Morgunblaðið - 03.11.2009, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 03.11.2009, Qupperneq 7
7 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2009 innar skuldar upp á tvo milljarða, en Jón Ásgeir var meðal eigenda fé- lagsins. Bent hefur verið á að þegar lán 1998 var fært yfir í Nýja Kaupþing úr gamla bankanum hafi afskrift átt sér stað. Með öðrum orðum muni hugsanleg afskrift á láni 1998 ekki lenda að fullu á Nýja Kaupþingi, heldur einnig erlendum kröfu- höfum. Finnur vill ekki upplýsa á hvaða verði lánið var fært yfir til Nýja Kaupþings: „Það er mál milli nýja og gamla bankans og tengist uppgjöri milli þeirra.“ Ábyrgð eigenda á lánum 1998 Í lánabók gamla Kaupþings sem lekið var á vefinn kemur fram að veðið að baki láni 1998 sé 95,7% hlutur í Högum og 35% hlutur í Baugi, sem nú er gjaldþrota. Jafn- framt kemur fram að eigendur fé- laganna séu í hlutfallslegri ábyrgð fyrir lánunum. Gaumur ehf. er eig- andi 1998, en Jón Ásgeir Jóhann- esson og fjölskylda eiga ríflega 82% í því félagi, og ábyrgð Gaums á lán- um 1998 því í samsvarandi hlut- föllum. Hagar um 20 milljarða virði Sé litið til annarra félaga sem eru í sambærilegum rekstri og Hagar er hægt að finna út meðaltal ýmissa margfaldara sem notaðir eru til að ákvarða virði fyrirtækja. Slíkir margfaldarar taka tillit til efna- hags, stöðu, veltutalna og fram- legðar fyrirtækja. Með því að reikna meðaltal þeirra margfaldara út frá reikningum erlendra félaga í sambærilegum rekstri og Hagar er niðurstaðan sú að Hagar séu líklega um 20 milljarða virði, sé miðað við ársreikning félagsins fyrir fjárhags- árið sem endaði í febrúar 2008, en það er nýjasti ársreikningur Haga sem liggur fyrir. Hvað græðir Nýja Kaupþing? Rætt hefur verið um að Jón Ás- geir og tengdir fjárfestar komi inn með 5-7,5 milljarða króna til að tryggja sér 60% eignarhald á Hög- um, og Nýja Kaupþing myndi þá eignast 40% á móti. Í ljósi þess að Hagar og 1998 skulda samtals 60 milljarða eða meira er ljóst að lítið ávinnst með að setja 5-7,5 milljarða inn í slíkt félag án þess að til tug- milljarða afskrifta komi. Því er vert að spyrja þeirrar spurningar hvaða hugsun gæti legið að baki þeirri mögulegu ákvörðun Kaupþings að afskrifa tugi milljarða gegn því að fá 40% hlut í fyrirtæki sem er 20 milljarða virði. Jafnframt yrði Kaupþing minnihlutaeigandi í fyr- irtækinu, ef farin yrði sú leið sem er reifuð hér að ofan. Miðað við þær forsendur að sjö milljarða hlutafjárframlag skili Jóni Ásgeiri og tengdum aðilum 60% hlut í Högum er fyrirtækið verð- metið á 11,7 milljarða í þeim hugs- anlegu viðskiptum, sem er talsvert lægri fjárhæð er minnst var á í verðmatinu að ofan sem miðaðist við hefðbundna margfaldara. útilokaðir frá Högum Morgunblaðið/Golli Tapaði „vonandi ekki neinu“ Þegar bankastjóri Nýja Kaupþings, Finnur Sveinbjörnsson, var inntur eftir því hversu mikið hefði tapast á viðskiptum við Jón Ásgeir Jóhannesson var svarið einfalt: „Vonandi ekki neitt.“ Í GÆR óskuðu þingmenn Sjálf- stæðisflokks eftir fundi í við- skiptanefnd Al- þingis þar sem farið er fram á að stjórn- endur banka svari hvaða reglur gilda um skuldameðferð og fjárhagslega endurskipulagningu. „Til að koma á trausti á fjármálamarkaði er nauðsyn að stjórnvöld og bankar komi með gegnsæjar reglur. Um 60 til 70% fyr- irtækja í landinu búa við skuldavanda en í aðstoð má ekki ganga þannig fram að önnur fyrirtæki betur stödd geti ekki keppt við þau,“ segir Guð- laugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokks. sbs@mbl.is Vilja gegn- sæjar reglur Guðlaugur Þór Þórðarson HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ BERÐU SAMAN VERÐ OG ÞJÓNUSTU VIÐ BÖRN NÆST ÞEGAR ÞÚ FLÝGUR HVERS VEGNA VELUR ÞÚ ICELANDAIR? • Í afþreyingarkerfinu um borð er úrval af góðu barnaefni, íslensku og erlendu. • Öll börn fá barnabox með mat. • Við bjóðum börnunum teppi, kodda og heyrnartól. • Börnin geta litað og skrifað á póstkort sem við sendum fyrir þau til viðtakanda. AFSKRIFTIR Nýja Kaupþings á skuldum Haga skapa sögulegt tækifæri til að end- urskipuleggja smá- sölumarkaðinn. Þetta segir Gísli Tryggvason um- boðsmaður neyt- enda. „Nú ættum við að sýna frum- kvæði og skipta þessari keðju upp og auka samkeppni neytendum til hags- bóta,“ segir Gísli sem telur eðlilegt að Hagar verði seldir hæstbjóðanda. Sögulegt tækifæri Gísli Tryggvason www.mbl.is/sjonvarp Tækifæri til að auka

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.