Morgunblaðið - 03.11.2009, Side 36

Morgunblaðið - 03.11.2009, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 307. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heimild: Seðlabanki Íslands DOLLARI STERLINGSPUND KANADADOLLARI DÖNSK KRÓNA NORSK KRÓNA SÆNSK KRÓNA SVISSN. FRANKI JAPANSKT JEN SDR EVRA MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 124,98 204,86 115,57 24,786 21,902 17,738 122,23 1,385 198,55 184,49 Gengisskráning 2. nóvember 2009 125,28 205,36 115,91 24,859 21,966 17,79 122,57 1,3891 199,14 185,01 237,7281 MiðKaup Sala 125,58 205,86 116,25 24,932 22,03 17,842 122,91 1,3932 199,73 185,53 Heitast 7°C | Kaldast 0°C Norðaustan 5-13 m/s, slydda eða rign- ing N- og NA-lands en léttir til á Suður- og Vesturlandi. » 10 Fagmannleg um- gjörð, góð sviðsetn- ing, stutt sýning en sagan of flöt, segir m.a. um Sindra silf- urfisk. »29 LEIKLIST» Litrík fiska- sýning KVIKMYNDIR» Enginn Bíólisti vegna ágreinings. »31 Einn fremsti selló- leikari Íslendinga, Sæunn Þorsteins- dóttir, samdi nýver- ið um plötuútgáfu við Central Records. »27 TÓNLIST» Fyrsta plata Sæunnar TÓNLIST» Ragnheiður með sjöttu breiðskífuna. »28 FÓLK» Winehouse er komin í ræktina. »33 Menning VEÐUR» 1. Fangavaktinni stolið 2. Áhersla lögð á að bólusetja … 3. Bjóða sambýliskonu Stiegs … fé 4. Neyðarkall vegna inflúensu Íslenska krónan styrktist um 0,7% »MEST LESIÐ Á mbl.is  Elísabet Gunn- arsdóttir, þjálfari kvennaliðsins Kristianstad, segir að tímabilið í sænsku úrvals- deildinni hafi verið mikill og góður skóli. Liðið bjargaði sér frá falli í síð- ustu umferð með 3:1-sigri en tapaði fyrstu tíu leikjunum. „Samningur minn er að renna út. Ég vil vera hér áfram, ég sé ótrúlega mikla mögu- leika. Ég er ekki manneskja sem stoppar í eitt ár þar sem hún er,“ segir Elísabet. FÓTBOLTI Elísabet býst við að fá annað tækifæri í Svíþjóð  Uppfærsla Óp- erunnar í Aachen í Þýskalandi á Pell- eas og Melisande eftir Debussy hef- ur hlotið lofsam- lega dóma í þýsk- um fjölmiðlum. Hrólfur Sæmundsson barítón fer með hlutverk Pelleasar. Lofdómar um uppfærsluna hafa m.a. birst hjá Deutschland Radio, Aachener Zeit- ung, Grenzland-tímaritinu og WDR- útvarpsstöðinni. Hrólfur hóf nýverið störf við óperuna í Aachen og syngur einnig hlutverk Papagenós í Töfra- flautunni og Fords í Falstaff. ÓPERA Lof borið á Hrólf og félaga í Óperunni í Aachen  Reclam-forlagið í Þýskalandi hefur nú gefið út eitt þekktasta verk Gunnars Gunn- arssonar, Svart- fugl, frá árinu 1929, í nýrri og endurskoðaðri þýðingu Karls Lud- wigs Wetzigs. Svartfugl skrifaði Gunnar á hátindi ferils síns, á ár- unum 1923-1933, en á því tímabili komu einnig frá honum Fjallkirkjan, Sælir eru einfaldir og Vikivaki. Svartfugl er söguleg skáldsaga, segir af morðunum sem framin voru á bænum Sjöundá árið 1802. BÓKMENNTIR Svartfugl gefinn út í endur- skoðaðri þýskri þýðingu settir alltof litlir peningar í við- haldið,“ segir Helgi Sigurðsson, hleðslumeistari á Sauðárkróki, og bætir við: „Staðan er orðin sú að ég á erfitt með að segja hvað eigi að gera næst þegar leitað er eftir áliti mínu. Það er erfitt að taka eitt hús fram yfir annað þegar eitthvað þarf að gera í öllum húsunum.