SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Side 21
1. nóvember 2009 21
1
nótt
2-50
nætur
50-100
nætur
100-566
nætur
27
49
49
14x
Konur sem leitað
hafa í Konukot
Samtals frá upphafi:139konur
GRÆNN
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
.
RAUÐU
RTILBÚ
INN TIL
NOTKU
NAR
hálsi 3 -
110 R.
HVÍTUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
.
GULUR
TILBÚINN
TIL NOTK
UNAR
lsi 3 - 11
0 R.
sumar,“ segir Elín.
Af þeim 121 sem skilgreindur
var utangarðs og/eða heim-
ilislaus voru 24% konur, eða
samtals 29, sem samræmist
niðurstöðum svipaðra rann-
sókna sem gerðar hafa verið á
Norðurlöndum en þar er pró-
senta kvenna meðal heim-
ilislausra milli 20 og 27%.
Konur viðurkenna vanda sinn
þegar þær stíga inn í Konukot
„Það er samt svo erfitt að tala
um ákveðinn fjölda því hann er
svo breytilegur. Að vera heim-
ilislaus er ekki eitthvað eitt
óbreytanlegt ástand,“ segir El-
ín.
Elín segir Konukot vera gríð-
arlega mikilvægt fyrir þennan
hóp heimilislausra kvenna en
segir jafnframt að það sé ákveð-
in neyð í samfélaginu þar sem
vantar sértækt búsetuúrræði
fyrir ákveðinn hóp af konum.
Þegar konurnar stíga inn í
Konukot eru þær um leið að
viðurkenna vandamál sitt. „Það
eru margir sem myndu aldrei
segja, ég er heimilislaus, því það
fylgir þeirri staðhæfingu svo
mikil skömm. Og ákveðinn
hópur kvenna sem leita í Konu-
kot hefur ákveðna fordóma
gagnvart eigin aðstæðum,“ seg-
ir Elín. Hún telur að margar
ungar konur í vanda átti sig
ekki á því að þetta úrræði standi
þeim til boða og vill koma því á
framfæri að ungar konur eru
velkomnar í Konukot og mættu
jafnvel nýta sér Konukot betur.
mikla frið. Síðan þá hef ég verið
dugleg að vinna stöðugt í mér
og ég er búin að syngja og dansa
í 19 ár.“
Seldi bílinn og fór til
Flórída í biblíuskóla
Stuttu eftir atvikið í bakaríinu
seldi Jóhanna bílinn sinn og fór í
fimm mánuði í biblíuskóla í
Flórída. Hún tók tvo yngstu syni
sína með sér, þá 10 ára gamla.
Fólkið í kringum hana hélt að
hún væri að ganga af göflunum
og var mest hneykslað yfir því
að hún skyldi selja bílinn sinn.
Hún segir þessa reynslu hafa
verið ómetanlega, bæði fyrir sig
og strákana sína. Jóhanna segir
að hún hafi á þessum tíma vanið
sig á að vera alltaf jákvæð og tala
út frá jákvæðni. Hún segir það
hafa hjálpað sér mikið og eflaust
átt þátt í því að smám saman
náði hún markmiðum sínum og
var komin með eigin íbúð og
nýjan bíl. Jóhanna hefur sett sér
það markmið í lífinu að halda
áfram að láta gott af sér leiða og
stefnir á að fara í sjálfboðastarf á
barnaheimili í Kenía næsta
sumar.
Jóhanna á fjóra uppkomna
stráka og fimm barnabörn og
hún brosir allan tímann sem
hún ræðir um fjölskyldu sína.
„Ég er rosalega heppin með
strákana mína. Þeir hafa allir
komið sér vel fyrir í lífinu og ég
á frábærar tengdadætur líka. Ég
er svo blessuð og þakka guði á
hverjum einasta degi fyrir
börnin mín og barnabörn. Elstu
strákarnir mínir eru aldir upp í
mjög miklum alkóhólisma og
fengu í raun mjög erfitt upp-
eldi. Þeir hafa samt náð sjálfir
að vinna vel úr þeim málum.
Þegar ég svo leystist út úr viðj-
um alkóhólismans var eins og
þeir færu á svipuðum tíma að
vinna sig út úr sínum málum
líka. Yngri strákarnir mínir
fóru með mér í kirkjuna þegar
ég frelsaðist og þeir hafa alist
upp í frjálsu söfnuðunum og
eignast lifandi trú og kunna að
meta lífið. Þeir vita samt hvað
alkóhólismi er þar sem pabbi
þeirra er virkur alkóhólisti í
dag, svo auðvitað hefur þetta
alla þeirra tíð verið nálægt
þeim. Við höfum sem sagt öll
náð að vinna okkur úr þeim
vanda sem við vorum í og það
er náttúrlega bara kraftaverk en
segir okkur líka að það er alltaf
von.“