Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.11.2009, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2009 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Fréttir afuppgjörs-málum fyrirtækjanna Haga og 1998 eru of óljósar til að vera viðunandi. Menn bera fyrir sig banka- leynd eins og endranær. Og vissulega geta verið full rök fyrir henni, og ríkir hags- munir. Þó er það ekki endilega einhlítt. Hvern á sú leynd að verja við þessar sérstöku að- stæður, sem eru uppi í þessu tilviki? Bankann, svo hann megi ganga erinda sem þorri þjóðarinnar teldi ögrun og hneyksli? Skuldarann, sem er hinn sami sem reyndist skulda þremur íslenskum bönkum vel á annað þúsund milljarða króna við endalok þeirra? Fjárhæðin var meiri en allt eigið fé þessara stofnana með- an það taldist enn vera fyrir hendi. Ekki löngu áður sagði sá aðili efnislega í viðtali við Morgunblaðið, að hann væri svo heppinn að skulda lítið í ís- lenskum bönkum. Slíka firru gat hann farið með í öruggu skjóli bankaleyndar. Er það í henni falið að menn geti farið með vísvitandi ósannindi og þau megi ekki leiðrétta? Verð- ur ekki að útskýra betur fyrir þjóðinni en gert hefur verið að ekkert sé undarlegt við það að menn sem þegar hafa hlaupið frá skuldum upp á hundruð milljarða séu taldir líklegir til að sitja einhvers staðar með sjö milljarða eða meira í lausu fé. Ef slíkt fé væri til, þykir ekki eðli- legra að það sé notað til að grynnka á yfirgengilegum óráðsíuskuldum, sem ella falla á almenning í landinu? Ekkert af þessum mikilvægu álitaefn- um er hægt að forðast að ræða með vísun í bankaleynd. Og enn vekur þetta mál spurn- inguna um það hverjir séu að eignast íslensku bankana og á hvaða grundvelli og með sam- þykki hvers. Er það virkilega svo að þjóðþingið, sem vissu- lega er verið að niðurlægja með Icesave-málinu, hafi ekki burði til þess að hefja ýtarlega rannsókn á því hvert forræði íslensku bankanna er að fara? Eru hinar dularfullu skila- nefndir ekki skyldugar til að gera hreint fyrir sínum dyrum gagnvart þinginu? Mikla athygli hefur vakið hversu ólíka meðhöndlun hag- kaupamenn virðast fá miðað við björgólfsfeðga. Þeir síð- arnefndu buðust til að borga helming tiltekinna skulda. Þá stóð ekki á að bankastjórinn og fjármálaráðherrann tjáðu sig. Nú eru svörin óljósari og loðn- ari en dæmið sýnist þó tífalt verra. Hvernig stendur á þess- um mun? Göngum hægt og göngum hljótt, þá grunar öngvan nokkuð ljótt} Breytileg afstaða til bankaafskrifta Rekstur fjöl-miðla hefur verið mikil bar- átta bæði hér á landi og erlendis á liðnum miss- erum. Sú barátta hefur nær ein- göngu verið varnarbarátta. Við þessar erfiðu aðstæður er sérstaklega ánægjulegt hversu vel þau tvö nýju verkefni sem Morgunblaðið hefur ráðist í að undanförnu hafa skilað sér. Annað er samstarf við Skjáinn um út- sendingu sjónvarpsfrétta. Morgunblaðið útvegar frétt- irnar, sem þýðir að á bak við þær er öflugasta fréttastofa landsins. Árangurinn hefur þegar sýnt sig því að frétt- irnar hafa mælst vel fyrir – og mælst vel. Í könnun um hversu margir horfa á fréttatíma sjónvarpsstöðv- anna þriggja kemur í ljós að fjöldi þeirra sem horfa á fréttatíma mbl.is á Skjánum slagar upp í fjöldann sem horfir á fréttatíma hinna stöðvanna, þó að þær hafi áratuga forskot. Hitt nýja verkefnið er gjörbreyttur og bættur Sunnudagsmoggi. Sú metn- aðarfulla útgáfa er ekki sjálfsögð á tímum sem þess- um en hún undirstrikar að Morgunblaðið hyggst hvergi gefa eftir í samkeppninni. Jákvæðar breytingar sem mæta þeirri þörf sem uppi er hverju sinni, framúrskar- andi efni og vönduð vinnu- brögð eru enn sem fyrr lyk- illinn að