SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Side 4
4 1. nóvember 2009
Í gervi Sómalans Kwamis Ogonnos fór Günter Wall-
raff á knattspyrnuleik milli Energie Cottbus og Dy-
namo Dresden, tveggja austur-þýskra liða. Í Þýska-
landi er að finna svæði þar sem svartir ættu að láta
lítið fyrir sér fara, sérstaklega í austurhlutanum,
skrifar Wallraff: „Þetta er óvinaland.“
Eftir leikinn stígur hann um borð í rútu, sem á að
fara með áhangendur Dresden. „Inni eru að mestu
ungir menn, en einnig nokkrar ungar konur. Það er
þröngt og hávaðasamt, andrúmsloftið þrútið af
áfengi. Nokkrir byrja að ýta við mér, grípa í mig. Ég
fæ á tilfinninguna að ég þurfi að verja mig, að
minnsta kosti með orðum. Ég verð að blása til sókn-
ar.“
Foringi bullanna gerist dónalegur, en Wallraff svar-
ar fullum hálsi. Bullan segir Wallraff að hypja sig,
þetta land verði hvítt, hvítt sé þýskt.
„Til að gera hann óöruggan segi ég honum að fyrir
framan hann standi svartur Þjóðverji.
„Þú þýskur? Ha!“
Vinkona hans stekkur að hlið hans: „Þetta hef ég
aldrei áður séð, svartan Þjóðverja!“
Annar maður úr hópi hinna stoltu Þjóðverja er nú
risinn á fætur og stendur í vegi fyrir mér. Enn magn-
ast aðstæður, við stöndum þétt hvor upp við annan.
Þá blandar sér ung lögreglukona í málið. Hún er hug-
rökk því að hún tekur minn málstað. Með ákveðinni,
hárri röddu segir hún: „Hleyptu honum í gegn! Skilur
þú mig ekki?!“
Hróp, hlátur – þau víkja.
Hrein tilviljun ræður því hvort maður er á röngum
stað á örlagastundu – eða sleppur ómeiddur.“
Í lok rannsóknar sinnar skrifar Wallraff: „Nú legg
ég hliðarsjálf mitt til hliðar. En allir hinir þurfa að upp-
lifa fyrirlitninguna áfram, á hverjum degi.“
Þetta er óvinaland
Blaðamaðurinn Günter Wallraff skiptir litum.
Ljósmynd/X-Verleih
V
ið borðstokkinn á gondóla í hall-
argarðinum í Wörlitz situr svartur
maður og aðrir um borð veigra sér
við því að setjast við hlið hans. Það
er ekki fyrr en báturinn fyllist að maður einn
þokar sér upp að blökkumanninum. Tor-
tryggnin leynir sér ekki og það sama gerist
raunar hvar sem maðurinn kemur. Með sem-
ingi fær hann að fara með húsbíl inn á tjald-
stæði, afgreiðslukona í úrabúð heldur fast um
gullúrið á meðan hann skoðar það, þótt næsti
viðskiptavinur, hvítur á húð, fái að halda á því.
Gamanið kárnar þegar komið er á fótboltaleik.
Þá víkur tortryggnin fyrir óvild og ofbeldið
liggur í loftinu.
Vill hrista upp í hlutunum
Ekki er hins vegar allt sem sýnist. Undir dökkri
málningu leynist maður sem gert hefur út á
það að sigla undir fölsku flaggi til að afhjúpa
skuggahliðar Þýskalands og leggja lóð á vog-
arskálar þeirra sem minna mega sín í samfélag-
inu. Günter Wallraff er kominn á kreik á ný.
Hann er nýorðinn 67 ára gamall. Um þessar
mundir er verið að frumsýna myndina Svart á
hvítu þar sem hann tekur á kynþátta-
fordómum í Þýskalandi. Á bókamessunni í
Frankfurt fyrr í mánuðinum var ný bók hans
kynnt, Úr veröld nýrri og góðri (Aus der schö-
nen neuen Welt). Heitið vísar til bókar Aldous
Huxleys, Veröld ný og góð. „Ég hef alltaf trúað
á þróun,“ sagði Wallraff á blaðamannafundi á
bókamessunni. „Stöðuga framþróun í átt að
aukinni mannúð og auknu réttlæti, en þýskt
samfélag skiptist greinilega milli stöðugt fá-
tækara og stöðugt ríkara fólks. Hér á sér stað
rof. Bókinni er ætlað að hrista upp í hlut-
unum.“
Wallraff hefur leikið mörgum skjöldum, en
þar til nú þorði hann ekki að dulbúast sem
blökkumaður af ótta við að fólk sæi í gegnum
gervið. Sérstök spraututækni gerði honum hins
vegar kleift að fara í nokkuð sannfærandi gervi
og í heilt ár varð Wallraff reglulega að Sómal-
anum Kwami Ogonno. Sjálfur segir Wallraff að
auðvelt hafi verið að sjá í gegnum gervið, en al-
mennt sé athygli fólks einfaldlega ekki vak-
andi.
