Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 13
Heimild: Galactic Suite
GEIMHÓTEL
Fyrirtæki,semhyggst komaupp hóteli í geimnum,segir ekkert því til fyrirstöðuað
geimhóteliðgeti tekiðámóti fyrstugestunum árið 2012. Áætlaðeraðþriggjadaga
dvöl í geimhótelinukosti þrjár milljónirevra, jafnvirði 550 milljónakróna.
Áfötum gestannaverða
ri ásar,eðafranskir rennilásar,
til að gestirnir geti skriðið um
herbergishylkin með því að
festasig við veggina.
Hylkinverða
meðgluggameð
stillanlega
ljósopsþynnutil að
jörðinsjáist betur
Inni í hylkjunumverða
hvorki horn nébeinir etir
semgætuvaldiðmeiðslumá
gestumí þyngdarleysinu
Hvert herbergi
verður7 mlangt
og 4 mbreitt
Miðhluti
Tengir saman
hótelherbergin í
hylkjunum og
tengikví
geimferjunnar
Geimherbergi
Gestirnir eigaað dvelja í
samtengdum hylkjum og
hótelið líkist sameindakeðju.
Lögun hylkjannaræðst af því
að þau þurfaað komast fyrir í
eld aug til að hægt verði að
komaþeim í geiminn
Geimferja
Hönnuð til að ytja
ferðamenn út í
geiminn,getur borið
a.m.k. óra farþegaog
tvo geim ugmenn
Gestirnir ættu að sjá
sólarupprás mmtán
sinnum ádag
FYRIRTÆKIÐ Galactic Suite seg-
ir ekkert því til fyrirstöðu að það
geti opnað fyrsta geimhótelið eftir
þrjú ár þótt fram hafi komið efa-
semdir um að það sé raunhæft
markmið. Áætlað er að þriggja
daga dvöl í geimhótelinu kosti
jafnvirði rúmra 550 milljóna
króna. Innifalið í verðinu er geim-
ferðaþjálfun á hitabeltiseyju áður
en gestirnir verða fluttir út í
geiminn.
Í geimhótelinu eiga gestirnir að
geta notið stórfenglegs útsýnis yf-
ir jörðina og kynnst því hvernig
það er að lifa í þyngdarleysi. Gert
er ráð fyrir því að hótelið fari um-
hverfis jörðina á 80 mínútum, að
sögn Reuters-fréttastofunnar.
Að minnsta kosti 43 hafa þegar
bókað ferð í geimhótelið, að sögn
Galactic Suite, fyrirtækis í Barce-
lona sem stendur á bak við áform-
in. Komið hafa fram efasemdir um
að hægt verði að fjármagna hót-
elið og opna það árið 2012, en for-
stjóri fyrirtækisins segir að ónafn-
greindur auðkýfingur hafi lofað
að setja þrjá milljarða dollara,
jafnvirði 475 milljarða króna, í
verkefnið.
bogi@mbl.is
Geimhótel eftir þrjú ár?
Fréttir 13ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2009
ALAN Johnson, innanríkisráðherra
Bretlands, hefur verið gagnrýndur
fyrir að víkja prófessornum David
Nutt frá sem formanni nefndar er
breska stjórnin skipaði til að vera
henni til ráðgjafar í baráttunni gegn
fíkniefnum.
Johnson vék Nutt frá eftir að pró-
fessorinn hélt því fram að kannabis,
LSD og e-töflur væru hættuminni en
áfengi og tóbak. Prófessorinn hafði
einnig gagnrýnt stjórnina fyrir að
setja kannabisefni í B-flokk fíkniefna
úr C-flokki og herða þar með við-
urlög við neyslu
þeirra. Fyrr á
árinu fullyrti Nutt
að e-töflur væru
ekki hættulegri
en útreiðar.
Johnson sagði
að Nutt hefði
þurft að víkja
vegna þess að
hann gæti ekki
„bæði verið ráðgjafi stjórnarinnar og
verið í herferð gegn stefnu hennar“.
Nutt svaraði að stefna stjórnarinnar
í fíkniefnamálum byggðist á póli-
tískri hentistefnu en ekki vísinda-
rannsóknum.
