Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2009
SÖLUÁTAK á böngsum til styrktar
leitarstarfi Krabbameinsfélagsins
gekk vonum framar í síðustu viku,
en fyrirtækið Friendtex stóð fyrir
sölunni og tók þannig þátt í barátt-
unni gegn krabbameini sjöunda ár-
ið í röð.
„Salan hefur gengið vonum fram-
ar, en allur ágóði af sölu bangsanna
rennur óskiptur til Krabbameins-
félagsins,“ segir Ása Björk Sigurð-
ardóttir, eigandi Friendtex á Ís-
landi. Hjá fyrirtækinu starfar fjöldi
sjálfstætt starfandi sölufulltrúa
sem flestir tóku þátt í átakinu auk
þess sem bangsarnir eru seldir í
verslunum víða um land.
Bangsar áfram til sölu
Þrátt fyrir að þessu sérstaka
söluátaki sé lokið munu sölu-
fulltrúar og verslanir halda áfram
að selja bangsana meðan birgðir
endast. „Við höfum fundið fyrir
mikilli jákvæðni og viljum því gefa
fólki færi á að nálgast bangsana
áfram. Svo viljum við koma sér-
stökum skilaboðum til jólasvein-
anna og hvetja þá til að kaupa
bangsa því þeir eru tilvalin gjöf í
skóinn,“ segir Ása, en bangsarnir
kosta kr. 1.000 og eru smáir svo
þeir passa vel í skótau unga fólks-
ins. Vinnuhópar og starfsmanna-
félög geta pantað bangsa með því
að senda tölvupóst á sala@friend-
tex.is.
Bangsarnir verða seldir á
meðan birgðir endast
RANGHERMT var í Morgun-
blaðinu fyrir helgi að Kári Stef-
ánsson hefði fengið Jahres-
verðlaunin fyrstur Íslendinga. Hið
rétta er að Karl Sigurðsson, rektor
við Karolinska Institutet í Stokk-
hólmi, fékk verðlaunin árið 1998.
Fékk verðlaunin
árið 1998
LEIÐRÉTT
FORSVARSMENN SA og ASÍ gera
ráð fyrir að viðræður þeirra við
stjórnvöld um stöðugleikasáttmál-
ann haldi áfram í þessari viku. Að-
eins eitt mál stendur út af í þeim
viðræðum, en það eru orku- og auð-
lindaskattar. Að sögn Vilhjálms Eg-
ilssonar, framkvæmdastjóra SA,
þyrftu málin helst að skýrast fyrir
vikulokin. „Þessir skattar eru mjög
óæskilegir því þeir hafa áhrif á
stöðu Íslands sem fjárfesting-
arkosts, en við þurfum á fjárfest-
ingum að halda í orkufrekum iðn-
aði til þess að komast út úr
kreppunni,“ segir Vilhjálmur. Und-
ir þetta tekur Gylfi, en bendir á að
hjá ASÍ séu menn ekki mótfallnir
þessum sköttum sem slíkum heldur
útfærslu þeirra. „Útfærsla auð-
lindaskatts þarf að gerast í sátt í
samfélaginu,“ segir Gylfi.
Skattamálin
standa út af
FORMAÐUR heilbrigðisnefndar
Alþingis, Þuríður Backman, veitti
nýverið viðtöku áskorun til þing-
manna frá aðstandendum Vímu-
varnaviku, eða Viku 43. Þar eru all-
ir hlutaðeigandi aðilar hvattir til að
huga enn betur að fræðslu um skað-
semi kannabisefna. Það var verk-
efnisstjóri Viku 43, Guðni R.
Björnsson, sem afhenti áskorunina.
Áskorun til þingmanna
STÖÐUGILDI hjá íslenska ríkinu
voru 17.701 í lok september að því er
kom fram í svari Steingríms J. Sig-
fússonar fjármálaráðherra við fyr-
irspurn á Alþingi. Eru þetta svip-
aður fjöldi og árið 2006 en 2007
fjölgaði stöðugildum hjá ríkinu í
18.547 og í fyrra voru þau 18.243.
Árið 2005 voru 16.000 stöðugildi
hjá ríkinu. Árið eftir færði stærsti
hluti heilbrigðisstofnana launa-
afgreiðslu sína yfir til ríkisins, eða
sem samsvarar um 1.500 stöðugild-
um. Sama ár var lögregluumdæmum
fækkað í 15. Þessi breyting hafði
áhrif á fjölda stöðugilda innan lög-
gæslunnar sem og í öðrum störfum.
Stöðugildum
fækkað
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 38-56
Gallabuxur
og bolir
Álfhólsvegi 67, 200 Kópavogi, sími 554 5820.
Opið kl. 16-18 þri., mið., fim.
Silfurhúðum
gamla muni
Skór & töskur
Sérverslun með
FÁKAFENI 9
(við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18
& laugard. 11-16
www.gabor.is
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Peysuvesti
með áföstum topp
Verð
7.900 kr.
FRÁBÆR BUXNASNIÐ
NÝKOMNAR SVARTAR GALLABUXUR,
EINNIG KLASSÍSKAR SPARI- OG VINNUBUXUR,
SVARTAR, GRÁAR OG BRÚNAR
MÖRG SNIÐ – 2 SÍDDIR
www.nora.is Dalve
opið: má-fö. 11-18,
laugard. 11-16
Opið: má-fö. 12-18,
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Í ár eru eftirfarandi fyrirtæki tilnefnd:
Samhliða fer fram val á Markaðsmanni ársins.
Miðvikudaginn 4. nóvember kl. 12.00 - 13.30
á Hilton Reykjavík Nordica.
Verð 3.800 kr. fyrir ÍMARK félaga og 4.900 kr.
fyrir aðra – hádegisverður innifalinn.
Skráning á imark.is eða á imark@imark.is
Markaðsverðlaun
ÍMARK 2009
CCP
N1
Nova
Vodafone
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson,
afhendir verðlaunin. Sem fyrr eru þau veitt fyrirtækjum
sem hafa verið áberandi í markaðsmálum á líðandi ári
og sannað þykir að hafi náð sýnilegum árangri.
Við ákvörðun um verðlaunahafa er tekið mið af
fagmennsku í markaðsmálum.