Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 20
20 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2009
✝ Þuríður Hans-dóttir Beck fædd-
ist á Kollaleiru í Reyð-
arfirði 1. október
1937. Hún lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans við
Hringbraut 24. októ-
ber 2009. Foreldrar
hennar voru Hans
Ríkharð Kristinsson
Beck, f. 16.2. 1901, d.
21.2. 1971, og Hall-
fríður Guðmunds-
dóttir Beck, f. 17.2.
1915, d. 10.6. 1995.
Systkini Þuríðar eru Ingiborg Hans-
dóttir Beck, f. 27.12. 1938, Kristinn
Hansson Beck, f. 24.10. 1944, d. 5.5.
Hauksson, f. 15.6. 1979, og Haukur
Freyr Hauksson, f. 2.1. 1982. Dóttir
Hallfríðar og Steinars Vilhjálms-
sonar er Svava Hildur Stein-
arsdóttir, f. 5.8. 1997. Barnabörnin
eru þrjú. 2) Kristín G. Jónsdóttir, f.
30.7. 1960, gift Guðmundi Berki
Kristinssyni. Börn þeirra eru Þur-
íður Svava Guðmundsdóttir, f.
15.12. 1979, Kristinn Rafn Guð-
mundsson, f. 27.8. 1993, Ríkharður
Már Guðmundsson, f. 14.11. 1996.
Eiga þau eitt barnabarn.
Þuríður ólst upp á Reyðarfirði og
fór að vinna að lokinni skólagöngu.
Hún vann ýmis störf þar til hún
flutti til Reykjavíkur. Þuríður vann í
mörg ár í verslununum Liverpool og
Domus. Síðustu starfsárin vann hún
hjá Nóa Siríus.
Útför Þuríðar fer fram frá Lang-
holtskirkju í dag, 3. nóvember 2009,
og hefst athöfnin kl. 13.
2000, Guðmundur
Már Hansson Beck, f.
6.4. 1950, Þorbjörg
Hansdóttir Beck, f.
23.3. 1954.
Þuríður giftist Jóni
Gunnari Júlíussyni, f.
15.10. 1934. Foreldrar
hans voru Júlíus
Ágúst Jónsson, f. 19.7.
1908, d. 13.9. 1992,
Guðríður Hansdóttir,
f. 15.8. 1903, d. 15.7.
1971. Þuríður og Jón
Gunnar eignuðust
tvær dætur. Þær eru
1) Hallfríður Jónsdóttir, f. 4.1. 1959.
Synir Sæmundar Hauks Haralds-
sonar og Hallfríðar eru Jón Gunnar
Elsku amma mín, ég á erfitt með
að trúa því að þú sért farin. Það eru
einungis nokkrir dagar síðan við
spjölluðum saman um daginn og
veginn og allt virtist í góðu lagi.
Gabríel, þitt elskulega barnabarna-
barn, kemur með mér í heimsókn
til þín á spítalann og leiðir þig með-
fram ganginum og er hann svo
hreykinn af því að hafa hjálpað
ömmu að komast í setustofuna.
Amma er með meiddi inni í sér,
reyni ég að útskýra fyrir honum.
Við biðjum saman á kvöldin um að
Jesú taki meiddið frá ömmu. Í dag
spyr hann um ömmu og meiddið en
ég reyni að útskýra fyrir honum að
meiddið sé farið og amma sé hjá
Jesú, hann svarar: Ég líka Jesú.
Þetta gerðist allt svo hratt, frá
því þú greindist með krabbamein
liðu aðeins 3 vikur þar til þú fórst.
En fyrir mér ertu ekki farin, þú
hefur aldrei verið eins nálæg og nú.
Minningarnar um þig eru svo
ljúfar og góðar og hjartað mitt log-
ar af hlýju í hvert skipti sem þær
streyma um huga mér.
Söknuðurinn er vissulega mikill
en ég er svo hamingjusamur að vita
af þér þar sem þú ert í dag. Þegar
þú tókst síðasta andardráttinn á
spítalastofunni fann ég fyrir stór-
kostlegri nærveru engla og hjarta
mitt gladdist um leið og ég fylltist
söknuði.
Fyrsta minning mín um þig er í
Kambaselinu og þú ert að lesa bók
uppi í rúmi, þegar ég vakna
snemma morguns og fæ að skríða
upp í heita sæng hjá þér og kúra
aðeins lengur, allt frá fyrstu minn-
ingunni og til dagsins í dag hefur
þú alltaf boðið mér og mínum þessa
hlýju sem er svo gott að kúra í að-
eins lengur. Barnabarnabörnin þín
áttu huga þinn allan síðustu árinn.
Þú varst stoltasta langamman. Þú
máttir ekki missa af neinu sem fór
fram í þeirra lífi og nýttir öll tæki-
færi sem gáfust til að vera nálægt
þeim, nærveru þinnar í lífi þeirra
verður sárt saknað.