Tveir aðrir hafa nú þegar sagt sig
úr nefndinni vegna brottvikningar
formannsins. Þeir segja líklegt að
meirihluti nefndarmannanna fari að
dæmi þeirra. Að sögn The Times
hefur málið vakið efasemdir meðal
vísindamanna um sjálfstæði stjórn-
skipaðra ráðgjafarnefnda og það
gæti orðið til þess að vísindamenn
yrðu tregir til að starfa í slíkum
nefndum. bogi@mbl.is
Deilt um Nutt prófessor
Innanríkisráðherra Bretlands gagnrýndur fyrir að víkja for-
manni ráðgjafarnefndar frá vegna deilu um flokkun fíkniefna
Alan Johnson
MARGRÉT Þórhildur Danadrottning fór í níu daga
heimsókn til Víetnams á sunnudag ásamt eiginmanni
sínum, Hinriki prins, Friðriki krónprins og eiginkonu
hans, Maríu. Drottning er hér fyrir aftan víetnamskan
hermann þegar blómsveigur var lagður að leiði bylt-
ingarleiðtogans Ho Chi Minh við athöfn sem fram fór í
gær í Hanoi, höfuðborg Víetnams. Heimsókninni lýkur
9. nóvember.
Reuters
DANADROTTNING Í VÍETNAM
Berlín. AFP. | Áform þýsku stjórn-
arinnar um að greiða foreldrum
fyrir að annast ung börn sín heima,
frekar en að setja þau á dagheimili,
hafa sætt harðri gagnrýni fem-
ínista og sérfræðinga í málefnum
innflytjenda.
Ný ríkisstjórn Angelu Merkel
kanslara hefur lofað að greiða for-
eldrum 150 evrur, jafnvirði tæpra
28.000 króna, á mánuði fyrir að
annast sjálf börn sín undir þriggja
ára aldri. Þetta var ein af helstu
kröfum CDU, systurflokks Kristi-
legra demókrata í Bæjaralandi, í
viðræðunum um myndun stjórn-
arinnar. Forystumenn flokksins
segja þetta réttlætismál þar sem
foreldrar sem annast börn sín sjálf-
ir spari ríkinu peninga. Foreldr-
arnir eigi að geta valið á milli þess
að setja börnin á dagheimili eða
annast þau sjálfir.
Þýskir femínistar hafa lýst heim-
greiðslunum sem „útungunarverð-
launum“ og „ungamömmu-
styrkjum“ og segja enga þörf á því
að hvetja mæður ungra barna til að
hætta að vinna úti.
Fari sem fyrst á dagheimili
Áformin hafa vakið mikla um-
ræðu í Þýskalandi. Þeir sem leggj-
ast gegn heimgreiðslunum segja að
lítil þörf sé á því að hvetja foreldra
til að annast börn sín sjálfir með
opinberum styrkjum því aðeins 18%
þýskra barna undir þriggja ára
aldri séu á dagheimili eða hjá dag-
mömmu. Þeir telja ráðlegra að nota
féð til að bæta starfsemi dagheimil-
anna.
„Markmiðið ætti að vera að
hvetja foreldra til að senda börn sín
á dagheimili,“ sagði Anette Stein,
sérfræðingur í barnafræðslu við
Bertelsmann-stofnunina.
Stein og fleiri andstæðingar
áformanna segja að mjög mikil-
vægt sé að ung börn innflytjenda
komist á dagheimili til að þau geti
náð valdi á þýsku. „Þetta þarf að
gerast sem fyrst vegna þess að því
yngri sem börnin eru þegar þau
fara á dagheimili því auðveldara er
fyrir þau að verða tvítyngd,“ sagði
Heinz Buschkowsky, sem er eins
konar borgarstjóri hverfisins Neu-
kölln í Berlín, þar sem margir
Tyrkir búa. bogi@mbl.is
Heimgreiðslum vegna
ungra barna mótmælt
Áform stjórnar Merkel sögð slæm fyrir börn innflytjenda
holar@simnet.is
holabok.is
Milli mjalta og messu
Fríkirkjupresturinn hefur
umburðarlyndi að leiðarljósi,
ung kona er strútabóndi í
Suður-Afríku, einn af 24 bestu
ljósmyndurum veraldar
bregður upp myndum í orðum,
rafvirkinn og miðillinn eiga það
sameiginlegt að þurfa að kunna
tengja og kona sem missti
stóran hluta fjölskyldu sinnar í
snjólflóði segir frá afleiðingum
þess á líf hennar.
Magnaðar lífsreynslusögur.