Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2009
GYLFI Magnússon,
efnahags- og viðskipta-
ráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær,
að þeir í Kaupþingi
hefðu lýst því yfir að
engar afskriftir hefðu
verið ákveðnar í bank-
anum á skuldum Haga
og 1998 í Kaupþingi. „Á
meðan að staðan er sú og
ég hef ekkert í hönd-
unum um að Kaupþing
hyggist afskrifa tugi
milljarða af skuldum eig-
enda Haga, get ég ekki
verið að lýsa afstöðu til
þessa tiltekna skulda-
máls Haga í Kaupþingi,“ sagði Gylfi.
Spurður um það hvort hann teldi
að það væri eðlilegt að eigendur
Haga og 1998, þ.e. Jón Ásgeir Jó-
hannesson og fjölskylda, fengju að
kaupa 60% hlut í Högum fyrir sjö
milljarða króna, sagði Gylfi: „Ég tjáði
mig áður en ég varð ráðherra og eftir
að ég varð ráðherra um hvað mér
finnist um þau eignarhaldsfélög sem
voru hér allsráðandi á undanförnum
árum. Ég sagði þá að ég teldi ekki að
endurreisa ætti þau félög.
Ég hef ekki skipt
um skoðun í þeim efn-
um og segi það enn, en
ætla samt sem áður
ekki að tjá mig um
málefni eða skulda-
stöðu einstakra fyr-
irtækja, hvorki Haga
né annarra, sér-
staklega ekki á meðan
ekki liggur fyrir hvort
fréttir af þeim eru rétt-
ar eða rangar.“
Hagar voru eins og
kunnugt er í eigu eign-
arhaldsfélagsins Baug-
ur Group þar til sum-
arið 2008, þegar
félagið var selt til 1998, félags í eigu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjöl-
skyldu, og voru kaupin fjármögnuð
með láni frá Kaupþingi.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í gær
og fyrradag tókst Morgunblaðinu
ekki að ná sambandi við Jóhönnu Sig-
urðardóttur, forsætisráðherra, til
þess að spyrja um afstöðu hennar til
hugsanlegra afskrifta nýja Kaup-
þings á tugmilljarðaskuldum eigenda
Haga og 1998 í Kaupþingi.
agnes@mbl.is
Á ekki að end-
urreisa eignar-
haldsfélög
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskipta-
ráðherra, segir ekki liggja fyrir hvernig
Kaupþing afgreiði skuldamál Haga
Gylfi Magnússon
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
BANKASTJÓRI Nýja Kaupþings
staðfesti í gær að eigendur 1998
ehf. hefðu nokkrar vikur til að
koma með nýtt fé inn í félagið. 1998
er eigandi smávöruverslanakeðj-
unnar Haga. Finnur Sveinbjörns-
son sagði í samtali við sjónvarps-
fréttir Morgunblaðsins að
eigendum 1998 hefði verið gefinn
ákveðinn frestur til að vinna að
mögulegri lausn málsins. Að-
spurður hvort Jón Ásgeir Jóhann-
esson og aðrir eigendur 1998 nytu
trausts hjá Nýja Kaupþingi kvaðst
hann ekki vilja svara því með bein-
um hætti. Finnur sagði reglur
bankans hvað varðaði end-
urskipulagningu skuldsettra fyr-
irtækja skýrar, en hann kvaðst
jafnframt ekki vilja velta vöngum
yfir lausn mála sem væru enn í
vinnslu.
Í verklagsreglum Nýja Kaup-
þings um lausnir á útlánavanda fyr-
irtækja segir að áframhaldandi
þátttaka eigenda við rekstur illa
staddra fyrirtækja byggist á trausti
og að viðkomandi eigendur séu mik-
ilvægir framtíð fyrirtækjanna. Að-
spurður hvort fordæmi væru fyrir
því að eigendur fyrirtækja fengu af-
skrifaða tugi milljarða samfara
áframhaldandi þátttöku í rekstri og
eignarhaldi fyrirtækja sagðist
Finnur ekki mundu upplýsa um
það. „En það eru auðvitað uppi mis-
munandi sjónarmið um hvort þátt-
taka núverandi eigenda sé mik-
ilvæg,“ sagði hann. „Áframhaldandi
þátttaka stjórnenda getur skipt
máli. Eigendur geta hugsanlega
gegnt einhverju hlutverki líka,“
sagði Finnur, og vísaði því til rök-
stuðnings til samninga eða tengsla
sem eigendur fyrirtækja kunna að
hafa. „Þetta er mismunandi frá einu
tilfelli til annars.“
Baugur, sem var í eigu Jóns Ás-
geirs og fjölskyldu, skildi eftir sig
stærsta þrotabú íslenskrar gjald-
þrotasögu. Heildarkröfur í þrotabú
Baugs námu 316,7 milljörðum
króna, og þess má geta að kröfu
skilanefndar Kaupþings í þrotabú
Baugs upp á 27 milljarða króna var
hafnað með fyrirvörum. Finnur
sagðist ekki hafa tekið saman
hversu miklu Nýja Kaupþing tapar
á gjaldþroti Baugs. Þegar Finnur
var inntur eftir því hversu mikið
hefði tapast á viðskiptum við Jón
Ásgeir Jóhannesson var svarið ein-
falt: „Vonandi ekki neitt.“
Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi
var einnig greint frá því að Nýja
Kaupþing hefði stefnt eignarhalds-
félaginu BGE ehf. vegna vangold-
Eigendur 1998 ekki
Bankastjóri Nýja Kaupþings óviss um tap vegna Baugs
Skuldir Haga
Þekktustu fyrirtæki Haga eru lík-
lega matvöruverslanirnar Hag-
kaup, Bónus og 10-11. Félagið er
hins vegar afar umsvifamikið á
íslenskum smásölu- og vörudreif-
ingarmarkaði. Meðal annarra fyr-
irtækja sem Hagar hafa á sínum
snærum eru Ferskar kjötvörur,
eitt stærsta fyrirtæki landsins á
sviði kjötvinnslu. Einnig eru Ban-
anar hf. undir hatti Haga, en um
er að ræða stærsta dreifingar-
aðila ávaxta og grænmetis á Ís-
landi. Á heimasíðu Haga segir
raunar berum orðum að Bananar
ehf. séu stærsta innflutningsfyr-
irtæki landsins. Aðföng, sem er
dreifingarfyrirtæki, og Hýsing,
sem sýslar með tollafgreiðslu og
lagerhald, eru stór fyrirtæki á
sínu sviði sem þjónusta þó að-
allega önnur fyrirtæki Haga.
Hagar reka 13 smásöluverslanir
með klæðnað og annað. Þær
verslanir eru Debenhams, Karen
Millen, All Saints, Warehouse,
Topshop, Zara, Oasis, Dorothy
Perkins, Coast, Evans, DAY, Jane
Norman og Útilíf. Á heimasíðu
Haga segir að meginhlutverk fyr-
irtækisins sé að veita viðkomandi
fyrirtækjum aðhald, og „finna
sameiginlega fleti sem geta leitt
til hagræðingar í kostnaði og
aukið tekjumöguleika“, eins og
það er orðað.
Hvaða fyrirtæki eiga Hagar?