árangursríkri blaðaútgáfu. Þetta er það sem áskrifendur Morgun- blaðsins búast við af blaðinu sínu og einnig það sem rit- stjórn blaðsins hefur metnað til að veita. Nýr sjónvarps- fréttatími og nýr Sunnudagsmoggi hafa gengið framar vonum } Ánægjuleg nýbreytni Þ að er ekki lengur hægt að bjóða þjóðinni upp á stöðuga einleiki frá þingmönnum vinstri grænna. Sí- felld upphlaup einstakra þing- manna eru orðin það hvimleið að jafnvel þolinmóðustu þegnum þessa lands ætti að vera ljóst að nú er kominn tími til að losna við vinstri græna úr ríkisstjórn. Rétt er að taka fram að Steingrímur J. Sig- fússon hefur staðið sig gríðarlega vel í erfiðu starfi fjármálaráðherra og það ber að þakka honum – reyndar margþakka. Hins vegar fylgja Steingrími engar sérstakar kræsingar þar sem þingflokkur hans á í hlut. Þjóðin þarf hvíld frá þeim óhæfu þingmönnum vinstri grænna sem hafa fest sig í prímadonnustælum og spila sóló flesta daga. Það vekur furðu hversu mikið langlund- argeð Samfylkingin sýnir þessum mjög svo afturhalds- sama samstarfsflokki sínum. En nú hlýtur þolinmæðin senn að vera á enda. Samfylkingin verður að sýna vinstri grænum rauða spjaldið. Á því hálfa ári sem þetta sér- kennilega samkrull Samfylkingar og vinstri grænna hef- ur staðið yfir hefur það hvað eftir annað gerst að þing- menn vinstri grænna tala gegn stefnu ríkisstjórnarinnar og neita að styðja mál sem hún beitir sér fyrir. Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á þannig ríkisstjórn. Nú er mál að linni. Þjóðin á rétt á því að fá starfhæfa ríkisstjórn og fengi hana með samvinnu Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Flokkarnir verða að ná sáttum og vinna sam- an að bættum þjóðarhag. Stefna Sjálfstæðisflokksins er í grunninn heilbrigð og skynsamleg – fyrir utan hina óg- urlegu frjálshyggju sem ákveðinn armur flokksins tilbiður af miklum móð. Þar hafa menn villst af leið eins og þeim hlýtur sjálfum að vera ljóst. Sjálfstæðismenn hafa upp til hópa mik- ilvægan skilning á nauðsynlegri uppbyggingu atvinnulífsins og leggjast gegn stórfelldum skattahækkunum. Svo líta þeir ekki á peninga sem afl illra hluta, eins og vinstri grænir gera, heldur vita að fjármagn skapar þjóðfélagið. Í Sjálfstæðisflokknum er síðan vaskur hópur manna sem horfa hlýlega til Evrópusam- bandsins. Megi sá armur Sjálfstæðisflokksins eflast og dafna og gæfan fylgja honum alla tíð. Harðsnúin vinstri pólitík er ekki það sem þjóðin þarf nú á að halda. Hún þarf skynsama forystu þar sem menn eru ekki í stöðugum einleikjum í fjölmiðlum heldur leita lausna á vandanum. Samfylkingarmenn og sjálfstæð- ismenn eiga nú að leggja saman og forða þjóðinni frá þeirri glundroðapólitík sem vinstri grænir hafa skapað með setu sinni í ríkisstjórn. Dagar þessarar ríkisstjórnar eru vonandi senn taldir. Þetta var vond tilraun sem var dæmd til að mistakast vegna stöðugs upphlaups frá óróadeild vinstri grænna. Þjóðinni allri er greiði gerður með því að það fólk setjist í stjórnarandstöðu sem allra fyrst. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Nauðsyn á nýrri ríkisstjórn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Þverrandi vinsældir Bandaríkjaforseta FRÉTTASKÝRING Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is V insældir Baracks Oba- mas Bandaríkjaforseta fara þverrandi heima fyrir. Andstæðingar hans gagnrýna hann af mikilli heift og stuðningsmönnum hans finnst hann skorta ákveðni. Í þessari viku er ár liðið frá því að Obama var kosinn forseti. Í kosn- ingabaráttunni boðaði hann breyt- ingar, en þær hafa látið á sér standa. Í úttekt í tímaritinu Newsweek var af þessu tilefni