Ég á þér svo sannarlega margt
að þakka, elsku amma mín. Ég naut
þeirra forréttinda að hafa fengið að
alast upp hjá þér og þú hefur verið
mér til halds og trausts allt mitt líf,
þú varst fasti punkturinn í lífi
mínu. Þú varst alltaf tilbúin að gefa
af sjálfri þér þegar einhver þurfti á
að halda og þar var ég engin und-
antekning.
Elsku amma, ég vil þakka þér
fyrir allar þær stundir sem við átt-
um saman. Hugur minn er einnig
hjá honum afa á þessum erfiðu tím-
um. Guð gefi honum styrk til að
takast á við framhaldið.
Blessuð sé minning þín,
Þitt barnabarn,
Jón Gunnar.
Ég skrifa um elsku ömmu mína
með miklum söknuði og var sú frétt
að amma mín væri farin héðan eitt
það erfiðasta sem ég hef upplifað.
Amma var stór hluti af mínu lífi og
hún var kletturinn í fjölskyldunni
sem allir voru tengdir við og leituðu
til. Amma var svo góð eiginkona og
hún hefur séð svo vel um hann afa
alla tíð og staðið með honum í
gegnum allt og aldrei gafst hún
upp. Hún elskaði báðar stelpurnar
sínar svo mikið og hún var svo stolt
af öllum barnabörnunum og barna-
barnabörnunum. Það sem lýsir
henni best er að hún lifði fyrir aðra
og hugsaði um hagsmuni annarra
frekar en sína eigin og alltaf var
hún svo glaðlynd. Amma var sú
sem trúði á mig og tók mig að sér
þegar ég var kominn niður á botn-
inn og hjálpaði mér að komast á
lappirnar. Í gegnum erfiðleika
mína urðum við amma enn nánari
og Guð notaði kringumstæður mín-
ar til að draga hana að sér og gefa
henni líf í Jesú Kristi.
Það var mér svo mikils virði að
amma og afi gátu verið viðstödd
giftinguna mína í Bandaríkjunum.
Amma var svo stolt að eignast
fjórða barnabarnabarnið og ég
hlakkaði svo til að koma heim til Ís-
lands og sýna henni Joseph litla, en
ekki grunaði mig að ég kæmi hing-
að eftir að hún færi til Guðs og
myndi vera við jarðarförina henn-
ar.
Þrátt fyrir að ég sakni ömmu
meira en ég get lýst þá finn ég al-
gjöran frið gagnvart því hvar hún
er í dag, heima hjá Drottni, og ég
hef þá fullvissu að ég muni eyða ei-
lífðinni með henni.
Það var mikill heiður að eiga
þessa stórkostlegu konu sem ömmu
og vin, blessuð sé minning hennar.
Haukur Freyr Hauksson.
Elsku amma mín, þá ertu búin að
kveðja okkur þar til við hittumst
næst uppi hjá Guði. Það varð okkur
mikið áfall þegar það kom í ljós að
það var komið krabbamein í líkam-
ann þinn og það var erfitt að vita að
þú ættir stutt eftir en engum datt í
hug að þetta myndi gerast svona
hratt. Við sitjum eftir með margar
spurningar en engin svör. Þú varst
svo bjartsýn þegar ég kom að heim-
sækja þig í síðasta skipti áður en ég
kvaddi þig. Þú varst ákveðin í því
að vera komin heim af spítalanum
og bjóða okkur Hákoni í mat þegar
hann kæmi til Íslands.
Fyrstu minningarnar sem ég á
um þig eru frá því við bjuggum hjá
ykkur afa í Kambaselinu. Ótrúlega
margar minningar sem koma fram;
þegar maður var að glamra á píanó-
ið og leika sér í stóra glugganum
sem sneri úti á götu. En sú allra
fyrsta er þegar ég var að leika mér
ein í herberginu hans Nonna sem
ég gerði mjög oft og gat verið tím-
unum saman að skoða dótið hans.
Þar vissi ég um rafmagnstæki sem
hann átti og ég notaði það til að
taka hnökrana úr rúminu hans en
þú komst að mér eitt skiptið og
sagðir að ég mætti ekki gera þetta,
þetta væri ekki gott fyrir rúmið,
þarna var ég um sex ára gömul.
Þegar ég hugsa um síðustu ár þá er
minnisstæðast hversu hjálpsöm þú
varst. Þú settir aðra alltaf í fyrsta
sæti og hafðir svo gaman af því að
hjálpa öðrum, sama hvað það var,
það var bara í eðli þínu og þér
fannst ekkert sjálfsagðara. Stærsta
áhugamálið þitt sem ég minnist er
fólk, þú hafðir svo mikinn áhuga á
fólki og ættfræði. Gast rakið ættir
alveg langt aftur í tímann, vissir
einhvern veginn hvernig allir
tengdust. Þú hafðir einstakt dálæti
á langömmubörnunum þínum,
Gabríel Bjarma, Guðbjarti Ísak og
Emmu Kristínu, þú passaðir þau
svo oft og það sást langar leiðir
hvað þau gáfu þér mikla gleði. Þú
náðir því miður ekki að kynnast Jo-
seph Issachar en þú gast fylgst
með honum á netinu, bæði með
myndum og upptökum af honum.
