SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Qupperneq 23

SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Qupperneq 23
1. nóvember 2009 23 þetta var aðferð mín til að takast á við þetta allt saman.“ Óttaðistu einhvern tíma að missa manninn þinn? „Já, en ég sagði honum að hann hefði ekkert leyfi til að fara frá mér.“ Hefur það breytt lífi ykkar að hann vann bug á veikindum sínum? „Allir sem verða fyrir áföllum hljóta að endur- skoða líf sitt og íhuga hvað skiptir þá raunverulegu máli. Það gerðum við hjónin svo sannarlega. Það hafði aldrei hvarflað að mér að maðurinn minn yrði ekki alltaf hjá mér. Þannig að þessi reynsla breytti hugsunarhætti mínum; það sem ég hafði talið sjálf- sagt var það ekki lengur. Við fórum að gera ýmis- legt sem við höfðum lengi talað um að við þyrftum að gera en aldrei látið verða af. Fyrsta sumarið eftir að hann veiktist fórum við til Írlands og gengum í viku á fjöll með kort, kompás og bakpoka. Eftir það ferðalag fórum við markvisst að ganga bæði hér- lendis og erlendis sem er algjör lífsfylling. Við eig- um dásamlega félaga sem ganga með okkur, sem eru gömlu vinnufélagarnir mínir á skrifstofu sveit- arfélagsins Ölfuss. Það er dásamleg upplifun að ganga á fjöll og sjá fugla og gróður og kynnast alls kyns veðri.“ Megum ekki vanmeta mannauð Þú býrð í Þorlákshöfn en ert í vinnu í Reykjavík. Af hverju viltu ekki flytja til höfuðborgarinnar? „Á Suðurlandi býr fjölskylda mín, foreldrar, bræður, mágkonur og systkinabörnin. Þarna er stór hópur af vinum og félögum. Svo er dásamlegt að búa á litlum stað þar sem maður hefur húsið sitt og garð- inn sinn. Þegar ég kem frá Reykjavík, keyri austur og fer niður Skógarhlíðabrekkuna og sé yfir þorpið mitt þá verð ég samstundis úthvíld. Ég kem heim og það er eins og ég sé að fara í sumarbústað. Þarna eru lífsgæði sem ég tími ekki að láta frá mér.“ Nú ertu komin í nýtt og krefjandi starf. Held- urðu að konur séu öðruvísi stjórnendur en karl- menn? „Auðvitað er ekki hægt að alhæfa. Ég held samt að konur séu yfirleitt meira fyrir að ræða málin en karlar og leggi mikið upp úr því að fá fólk með sér. Konur eru oft lengur að taka ákvarðanir en karlar en þegar ákvörðun liggur fyrir standa þær við hana. Þetta er allavega minn háttur við að stjórna. Ég þarf mjög gjarnan að ræða við aðra áður en ég tek ákvörðun. Mér finnst reyndar að þannig eigi maður að vinna, í samráði við aðra.“ Hver eru að þínu mati helstu verkefnin sem bíða þín í nýju starfi? „Launamisrétti er mál sem þarf að taka á og þolir ekki langa bið. Það er rætt um að launamunur milli kynja á íslenskum launamarkaði sé 18 prósent og ég hef enga ástæðu til að halda að það sé öðruvísi hjá BSRB. Innan bandalagsins ætlum við að fara í mark- vissa launakönnun. Við höfum vísbendingar um að launamismunurinn geti verið enn meiri úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu. Þannig geta hlutirnir ekki gengið. Við höfum ekki efni á að vanmeta þann mannauð sem helmingur þjóðarinnar er, sem eru konur. Við verðum að tryggja jafnræði kynjanna. Annars verður aldrei sátt í þessu samfélagi. Stærsta verkefni okkar er að verja velferðar- kerfið og þá ekki síst að verja störf þeirra sem starfa þar. Að langstærstum hluta eru það konur sem sinna þessum störfum. Ef starfsfólkið er ekki til staðar þá er ekkert velferðarkerfi. Við horfumst í augu við að það er niðurskurður alls staðar. Það eykur enn nauðsyn þess að tryggt sé að allir fái nauðsynlega umönnun innan heilbrigðiskerfisins. Ef velferðarkerfið hrynur þá er þjóðin miklu verr stödd en ef hægir á framkvæmdum. Það þarf að vinna að því að viðhalda velferðarkerfinu í sátt við stjórnvöld því það er eina leiðin til að ná verulegum árangri. En ef það þarf harða baráttu til að skapa öryggisnet fyrir alla þá tökum við þann slag hversu erfður sem hann verður.“ Morgunblaðið/Ómar „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en sem póli- tískri manneskju. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á afkomu og kjörum fólks.“ Blöndunar- tæki! Vnr. 15400030 Sturtutæki ARMATURA classic hitastýrt sturtutæki. Vnr. 15400045 Handlaugartæki ARMATURA Ferryt handlaugartæki. 5.890 Vnr. 15400050 Eldhústæki ARMATURA Ferryt eldhústæki. 5.490 Vnr. 15400025 Baðtæki ARMATURA classic hitastýrt baðtæki. 15.990 13.990 viðhaldið Allt fyrir ÓDÝRT

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.