Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 23
Það bærist alltaf í brjósti hljótt,
það ber þér lífsvökvann dag og
nótt.
Á öllum stundum með traustan
takt,
það tekur slögin á ævivakt
Og hindrun ýmsa á æviferð
það yfirstígur með sinni gerð.
En mynd þíns hjarta er mildin sterk
og máttur þess lífsins kraftaverk.
Í huga mínum er hjartans mál
það heilá og fagra í þinni sál.
Jafnt ástin ljúfa sem hugsjón há
er hjarta bundin og Guði frá.
(Hjálmar Jónsson.)
Takk fyrir allt, minning þín lifir í
hjarta mínu að eilífu.
Þín dóttir
Karen Welker Pétursdóttir.
Elsku pabbi minn, mér þykir svo
leitt að þú hafir þurft að kveðja svona
fljótt, þar sem öll okkar ár hafa verið
yndisleg þrátt fyrir veikindi þín, það
var bara svo gaman að fá að vera með
þér í skúrnum og lærði ég margt af
þér þar. Þú hefur kennt mér mikið
um ævina, hluti sem nýtast mér alla
ævi. Frá því ég var lítill hef ég haft
sama áhugamál og þú og vil ég þakka
þér fyrir allar þær stundir sem við
áttum saman elsku pabbi minn.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Hvíl í friði.
Þinn sonur
Birgir.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
:,:veki þig með sól að morgni:,:
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
:,:Þú vekur hann með sól að
morgni.:,:
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
:,:vekja hann með sól að morgni:,:
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
:,:Svo vaknar hann með sól að
morgni:,:
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér
nær
aldrei ég skal þér gleyma.
svefnsins draumar koma fljótt.
:,:svo vöknum við með sól að
morgni:,:
Þín verður sárt saknað, elsku Pét-
ur minn.
Blessuð sé minning þín.
Þín tengdadóttir,
Sólveig Sæbergsdóttir.
Elsku Pétur.
Við andlátsfregn þína,
allt stöðvast í tímans ranni.
Og sorgin mig grípur,
en segja ég vil með sanni,
að ósk mín um bata þinn,
tjáð var í bænunum mínum,
en Guð vildi fá þig,
og hafa með englunum sínum.
Við getum ei breytt því
sem frelsarinn hefur að segja.
Um hver fær að lifa,
og hver á svo næstur að deyja.
Þau örlög sem við höfum hlotið,
það verður að skilja.
Svo auðmjúk og hljóð,
við lútum að frelsarans vilja.
Þó sorgin sé sár,
og erfitt er við hana að una.
Við verðum að skilja,
og alltaf við verðum að muna,
að Guð hann er góður,
og veit hvað er best fyrir sína.
Því treysti ég nú,
að hann geymi vel sálina þína.
Þótt farin þú sért,
og horfin ert burt þessum heimi.
Ég minningu þína,
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Ástvini þína, ég bið síðan
Guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
(Bryndís Halldóra Jónsdóttir)
Guð geymi þig.
Þín tengdadóttir
Heiða Steinarsdóttir.
Elsku Pétur minn, mér finnst bara
eins og það hafi verið í gær sem við
sátum inni í eldhúsi að spjalla, það var
alltaf svo auðvelt að spjalla við þig og
fá þig til að brosa og alltaf fannst mér
jafn gaman að heyra þig segja: „Stef-
anía, þú ert nú svolítið fyndin.“
Þú varst algjör gullmoli og mun ég
alltaf geyma þig á sérstökum stað í
hjartanu. Þín verður sárt saknað og
lofa ég að passa Bigga þinn vel.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson.)
Hvíl í friði.
Þín tengdadóttir
Stefanía Helga.
Afi.
Farinn ertu jörðu frá
og sárt ég þín sakna.
Stundum ég þig þykist sjá
á morgnana þegar ég vakna.
Ég veit þér líður vel, afi minn
vertu nú hress og kátur
Innra með mér nú ég finn
þinn yndislega hlátur.
