofðu rótt ástin mín, þín eig-
inkona að eilífu,
Sigrún Þóranna Welker
Friðgeirsdóttir.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku pabbi, hvíl í friði, Guð geymi
þig.
Guðrún Ólöf (Gunna).
Elsku pabbi minn, ekki óraði mig
fyrir því hversu stutt þú ættir eftir
þegar ég hitti þig uppi á verkstæði
hjá mér í byrjun október og við spjöll-
uðum lítillega saman, en daginn eftir
var ég floginn til útlanda. Það var eins
og á milli okkar væru álög síðustu ár-
in; í hvert skipti sem ég fór lagðist þú
inn á spítala veikur, en náðir þó alltaf
að rísa upp aftur hversu tvísýnt sem
ástandið var. Þú varst svo sterkur
þótt þú hafir verið svona mikið veikur
síðustu árin, en mikið er ég feginn,
pabbi minn, að hafa verið kominn
heim og hafa fengið að halda í hönd-
ina á þér og strjúka þér um hárið þeg-
ar þú kvaddir þennan heim. Það er
mér ómetanlegt og mun ég geyma þig
í hjarta mínu svo lengi sem ég lifi og
allar þær stundir sem við áttum sam-
an, sem voru ófáar, eins og til dæmis
öll sumrin sem við vorum saman þeg-
ar þú varst með hænsnahúsið uppi í
Miðdal. Minningarnar sem ég á um
okkur þar eru mér ómetanlegar nú á
þessari stundu þegar ég horfi til
baka, þegar allt okkar lífsskeið renn-
ur upp fyrir mér, hversu heppinn ég
var að hafa átt þig að.
En, elsku pabbi minn, ég veit að þú
ert núna kominn á betri stað og ert í
góðum höndum hjá öllu okkar fólki
sem kvatt hefur þennan heim, og ég
tala nú ekki um Brúnó bangsa og
Tínó sem þú saknaðir svo sárt.
En eitt veit ég, pabbi minn, að sá
dagur kemur að ég hitti þig aftur.
Þangað til veit ég að þú vakir yfir
okkur öllum sem eftir sitjum og
minning mín um þig verður ljós í lífi
mínu.
Blessuð sé minning þín, elsku
pabbi minn.
Þinn
Hrólfur.
Elsku pabbi/tengdapabbi/afi, okk-
ur grunaði ekki síðast þegar þú
komst í kvöldkaffi til okkar að það
yrði í síðasta sinn sem þú kæmir til
okkar. Þú varst svo hress og kátur
eins og alltaf þegar þið Rúna komuð
til okkar, þá sátum við í eldhúsinu og
hlógum og gerðum grín. Það var líka
stutt í stríðnina hjá þér og það sem
við gátum hlegið að vitleysunni í okk-
ur. Ef þér fannst eitthvað ekki nógu
vel gert hérna hjá okkur og við lög-
uðum það ekki strax gerðir þú það
bara sjálfur næst þegar þú komst,
eins og með skáphurðirnar í holinu,
sem fóru svo í taugarnar á þér að þú
tókst þær niður og fórst með þær
heim og lagaðir þær og settir þær
upp aftur. Þú varst svo rosalega
vandvirkur. Mjög sárt er að við
skyldum ekki vera búin að fram-
kvæma það sem við báðum þig að
vera með okkur í en við vitum að
þegar að því kemur verður þú
örugglega okkur við hlið.
Okkur fannst rosalega gaman að
hlusta á þig og Rúnu segja frá
heimalandi þínu, Þýskalandi.
Du kamst, du gingst mit leiser Spur,
ein flüchtiger Gast im Erdenland.
Woher? Wohin? Wir wisse nur:
Aus Gottes Hand in Gottes Hand.
(Ludwig Ludwig Uhland)
Þú munt alltaf vera í hjarta okkar
og eigum við eftir að sakna þín mik-
ið.
En huggum okkur við það að nú
finnur þú hvergi til og líður vel. Þú
þarft ekki að hafa áhyggjur af Rúnu
þinni. Við munum passa hana og
biðjum guð að styrkja hana og fjöl-
skylduna.
Pétur og Jónheiður og börn.
Elsku pabbi.
Mig langar að þakka þér fyrir all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
saman. Þetta ljóð segir allt sem mig
langar til að segja:
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi
pabbi minn
vegir okkar skiljast núna, við
sjáumst ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum
okkar hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu,
okkar ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og
góðleg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og
lítur okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara
það ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur
þú á braut
gleði og gæfa okkar fylgdi með þig
sem förunaut.
Og ferðirnar sem fórum við um
landið út og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Denver/Guðrún Sigurbjörnsdóttir.)
Hvíldu í friði, elsku pabbi minn.
Þinn sonur,
Rúnar Þór.
Elsku pabbi minn, mig langar til
þess að kveðja þig með þessum fal-
lega texta.
Pétur Ólafur Welker
Ólafsson
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birtist
valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minn-
ingargrein á útfarardegi verður
hún að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út. Greinar, sem berast eftir að út-
för hefur farið fram, eftir tiltekinn
skilafrests eða ef útförin hefur
verið gerð í kyrrþey, eru birtar á
vefnum, www.mbl.is/minningar.
Æviágrip með þeim greinum verð-
ur birt í blaðinu og vísað í greinar
á vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Engin
lengdarmörk eru á greinum sem
birtast á vefnum.
Minningargreinar
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
GUNNARS JAKOBSSONAR,
Lerkilundi 18,
Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Helgadóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGURLAUG HELGADÓTTIR,
Borgarbraut 65,
Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtu-
daginn 5. nóvember kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabba-
meinsfélag Íslands.
Gunnar Gauti Gunnarsson, Edda Soffía Karlsdóttir,
Guðbjörg Lilja Gunnarsdóttir,
Sigurlaug Tanja Gunnarsdóttir,
Árni Gunnarsson, Sigríður Eva Magnúsdóttir,
Sólveig Gunnarsdóttir,
Margrét Gunnarsdóttir,
Gauti, Daði og Birkir Árni.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
SVALA ÁRNADÓTTIR,
Ekrusmára 1,
Kópavogi,
sem andaðist á heimili sínu fimmtudaginn
29. október, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík fimmtudaginn 5. nóvember kl. 15.00.
Björn Pálsson,
Margrét Erla Björnsdóttir, Sverrir Guðmundsson,
Björn Fannar Björnsson,
Sandra Dögg Björnsdóttir, Hafþór Davíð Þórarinsson,
Bjarki Rúnar Sverrisson,
Björn Þór Sverrisson
og systkini.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR J. S. FLÓVENZ
fyrrv. framkvæmdastjóri
Síldarútvegsnefndar,
Kópavogsbraut 88,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 6. nóvember kl. 15.00.
Sigrún Ólafsdóttir Flóvenz,
Ólafur G. Flóvenz, Sigurrós Jónasdóttir,
Brynhildur G. Flóvenz, Daníel Friðriksson,
Margret G. Flóvenz, Tryggvi Stefánsson,
Gunnar Gunnarsson, Bera Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SESSELJA EINARSDÓTTIR,
áður til heimilis í
Löngumýri 26,
Garðabæ,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn
29. október.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ, fimmtudaginn
12. nóvember kl. 15.00.
Edda Sigrún Gunnarsdóttir, Þórður Sigurðsson,
Guðrún Gunnarsdóttir, Sigurjón Sigurðsson,
Marteinn Gunnarsson, Ingunn Steinþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.