Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2009
ÞÝSK bókaforlög hafa sýnt þeirri
staðreynd mikinn áhuga að Ísland
verður heiðursgestur bókasýning-
arinnar í Frankfurt árið 2011. Það
sem af er árinu hefur verkefnið
„Sagenhaftes Island“ unnið að kynn-
ingu íslenskra bókmennta gagnvart
þýskum bókaforlögum, í samvinnu
við íslensk forlög og höfunda. Und-
irtektir hafa farið fram úr björtustu
vonum og nú eru þrjátíu íslenskir
rithöfundar komnir með útgefanda í
Þýskalandi, að því er frá er greint í
frétt frá Sagenhaftes Islands. Þar er
jafnframt gert ráð fyrir því að ís-
lenskum skáldum sem fá verk sín
þýdd á þýsku eigi eftir að fjölga.
Útgáfa á íslenskum bókmenntum
á þýskum markaði, sem nær til eitt
hundrað milljóna lesenda, hefur far-
ið vaxandi undanfarin tíu ár. Undir
aldamót voru um tíu bækur þýddar
úr íslensku á þýsku árlega, á síðustu
árum hafa það verið um tuttugu, en
árið 2011 má gera ráð fyrir að þær
verði um eitt hundrað.
Þegar er ákveðið að allar Íslend-
ingasögurnar komi út í nýjum þýð-
ingum eftir tvö ár, en nú er ljóst að
fjöldi íslenskra samtímaverka mun
koma út í Þýskalandi í ár.
30 skáld á
þýðversku
Íslenskum skáldverk-
um á þýsku fjölgar
FRANSK-senegalskur rithöfundur,
Marie NDiaye, hreppir mestu bók-
menntaverðlaun Frakka í ár, Con-
court-verðlaunin. Verðlaunasagan
fjallar um fjölskyldu, svik og hörm-
ungar ólöglegra innflytjenda frá
Afríku. „Ég hef aldrei tengt það
tvennt, svarta konu og Goncourt-
verðlaunin,“ sagði NDiaye við tíð-
indin, en hún er fyrsta konan í ára-
tug sem fær verðlaunin og um leið
fyrsta blökkukonan.
NDiaye fær
Goncourt-
verðlaunin
Best í Frakklandi Marie NDiaye
KVIKMYNDASAFNIÐ sýnir
myndina 8 ½ eftir Federico
Fellini í Bæjarbíói í kvöld kl. 20
og laugardag kl. 16. Fellini
(1920 - 1993) er einn þekktasti
kvikmyndahöfundur Evrópu á
sjötta og sjöunda áratugnum.
Myndum hans hefur gjarnan
verið lýst sem kvikmyndaljóði.
Tónlist Nino Rota ýtir oftar en
ekki undir þá tilfinningu en
samstarf þeirra gat af sér margar mestu perlur
evrópskrar kvikmyndatónlistar. Myndir Fellinis
nutu mikillar hylli áhorfenda jafnt sem gagnrýn-
enda og myndin La Strada frá árinu 1954 varð sú
fyrsta til að hreppa Óskarsverðlaun. 8½ fékk líka
Óskarsverðlaun.
Kvikmyndir
Átta og hálfur í
Kvikmyndasafninu
Federico Fellini
FYRSTA fræðslukvöld ÚTÓN
í vetur verður haldið í kvöld kl.
19.30-22 í Norræna húsinu.
Farið verður yfir það hvernig
best er að nýta netið til kynn-
ingar á tónlist og menningar-
verkefnum. Farið verður yfir
gagnsemi samfélagssíðna á
borð við Facebook, Myspace,
Flickr og You Tube svo fáeinar
séu nefndar. Þá verður einnig
farið yfir gagnsemi póstlista og
fyrirtæki sem hafa umsjón með póstlistum.
Leitast verður við að svara því hvað virkar í
kynningu og markaðssetningu, hvernig það virkar
– og hvað virkar ekki. Námskeiðsgjald er kr. 4.000
og eru námskeiðsgjöld og hressing innifalin.
Tónlist
Gagnsemi netmiðla
fyrir tónlistarfólk
Ariel Hyatt
talar á fundinum
SÖFN um allt Suðurland og í
Vestmannaeyjum bjóða upp á
fjölbreytta menningardagskrá
um helgina, en á fimmtudag
hefst Safnahelgi á Suðurlandi.
