Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FULLT var út úr dyrum, í orðsins fyllstu merk- ingu, þegar borgarafundur Hagsmunasamtaka heimilanna var settur í Iðnó í gærkvöldi. Tekist var á um aðgerðir stjórnvalda í þágu heimilanna og hvort um væri að ræða bjargráð eða bjarn- argreiða. Víst er að fundargestir voru á einu máli um gildi aðgerðanna. Baulað var á Árna Pál Árna- son, félags- og tryggingamálaráðherra, þegar hann varði málstað ríkisstjórnarinnar. Af ræðum fulltrúa HH var svo fyllilega ljóst að þeir telja að um bjarnargreiða sé að ræða. Fullt út úr dyrum á borgarafundi Hagsmunasamtaka heimilanna í Iðnó Morgunblaðið/Ómar Aðgerðir stjórnvalda sagðar bjarnargreiði Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is TALSVERT af bóluefni gegn svína- flensunni er komið til landsins og þessa dagana er lagt kapp á að bólu- setja fólk með undirliggjandi sjúk- dóma. Áður var mest áhersla lögð á bólusetningu heilbrigðisstarfsfólks og fólks í lykilstörfum í þjóðfélaginu. „Nú ríður á að bólusetja þjóðina,“ segir Gunnlaugur Sigurjónsson heilsugæslulæknir við Heilsugæslu- stöðina í Árbæ í Reykjavík. „Margir eru mjög áhyggjufullir vegna svínaflensunnar. Fyrstu dag- ana eftir að við byrjuðum að bóka tíma í bólusetningu náði fólk ekki í gegn þegar það hringdi en nú hefur þetta róast.“ Toppnum líklega náð Gunnlaugur segir þá sem hafa undirliggjandi sjúkdóma geta veikst mjög harkalega af svínaflensunni og nefnir þar til dæmis fólk með lungna-, hjarta- og ómæmissjúk- dóma. Þetta fólk er í algjörum for- gangi vegna bólusetninga en 150 manns fengu sprautu í Árbænum í gær. Þannig hafa hjúkrunarfræð- ingar stöðvarinnar verið færðir úr öðrum verkefnum, svo sem skóla- hjúkrun, til að bólusetningin gangi sem greiðast fyrir sig. Nokkurra daga bið er eftir bólusetningum og í gær var verið að skrá fólk sem gert er að mæta á mánudag í næstu viku. Að sögn Gunn- laugs er svína- flensan um margt lík hinni hefð- bundnu inflúensu nema hvað sjúk- dómseinkennin, sem eru hiti, höf- uðverkur, háls- særindi og verkur fyrir brjósti, eru helst til ýktari. „Einkenni inflúensufaraldra eru ekki ólík öldum sem falla að fjöru. Nú erum við á útsoginu. Toppnum er líklega náð í bili og þá ríður á að bólusetja sem flesta áður en næstu öldu skolar að landi,“ segir Gunn- laugur Sigurjónsson. „Nú ríður á að bólusetja þjóðina“  Margir eru mjög áhyggjufullir vegna flensunnar  Talsvert er komið af bóluefni til landsins  150 voru bólusettir í Árbænum í gær  „Við erum á útsoginu“  Einnar viku bið eftir bólusetningu ÍSLENSKUR karlmaður situr nú í fangelsi í Argentínu eftir að hafa verið handtekinn með fimm kíló af kókaíni á Ezeiza-flugvellinum í höfuðborginni Buenos Aires. Maðurinn, sem er á sextugsaldri, var á leiðinni frá Argentínu til Spánar þar sem hann hefur verið búsettur undanfarin ár en hann er íslenskur ríkisborgari. Ekki verið réttað í málinu Samkvæmt upplýsingum frá al- þjóðadeild ríkislögreglustjóra var maðurinn handtekinn 13. október síð- astliðinn og hefur verið í haldi síðan. Alþjóðadeildinni bárust upplýsingar um málið fljótlega eftir handtökuna í gegnum samskiptanet Interpol. Hún staðfestir að Íslendingurinn sé fyrr- verandi lögreglumaður. Ekki fylgir sögunni hvort maðurinn hafi verið í slagtogi með fleiri einstaklingum. Alþjóðadeildin fylgist með málinu og bregst við sé þess óskað, en að óbreyttu er mál mannsins ekki til skoðunar hjá íslenskum stjórnvöld- um. Ekki hefur enn verið réttað í máli mannsins. Í höndum argentínskra yf- irvalda Að sögn dómsmála- og mannrétt- indaráðuneytisins er málið alfarið á borði argentínskra