Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2009
Skuldir Haga
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
STEINGRÍMUR. J. Sigfússon fjár-
málaráðherra kveðst ætlast til þess
að skuldamál Haga og 1998 eins og
önnur skuldamál fyrirtækja þoli
gagnrýna skoðun og hann geri ekki
ráð fyrir öðru en menn í bönkunum
séu sér meðvitandi um það. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær er
nú rætt í nýja Kaupþingi um tug-
milljarða afskriftir skulda hjá eig-
endum 1998 og Haga, þ.e. Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar og fjölskyldu.
– Steingrímur. Efnislega hefur
engin afstaða stjórnvalda komið fram
til hugsanlegrar niðurfellingar á tuga
milljarða króna skuld Haga og 1998 í
nýja Kauðþingi. Nú vafðist það ekki
fyrir ykkur Gylfa Magnússyni við-
skiptaráðherra í sumar, að tjá ykkur
um hugsanlega niðurfellingu á skuld-
um Björgólfsfeðga, þar sem þú sagð-
ir m.a.: „Mér finnst þetta um það bil
vera síðasta lánið undir sólinni sem
ætti að afskrifa …“ Hvers vegna get-
ur þú ekki lýst efnislegri afstöðu
þinni í skuldamálum Haga og 1998?
„Í sumar var ég bara að tjá mig í
sambandi við fréttaflutning um
mögulegar afskriftir á
persónulegum lánum ein-
staklinga. Það voru lán
vegna kaupa á Lands-
bankanum þar sem kaup-
endurnir voru í persónu-
legum ábyrgðum sem
einstaklingar.“
– En hvað segir þú þá
um mögulegar afskriftir
á mörgum tugum millj-
arða af skuldum 1998 og
Haga í nýja Kaupþingi
og að eigendurnir, Jón
Ásgeir Jóhannesson og
fjölskylda, haldi samt
sem áður 60% eignarhlut
í Högum, eins og nú er
rætt um?
Skuldaúrvinnsla
er hjá bönkunum
„Skuldaúrvinnsla einstakra fyr-
irtækja er í höndum bankanna og
þeir verða að vinna samkvæmt sam-
ræmdum og vönduðum reglum í
þeim efnum og eiga ekki að fara í
manngreinarálit þar, þegar kemur að
því að meta hvernig hagsmunum
bankans og þess vegna íslensks efna-
hagslífs er best borgið og hvernig
hægt er að lágmarka tjón í sambandi
við skuldug fyrirtæki og skuldaúr-
vinnslu þeirra. Ég blanda mér ekki
inn í einstök mál í þeim efnum. Ég
hvorki má það né get.“
– Það vafðist ekki fyrir þér í sum-
ar. Nú eru miklu
meiri hagsmunir í
húfi, eða margir tugir
milljarða króna.
„Eins og ég sagði
áðan, þá voru við-
brögð mín í sumar
bara við þeim frétta-
flutningi sem var um
skuldamál þeirra
Björgólfsfeðga.“
– Í stjórnsýslunni
hefur mikið verið rætt
um gegnsæi og að allt
sé uppi á borðum. Í
vetur kom á daginn að
það var frumskilyrði
Íslandsbanka, að þá-
verandi hluthafar í út-
gáfufélagi Morgunblaðsins, Árvakri
hf., skrifuðu hlut sinn í félaginu niður
í núll og hyrfu frá fyrirtækinu, áður
en Íslandsbanki féllst á að félagið
færi í opið útboð, þar sem hagstæð-
asta tilboðinu væri tekið. Hvers
vegna ættu aðrar reglur að gilda nú
um eigendur Haga og 1998 en giltu
um fyrrverandi eigendur Árvakurs?
„Ég ætla ekkert að bera einstök
mál saman. Vill Morgunblaðið að það
sé þannig að fjármálaráðherra sé að
blanda sér inn í einstök úrvinnslumál
bankakerfisins? Skuldamál Haga eru
eins og hver önnur skuldaúrvinnslu-
mál, sem eru í höndum bankanna, og
við verðum bara að treysta því að
þeir vinni það faglega, vandað og
samræmt og það sé ekkert farið í
manngreinarálit og það sé bara unnið
út frá þeim viðmiðunarreglum sem
eðlilegar eru við þessar aðstæður.
Þetta er mjög vandasamt og það
koma náttúrlega upp ótalmörg mats-
kennd atriði af þessu tagi, sem er
ekki hægt að gefa út einhverja for-
skrift fyrirfram fyrir.
Eigendastefna ríkisins, að því
marki sem hún hefur áhrif, liggur
fyrir. Það er í samræmi við hana sem
við ætlumst til þess að þessi mál séu
unnin.“
– Nú eru klárlega grunsemdir víða
í þjóðfélaginu um að það verði einmitt
farið í manngreinarálit, ef nið-
urstaðan verður sú að Jón Ásgeir og
fjölskylda eiga að halda 60% eign-
arhlut í Högum og fá margra tugi
milljarða niðurfellda af skuldum sín-
um. Er í því ljósi ekki einmitt mik-
ilvægt að stjórnvöld og ekki síst fjár-
málaráðherra taki af skarið og lýsi
því yfir að allir skuli sitja við sama
borð og að jafnræðisreglu verði
gætt?
Ekki farið í manngreinarálit
„Jú, jú, enda segi ég að það á að
vinna þessa hluti samræmt og sam-
bærilega og ekki fara í manngrein-
arálit. Það á að leggja til grundvallar
ákveðnar viðmiðunarreglur um það
Hvorki má né get bland-
að mér í einstök mál
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
segir að ekki megi fara í manngreinarálit
Steingrímur J.
Sigfússon