farið ofan í 15 kosn- ingaloforð forsetans og var nið- urstaðan sú að tvö hefðu verið upp- fyllt, eitt brotið og restin hefði mætt hindrunum eða væri í vinnslu. Fyrstu vikurnar eftir að Obama tók við embætti naut hann velþókn- unar um 70% kjósenda fyrir störf sín. Í lok apríl þegar hann hafði ver- ið 100 daga í embætti naut hann meiri stuðnings en forverar hans undanfarin 20 ár höfðu gert eftir jafn langan tíma við völd. Í júlí voru vinsældir Obamas orðn- ar minni en vinsældir Bush voru hálfu ári eftir að hann varð forseti. Á sunnudag birtist mánaðarleg könnun Rasmussen Reports sem sýndi að 29% kjósenda líta störf Obamas með mikilli velþóknun, en 39% með mikilli vanþóknun. Út frá þessum tölum er reiknaður svokall- aður velþóknunarstuðull, sem nú stendur í -10 hjá forsetanum, en var -8 í október. Í mars höfðu demókratar tuttugu prósentustiga forskot á repúblikana, nú er forskotið komið niður í sex prósentustig. Þá töldu 56% Banda- ríkjamanna að Bandaríkin væru á réttri leið, en nú er sama hlutfall þeirra hyggju að Bandaríkin séu á rangri leið. Obama tók við embætti í miðju efnahagsfári. Hann hefur þurft að standa fyrir gríðarlegum fjár- útlátum úr vösum skattborgara í björgunaraðgerðir, sem eru lítt fallnar til vinsælda. Bandarískt stjórnkerfi er vísvit- andi hannað þannig að allar breyt- ingar gerast hægt. Obama er ekki fyrsti forsetinn, sem finnur fyrir því. Honum er hins vegar legið á hálsi fyrir að vera maður fagurra orða og fyrirheita, en áhrifalaus. Til marks um þetta er bent á að hvort sem um er að ræða heilbrigðismál heima fyr- ir, landtökubyggðir Ísraela, kjarn- orkuklerka í Íran eða alþjóðlegu ól- ympíunefndina, valdamesti maður heims fái engu framgengt. Dálkahöfundurinn Charles Kraut- hammer, sem kenndur er við ný- íhaldssemi, telur að stefna Obamas leiði til falls Bandaríkjanna. Stöðug sjálfsgagnrýni forsetans og afsök- unarbeiðnir vegna hroka, pyntinga, Hiroshima, Guantanamo, einhliða utanríkisstefnu og skorts á virðingu fyrir veröld múslíma grafi undan landinu. Fjölmiðlamaðurinn áhrifa- ríki Rush Limbaugh sakar Obama um að gelda Bandaríkin. Það kunni Evrópuaðallinn að meta og þess vegna hafi hann fengið Nóbels- verðlaunin: „Þeir vilja veikja, gelda Ameríku og þetta er leið þeirra til að koma hugmyndinni í umferð,“ sagði hann. En hefði heimurinn frekar látið að stjórn hefðu John McCain eða Hillary Clinton verið forsetar? Eða hafa væntingarnar enn einu sinni strandað á veruleikanum? Reuters Forsetinn Barack Obama Bandaríkjaforseti fer sér hægt og vinsældir hans minnka. Eru kjósendur orðnir óþolinmóðir? Miklar væntingar voru gerðar til Baracks Obamas þegar hann varð forseti. Nú er valdamesti maður heims sagður án áhrifa og gagnrýndur fyrir að fá engu framgengt. Þótt vinsældir Baracks Obamas Bandaríkjaforseta kunni að hafa dalað, er ekkert lát á áhuganum á einkalífi hans. Í tímariti bandaríska dagblaðsins The New York Times á sunnudag birtist löng grein um hjónaband forsetans. Þar kvartar forsetinn undan því að hann geti ekki boðið konunni sinni út án þess að það verði pólitískt stórmál. Vísar hann þar til þess að í vor flaug hann með konu sinni, Michelle, til New York og fór með henni út að borða og á leiksýningu. Repúblikanar gagnrýndu Obama fyrir að bruðla með opinbert fé. Obama segir að væri hann ekki forseti þyrftu þau hjón ekki að hafa áhyggjur af látum og ljósmyndurum. Hann getur gagnrýnt athyglina, en þau hjón hafa á hinn bóginn lítið gert til að forðast hana og forsetaembættið hefur opinberlega birt margar myndir af þeim hjónum saman. EKKERT EINKALÍF››

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.