stjórnvalda nema óskað verði eftir öðru. Borgaraþjónusta utanríkisráðu- neytisins fylgist jafnan með málum ís- lenskra ríkisborgara sem handteknir eru á erlendri grundu og gætir þess að réttindi þeirra séu virt. una@mbl.is Fyrrverandi lögreglumað- ur handtekinn í Argentínu Reyndi að smygla fimm kílóum af kókaíni til Spánar Morgunblaðið/Júlíus Eiturlyf Íslendingurinn var hand- tekinn með 5 kíló af kókaíni. SEÐLABANKI Íslands fór fram á það við Al- þjóðagjaldeyr- issjóðinn að skýrsla um stöðu efnahagsmála á Íslandi yrði ekki birt í gær líkt og til stóð. Stefán Jóhann Stef- ánsson, ritstjóri skrifstofu bankastjórnar, segir að ástæða hafi verið talin til að fara betur yfir framsetningu, áreið- anleika og hvort tilteknar upplýs- ingar væru birtingarhæfar. Óvíst er hvenær skýrslan verður birt. Stefán Jóhann segir vera um minniháttar framsetningaratriði að ræða, sem breyti í engu heild- armynd skýrslunnar. Hann segir ofsagt að verið sé að fjarlægja tölu- legar upplýsingar úr skýrslunni, en miklu máli skipti hvernig þær séu framreiddar. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagðist á Alþingi í gær ekki vita hvers vegna skýrslan var ekki birt. andri@mbl.is Skýrsla AGS um efnahagsmál ekki birt í gær Stefán Jóhann Stefánsson Seðlabankinn fór fram á breytingar í skýrslunni „Við kostnaðaráætlun sem byggð- ist á reynslu Ástrala gerðum við ráð fyrir að kostnaður vegna svínaflensufaraldursins yrði í kringum einn milljarð,“ segir Björn Zoëga, forstjóri Landspít- ala. Bendir hann á að hafi farald- urinn þegar náð hámarki sínu hér- lendis séu allar líkur til þess að kostnaðurinn rúmist innan þeirra marka. „Við höfum hins vegar engar forsendur til að meta hvort við erum búin að ná toppnum.“ Spurður hvort von sé til þess að Landspítalinn fái aukafjárveit- ingu frá hinu opinbera til að standa straum af útgjöldum vegna svínaflensunnar segist Björn Zoëga ekki vita það – en væntir þess þó. Hann tekur fram að ríkisstjórnin hafi nýverið sam- þykkt að keyptar yrðu tvær lungnavélar, sem nýtast sjúkling- um með svínaflensu, fyrir samtals 23 milljónir kr. Lísa Kristjánsdóttir, aðstoð- armaður heilbrigðisráðherra, seg- ir ráðuneytið fylgjast vel með fjár- hagsstöðu Landspítalans vegna faraldursins. Engin ákvörðun hafi hins vegar verið tekin um auka- fjárveitingu. silja@mbl.is Óvíst hvort toppnum er náð Gunnlaugur Sigurjónsson Eftir Sigmund Sigurgeirsson EMBÆTTI sóknarprests á Selfossi verður auglýst í næstu viku. Staðan verður auglýst laus frá næstu ára- mótum. Sóknarpresturinn, séra Gunnar Björnsson, hefur verið færð- ur til í þjónustu innan kirkjunnar, en hann hefur verið í leyfi frá störfum frá því í apríl 2008. Hann tók við embætti sóknarprests á miðju sumri 2002. Sr. Óskar H. Óskarsson er starfandi sóknarprestur og mun sinna því starfi fram til 1. janúar nk. Sækir sr. Óskar um stöðuna? Lagt hefur verið að sr. Óskari að sækja um starf sóknarprests en hann hefur leyst sr. Gunnar af frá áramótum. Þannig hefur verið sett á stofn fésbókarsíða á vefnum með áskorunum um að hann verði feng- inn til starfans. Óskar er prestur á Akureyri, en hann og kona hans eru bæði Árnesingar. Óskar sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki vera búinn að gera það upp við sig hvort hann yrði meðal umsækjenda um stöðuna. Það er valnefnd skipuð prófasti og níu fulltrúum prestakalls sem velur úr hópi umsækjenda og skipar bisk- up í embætti samkvæmt niðurstöðu hennar. Selfossprestakall verður auglýst í næstu viku Selfosskirkja Embætti sóknar- prests verður brátt auglýst. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.