„Matur og menning í héraði“
eru kjörorð Safnahelgarinnar
því auk hins sögulega og menn-
ingarlega hluta dagskrárinnar
verður minnt á gamlar og nýj-
ar hefðir í matargerðarlist í
héraðinu. Það eru Samtök
safna á Suðurlandi og Matarkista Suðurlands sem
standa að dagskránni með hátt í eitt hundrað að-
ilum. Á veitingastöðum verður boðið upp á það
besta í sunnlenskri matarhefð og safnadagskrá
verður frá fimmtudegi til sunnudags.
Menning
Safnahelgi haldin
á Suðurlandi
Byggðasafnið
Skógum
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
BRÓÐURPART annars ungrar ævi
sinnar hefur Sæunn Þorsteinsdóttir
sellóleikari búið í Bandaríkjunum.
Þar hefur hún vakið athygli fyrir
músíkhæfileika sína og sýnt að hún
er líkleg til að láta að sér kveða með-
al fremstu tónlistarmanna heims.
Það hefur verið lán okkar hér
heima að á síðustu árum hefur Sæ-
unn komið hingað æ oftar til að
spila; bæði ein og með öðrum.
Og nú er hún komin eina ferðina
enn, og spilar með Kristni Erni
Kristinssyni píanóleikara í Salnum
kl. 20 í kvöld, í tónleikaröðinni Tón-
snillingar morgundagsins. Þar leika
þau verk eftir Beethoven, Debussy,
Leos Janacek, César Franck og Bo-
huslav Martinu.
Sæunn er glaðleg og hláturmild
þegar hún svarar í símann. Ég hef
grun um að það sé vegna þess að á
sunnudaginn spilaði hún með
Kristni á Akureyri – þaðan er hún
ættuð, og auðvitað voru nánustu
ættingjar þar í áheyrendahópnum.
Ég vil vita hvar hún er stödd á veg-
ferð sinni um amerískan sellóheim.
Í akademíu í Carnegie Hall
„Ég er á öðru ári af tveimur í „fell-
owship“ prógrammi við Carnegie
Hall, en það er samstarfsverkefni
Carnegie Hall, Juilliard tónlistar-
skólans og grunnskóla New York-
borgar. Í því felst kynning á klass-
ískri tónlist fyrir grunnskólabörn,
en um leið er það tækifæri fyrir okk-
ur, sem erum í prógramminu, til að
spila saman, og spila í Carnegie
Hall. Við sem spilum fáum allskonar
námskeið í tónlistinni. Þetta er mjög
gott fyrir unga tónlistarmenn.“
Sæunn er með mörg fleiri járn í
eldinum; fyrst og fremst við það að
spila sjálf, og koma sér á framfæri.
„Þegar ég kem út aftur spila ég
Sellókonsert eftir Saint Saëns með
American Youth Philharmonic í
Washington D.C; svo kammermúsík
og í desember verð ég með tónleika í
Trinity-kirkjunni. Þú sérð að það er
nóg að gera!“ segir Sæunn og hlær
svo létt að maður gæti ímyndað sér
að öll þessi spilamennska væri lauf-
létt og ekkert mál. Og Sæunn er
komin lengra, því hún er farin að
skipuleggja það sem tekur við þegar
vistinni í Carnegie Hall lýkur.
„Ég var að skrifa undir plötu-
samning við Central Records í
Bandaríkjunum og fyrsti diskurinn
kemur út á næsta ári ef allt gengur
vel. Ég er líka að reyna skipuleggja
tónleikaferðir kringum útgáfuna.
Þá hef ég líka verið beðin að fara í
tónleikaferð með Musicians of Marl-
boro. Það er í tengslum við Marlboro
Music Festival. Þar eru bæði eldri
tónlistarmenn sem eru langt komnir
á ferlinum og líka ungir. Það er mik-
ill lúxus fyrir fólk eins og mig að fá
að spila með heimsfrægum tónlist-
armönnum sem mann hefur lengi
dreymt um að hitta. Við verðum með
fimm tónleika á austurströndinni.“
Sæunn segir það æðislegt að
koma heim til Íslands að spila, og jú,
tónleikarnir fyrir norðan á sunnu-
daginn voru „yndislegir“. „Ég finn
rosalega sterkt fyrir tengslunum við
Ísland. Það er æðislegt að fljúga yf-
ir, sjá fjöllin, finna ferska loftið og
ekki síst að tala íslensku, sem er
rosalega mikilvægt fyrir mig.“
Í slagtogi við þá bestu
Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari spilar í Salnum í kvöld kl. 20 með Kristni
Erni Kristinssyni píanóleikara Nýtur mikillar velgengni í Bandaríkjunum
Morgunblaðið/Heiddi
Beethoven, Debussy, Janacek, Franck og Martinu Sæunn Þorsteinsdóttir
og Kristinn Örn Kristinsson á æfingu í Salnum fyrir tónleikana í kvöld.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
SUMIR skilja eftir sig þvílíka arf-
leifð að öldum eftir andlát sitt
fagnar fólk vegferð þeirra á jörð-
inni. Þetta á auðvitað við um
mesta merkisfólk sögunnar og tón-
skáldin eru áberandi í þeim hópi;
verkin þeirra eru ný, í hvert sinn
sem þau eru spiluð.