Þú varst einnig orðin svo tækni-
vædd að þú varst búin að „adda“
okkur barnabörnunum á MSN og
Facebook og gast meðal annars
fylgst með öllu sem ég var að gera í
Ástralíu í sumar, þú sagðir mér það
síðast þegar ég spjallaði við þig og
það gladdi mig svo mikið.
Núna ertu komin heim til Guðs
og þar munum við hittast aftur. Það
er svo sárt að þú skyldir kveðja svo
fljótt en samt er svo óskaplega gott
að vita að núna finnurðu enga verki
og þér líður vel og núna geturðu
Þuríður H. Beck
✝ Þorlákur GesturJensen fæddist í
Reykjavík 27. apríl
1959. Hann lést á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi
fimmtudaginn 22.
október sl. For-
eldrar hans eru Lín-
ey Hulda Gests-
dóttir, f. 3.
nóvember 1935, d.
19. júlí 1998, og
Hálfdán Ingi Jensen,
f. 3. nóvember 1932.
Þau skildu. Sam-
býliskona Hálfdáns er Soffía
Sveinbjörnsdóttir, f. 26. júní
1930. Bróðir Gests er Guðni Ósk-
ar, f. 5. febrúar 1957. Kona hans
er Kristbjörg Sveinsdóttir og
eiga þau fjögur
börn.
Eiginkona Gests
er Hólmfríður Jóns-
dóttir, f. 6. ágúst
1947. Sonur hennar
er Jón Múli Frank-
línsson.
Börn Gests eru a)
Hulda Margrét, f. 2.
desember 1975, mað-
ur hennar Davíð
Ingvason og börn
þeirra eru Sylvía
Anna, Díana Ösp og
Davíð Mar, b) Að-
alsteinn Mar, f. 28. maí 1978, og
c) Arnar Ingi, f. 16. maí 1986.
Útför Gests verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag, 3. nóv-
ember, og hefst athöfnin kl. 15.
Elsku Gestur, gullið mitt,
hjartans vinurinn ljúfi.
Ég mun ætið minnast þín,
þó að árin fljúgi.
Þér líður vel núna, hjá Jesú Kristi.
Þín
Hólmfríður (Íja).
Þorlákur Gestur
Jensen
✝
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
HALLBERG SIGURJÓNSSON,
Stuðlaseli 2,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu laugardaginn 31. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Sigurður Sigurjónsson, Elísabet Guðmundsdóttir,
Alda Rut Sigurjónsdóttir, Ólafur Haraldsson.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
YNGVI MAGNÚS ZOPHONÍASSON
húsgagnasmíðameistari,
lést á heimili sínu laugardaginn 31. október.
Útförin fer fram frá Garðakirkju fimmtudaginn
5. nóvember kl. 11.00.
Guðrún Björt Yngvadóttir, Jón Bjarni Þorsteinsson,
Borgþór Yngvason, Svanhildur Sigurðardóttir,
Hafþór Yngvason, Sarah Brownsberger,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Fyrrverandi eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HAUKUR ÞORLEIFSSON,
áður til heimilis
Árgötu 1,
Reyðarfirði,
lést á dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík föstudaginn
30. október.
Jarðsungið verður frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 7. nóvember kl. 13.30.
Jarðsett verður í Garðakirkjugarði, Garðabæ.
Þórey Baldursdóttir,
Baldur Hauksson,
Sveinborg L. Hauksdóttir, Stefán Arinbjarnarson,
Þóra Kristín Hauksdóttir, Davíð Jóhannsson
og afabörnin.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma, systir og mágkona,
INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
THOMPSON,
er látin.
Útförin hefur farið fram í Bandaríkjunum.
Aaron Thompson,
Monda Thompson Kohles, Kevin Kohles,
Iris Thompson Stastny,
Jessica Thompson Jones, Tony Jones,
Erik Thompson,
barnabörn og barnabarnabörn,
Gunnþór Guðmundsson, Anna Skaftadóttir,
Elínrós Guðmundsdóttir, Guðlaugur Guðjónsson,
Erlendur Guðmundsson,
Andrea Vikarsdóttir, Óskar Ævarsson.
✝
Elskuleg móðir mín, dóttir, systir okkar, mágkona
og frænka,
ELFA GUNNARSDÓTTIR,
Strandaseli 5,
Reykjavík,
sem lést á kvennadeild Landspítalans mánudaginn
26. október, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 6. nóvember kl. 13.00.
Innilegar þakkir til starfsfólks kvennadeildar Landspítalans fyrir frábæra
umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Orri Óli Emmanuelson,
Ólöf H. Ágústsdóttir,
Lára Gunnarsdóttir, Gunnþór Halldórsson,
Júlíana Gunnarsdóttir, Jóhann Þór Sigurðsson,
Lóa Björk Gunnarsdóttir, Arnar Pálsson,
Andrés Ágústsson
og frændsystkini.