Fyrir sál þinni ég bið
og signi líkama þinn
Í von um að þú finnir frið
og verðir engillinn minn.
Hvert sem ég fer
ég mynd af þér
í hjarta mér ber.
Þín afastelpa,
Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.
Afi minn.
Ó, blessuð vertu sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár,
nú fellur heitur haddur þinn
á hvíta jökulkinn.
Þú klæðir allt í gull og glans,
þú glæðir allar vonir manns,
og hvar sem tárin kvika’ á kinn,
þau kyssir geislinn þinn.
Þú fyllir dalinn fuglasöng,
nú finnast ekki dægrin löng,
og heim í sveitir sendirðu’ æ
úr suðri hlýjan blæ.
Þú frjóvgar, gleður, fæðir allt
um fjöll og dali’ og klæðir allt,
og gangirðu’ undir gerist kalt,
þá grætur þig líka allt.
Ó, blessuð vertu sumarsól,
er sveipar gulli dali og hól,
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
(Páll Ólafsson)
Blessuð sé minning þín, elsku afi
minn.
Þín
Kolbrún.
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2009
Elsku góði afi minn, ég
sakna þín svo mikið, takk
fyrir góðar stundir.
Mér þótti alltaf jafn
skemmtilegt að koma upp í
Hamrabrekkur og gista.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Ásmundur Eiríksson)
Guð geymi þig, kær
kveðja.
Emilía Anna
Þorbjörnsdóttir.
Elsku afi, nú er komið að
kveðjustund.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthól-
um)
Blessuð sé minning þín.
Þín afabörn
Daníel Sæberg, Arnar
Freyr, Róbert Ingi og
Elísabet Unnur.
HINSTA KVEÐJA
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Spádómar
ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI
– Spámiðill
Spái í spil og kristalskúlu
Heilunartímar
Fyrirbænir
Algjör trúnaður
Sími 618 3525
www.engill.is
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri- Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
Húsgögn
Hornsófi
Stór hornsófi til sölu. Lítur mjög vel
út. Stærð: 3 x 2,40. 30.000 kr.
Nánari upplýsingar í síma 840 3734 -
865 2831.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Tómstundir
Fjarstýrðir bílar fyrir alla
aldurshópa í úrvali.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is.
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Elsku hjartans dóttir okkar, systir og barnabarn,
GUÐRÚN HEBA ANDRÉSDÓTTIR,
sem lést á Landspítalanum fimmtudaginn
29. október, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju
í Garðabæ föstudaginn 6. nóvember kl. 15.00.
Jarðsett verður í Garðakirkjugarði á Álftanesi.
Andrés Sigmundsson, Þuríður Freysdóttir,
Sigmundur Andrésson, Azadeh Masoumi,
Sigurjón Andrésson, Margrét Sara Guðjónsdóttir,
Agnes Sif Andrésdóttir,
Ágúst Örn Gíslason,
Sigmundur Andrésson, Dóra Hanna Magnúsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Heittelskaður eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
bróðir, tengdasonur og mágur,
ÞORMÓÐUR GEIRSSON
framkvæmdastjóri og lyfjafræðingur,
Eggertsgötu 8,
Reykjavík,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans Fossvogi
þriðjudaginn 27. október, verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju föstudaginn 6. nóvember kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð dætra hans,
nr. 0301-13-112009, kt. 011278-5079.
Erla Björk Jónsdóttir,
Auður Rós Þormóðsdóttir,
Freydís Lilja Þormóðsdóttir,
Geir Friðgeirsson, Kolbrún Þormóðsdóttir,
Steinunn Geirsdóttir, Björn Kr. Broddason,
Nanna Geirsdóttir, Martin Trier Risom,
Auður Geirsdóttir,
Jón Guðlaugsson, M. Auður Gísladóttir,
Sif Jónsdóttir,
Andrea Jónína Jónsdóttir.