En hann bregður sér í ýmis önnur gervi í
bókinni. Framan á henni eru fjórar myndir af
höfundinum og erfitt að sjá að þar fari sami
maður. Í bókinni kemur Wallraff einnig fram
sem starfsmaður í iðnaðarbakaríi og útigangs-
maður, svo eitthvað sé nefnt.
Rúm 40 ár eru liðin frá því að Wallraff gaf út
sína fyrstu bók, þá liðlega tvítugur. Hún fjallaði
um meðferð þýskra iðnverkamanna í stórfyr-
irtækjum um miðjan sjöunda áratuginn og
hann hefur fjallað um svipuð mál. Wallraff
laumaði sér í gervi blaðamannsins Hans Esser
inn á ritstjórnarskrifstofur Bild, stærsta dag-
blaðs Evrópu, og afhjúpaði óprúttin vinnu-
brögð þess með eftirminnilegum hætti. Á Ís-
landi er hann sennilega þekktastur fyrir bókina
Niðurlægingin, sem kom út á íslensku árið
1986. Þar fór hann í föt tyrknesks farandverka-
manns, Alis, og fann á eigin skinni hvernig
móttökur Tyrkir fengu í Þýskalandi.
„Wallraff lýsir mjög skýrum heimi,“ sagði í
grein um blaðamanninn í vikuritinu Der Spie-
gel. „Gott og illt, svart og hvítt, þýskt og út-
lent. Andstæður. Á botninum eru hinir heim-
ilislausu, hjálparstarfsmennirnir,
útlendingarnir. Ofan á sitja fyrirtækin, for-
stjórarnir, meirihlutasamfélagið.“ Síðan hann
hófst handa hafi nánast allt breyst í Þýskalandi,
skipt hafi verið um kanslara og landið sam-
einað, svo eitthvað sé nefnt, en Wallraff hafi
ekkert breyst.
Arfleifð horfins tíma?
Í greininni er látið að því liggja að Wallraff sé
gamaldags og auðvelt að draga dár að honum í
heimi hinna kaldhæðnu og veraldarvönu. Þeg-
ar hann hófst handa hafi línurnar verið skýrar,
en nú séu hugsjónir og sannfæring skiptimynt í
taflinu um völdin. Með verkum sínum takist
Wallraff ef til vill að kalla fram smávægilegar
breytingar, en í stórum dráttum breytist ekki
neitt. Þetta er harður dómur um ævistarf hug-
sjónamannsins Wallraffs. Þeir, sem minnst
mega sín í samfélaginu, eiga sér ekki marga
málsvara, hvorki í Þýskalandi né annars staðar.
Svart
á hvítu
Fór um Þýska-
land í gervi
blökkumanns
Í eitt ár fór Günter Wallraff um heimaland sitt í gervi blökkumanns. Afraksturinn er umfjöllun um fordóma í Þýskalandi.
Ljósmynd/X-VerleihVikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Morð
138 morð hafa verið
rakin til hægri öfga-
manna og kynþátta-
fordóma í Þýskalandi
frá árinu 1990.
Árásir
Tilkynnt var um 140
árásir, munnlegar og
líkamlegar, sem rekja
mátti til kynþátta- eða
gyðingahaturs í Berlín
til samtakana
ReachOut árið 2008.
Fordómar
Um þriðjungur Þjóð-
verja er haldinn kyn-
þáttafordómum sam-
kvæmt könnun
félagsfræðingsins
Wilhelms Heit-
meyers.
www.noatun.is
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI
2998
33%
afsláttur
LAMBA PRIME
KR./KG1998
Ódýrt
og gott
í Nóatúni
VERÐ
FRÁBÆRT