“ Hann telur að Íslendingar standi frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun að fækka húsunum í húsasafni Þjóðminjasafnsins og leggja áherslu á að gera almennilega við þau helstu. | 14 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is TORFHLEÐSLUMAÐUR sem vinn- ur mikið að viðhaldi torfhúsa í húsasafni Þjóðminjasafnsins leggur til að torfhúsum safnsins verði fækkað þannig að hægt verði að halda þeim sem eftir verða sóma- samlega við. Í húsasafni Þjóðminjasafnsins eru hús hlaðin úr torfi og grjóti á yfir tuttugu stöðum á landinu. Þau þarfnast mikils viðhalds. „Við erum í stöðugri nauðvörn […] Það eru Torfhúsunum verði fækk- að og þeim haldið betur við Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Stuðningur Gamli bærinn á Völlum í Skagafirði er að niðurlotum kominn og framhúsið væri fallið fram á hlaðið ef það nyti ekki stuðnings vélarinnar. Eigandinn sér ekki möguleika á að gera bæinn upp. Eftir Andra Karl andri@mbl.is SJALDAN hefur verið meira prjónaæði meðal Íslendinga en um þessar mundir. Frænkurnar Erla Sigurlaug Sigurðardóttir og Hall- dóra Skarphéðinsdóttir fóru ekki varhluta af því og hófu í sumar söfnun uppskrifta hjá prjónurum úr grasrótinni. Afraksturinn má finna í bók þeirra Prjónaperlur – prjónað frá grasrótinni sem kemur út í lok mánaðarins. Í kjölfar þess að Erla missti vinnu sína sem kennari snemma á árinu sótti hún Halldóru frænku sína heim í Stokkhólmi í hús- mæðraorlofi, en það gerir hún reglulega. Halldóra, sem er mikil prjónakona og annar höfunda prjónabókarinnar Prjóniprjón, tók Erlu sem áður í handavinnu- kennslu. Vaknaði þá hugmyndin. Mannfræðileg prjónabók „Þar sem svo mikil gróska er í prjóni á Íslandi vorum við for- vitnar um það hvað fólk væri að prjóna. Við höfðum samband við prjónara sem við vissum að færu ekki eftir hefðbundnum upp- skriftum og prjónuðu og hekluðu frekar eftir eigin höfði,“ segir Erla og bætir við að söfnunin hafi geng- ið framar vonum. Í bókinni má finna um fimmtíu prjónauppskriftir eftir átján prjón- ara, hinar eiginlegu prjónaperlur úr grasrótinni hvaðanæva af land- inu, auk Erlu og Halldóru. „Við köllum bókina stundum „mann- fræðilega prjónabók“ þar sem auk uppskriftanna fylgir léttur og húm- orískur texti um hvern prjónara.“ Ekki er nema rúmt ár síðan Erla fór að fikta af alvöru við prjónið. Halldóru má hins vegar flokka sem þungavigtarprjónara. Farin var því sú leið að velja upp- skriftir sem allir geta prjónað. „Uppskriftirnar eru mjög fjöl- breyttar og henta bæði byrjendum og þaulvönum og er hver uppskrift einstök prjónaperla. Við lögðum upp með að hafa uppskriftirnar á mannamáli og það fór engin upp- skrift í bókina sem ég skildi ekki sem byrjandi.“ Morgunblaðið/Ómar Prjónað Erla sem á von á sínu öðru barni eftir fáeinar vikur segir fjölda uppskrifta hafa safnast og gerir því ráð fyrir að fleiri prjónaperlur líti dagsins ljós. Prjónaperlur úr grasrótinni Missti vinnuna og hóf að safna prjóna- uppskriftum í bók sem senn kemur út Í HNOTSKURN »Erla er mannfræðingur ogHalldóra doktor í líffræði. »Þær söfnuðu sjálfar upp-skriftum, skrifuðu text- ann, tóku ljósmyndir og settu bókina upp.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.