Edda Erlendsdóttir fagnar
tveggja alda ártíð meistara klass-
íkurinnar, Josephs Haydns, með
tónleikum víðsvegar um landið um
þessar mundir; annað kvöld kl. 20
í Listasafni Íslands. En tónleik-
arnir eru líka hálfgildings útgáfu-
tónleikar, því fyrr á árinu gaf
Edda út geisladisk þar sem hún
leikur píanókonserta eftir Haydn
með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
„Ég gat ekki tekið heila
sinfóníuhljómsveit með mér í
þessa tónleikaferð, og því eru
þetta allt einleiksverk. Ég spila
tvö af mínum uppáhalds Haydn-
verkum; Aríettu með tilbrigðum
og Tilbrigði í f-moll. Haydn var
svo frábær tilbrigðasmiður og
snillingur í því að setja stef í mis-
munandi búning.
Ég prjóna svo efnisskrána
kringum Haydn og spila þrjú verk
eftir C.P.E. Bach sem Haydn dáði
mjög. Haydn segir einhvers staðar
að áður en hann byrjaði sjálfur að
semja hafi hann spilað verk Bachs.
Á milli spila ég svo Schubert-
sónötu í a-moll sem mér finnst
tengja klassíkina og rómantíkina.
Mér finnst strax hjá Haydn kom-
inn sterkur rómantískur þráður og
jafnvel líka hjá C.P.E. Bach.“
Schubert dó ungur, en sónatan
sem Edda spilar er eitt af æsku-
verkum hans; ein af fjórum píanó-
sónötum sem hann samdi 1817.
„Ég hef verið að vinna mikið í són-
ötum Schuberts frá þessu ári. Þær
eru fremur stuttar, en mikill söng-
ur í þeim. Þær eru ekki eins lang-
ar og krefjandi og seinni sónötur
hans urðu, og þess vegna eru þær
líkari þeim klassísku,“ segir Edda
Erlendsdóttir.
Með þrjá snillinga í föruneyti
Píanóleikarinn Edda Erlendsdóttir
Edda Erlendsdóttir minnist tveggja alda ártíðar Haydns með tónleikum á Íslandi
Sæunn Þorsteinsdóttir lauk meistaraprófi frá hinum þekkta Juilliard-
skóla í New York vorið 2008. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir leik
sinn, m.a. verðlaun til minningar um Zöru Nelsovu í alþjóðlegu Naum-
burg-sellókeppninni í New York og einnig vann hún til verðlauna í al-
þjóðlegu Antonio Janigro-sellókeppninni í Zagreb í Króatíu. Hún hefur
komið fram víða í Bandaríkjunum og Evrópu bæði sem einleikari og
kammermúsíkant og tekið þátt í fjölda tónlistarhátíða og komið fram
með frábærum listamönnum. Má þar nefna Marlboro Music Festival með
Mitsuko Uchida og Kim Kashkashian, Perlman Chamber Music Workshop
í strengjakvartett með Itzhak Perlman og Kronberg-sellóhátíðina þar
sem hún var ein af einleikurum á lokatónleikum hátíðarinnar.
Með Perlman, Kashkashian og Uchida
Ég þoli heldur ekki
þetta óþol mitt, að
ég skuli vera svona ofur-
viðkvæm smásál... 32
»
Tónleikar Eddu Erlendsdóttur
verða í Listasafni Íslands annað
kvöld kl. 20.
Á fimmtudagskvöld kl. 20.30
leikur Edda í Laugarborg í Eyja-
fjarðarsveit og laugardaginn 7.
nóvember kl. 15 í Menningar-
húsinu Bergi á Dalvík.
Tónleikaferðin