SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Page 39
1. nóvember 2009 39
Mysudrykkur
Mysu má að sjálfsögðu drekka ein-
tóma og er góð þannig. En á fernunni
frá MS er gefin þessi uppskrift
1 lítri mysa
2½-3½ dl ávaxtaþykkni ferskt eða
frosið, t.d. úr appelsínum, greipald-
inum, apríkósum, eplum eða ananas,
2½ dl sódavatn, tilbúið eða úr gosvél.
Ísmolar.
ýsuflök eða annar hvítur fiskur
spínat (ca 2⁄3 úr pokanum notað)
1 gráðostur
1 rauðlaukur
slatti af furuhnetum
döðlur (ég notaði 45 stykki)
5-6 msk. balsamik-síróp
Spínatið er skolað og sett í skál (og ef ég er í stuði
hreinsa ég stilkana af). Rauðlaukurinn skorinn smátt
og settur út í ásamt döðlunum sem ég sker í u.þ.b. 3
bita hverja. Furuhneturnar eru ristaðar og settar út í.
Gráðosturinn er mulinn út í skálina og loks er bal-
samik-sírópið sett út í og öllu blandað vel saman.
Þetta er svo sett í eldfast mót og fiskflökin krydduð
með salti og pipar og sett ofan á. Bakað í ofni í 15-20
mínútur við u.þ.b. 180 gráður.
Ekki er verra að eiga kælda flösku af Trimbach Pinot
Gris eða Clay Station Viognier í kæli til að drekka
með.
Ýsa á
spínatbeði
Gott er að setja uppþvottab-
urstann í vélina. Lokið ávallt sápu-
hólfinu áður en vélin er sett af
stað og notið uppþvottavélagljáa.
Þá þornar uppþvotturinn án þess
að taumar eða vatnsdropar séu á
glösum eða leirtaui. Uppþvottavél-
ina þarf að þrífa að innan og einnig
þarf að þvo fölsin vel. Athugið að
þvo vask að innan með stálull eða
grófum svampi, allt of algengt er
að vaskar séu með drulluskán að
innan. Hellið ekki úr skúringarfötu
í eldhúsvask eða skúrið upp úr
honum. Gott er að hafa upp-
þvottavél í þeirri hæð að ekki þurfi
að beygja sig niður til að setja í
hana.
Margrét Dórothea Sigfúsdóttir,
skólastjóri Hússtjórnarskólans
Áfram með
uppþvotta-
vélina
Húsráð
Margrétar
seta lýðveldisins. Hann kunni fram í fingurgóma að halda veislur. Hann
sagði mér að þumalputtareglan væri að vera með þriggja rétta matseðil í há-
deginu og fjögurra rétta á kvöldin og ég hef haldið mig við það. Svo hef ég
jafnvel smakkrétti inni á milli.“
Nánast yfirdrifinn í seremóníunum
Og Páll heldur áfram. „Ég hef mjög gaman af því að gera þetta eftir bókinni
– nánast svolítið yfirdrifið,“ en því fylgja allar seremóníur, eins og að leggja
diska, hnífapör og glös kórrétt á borð.
Það þarf þó ekki veislur til að Páll dragi fram potta og sleifar. „Mér finnst
mjög róandi eftir langan vinnudag að fara heim og elda. Ég myndi því aldrei
kaupa tilbúna rétti og henda þeim í ofn, jafnvel þótt tíminn væri naumur,
því það má alveg eins gera mínútusteik á sama tíma og hafa gott salat með.
Eins tekur ekki langan tíma að skella fiski í ofn eða steikja kjúklingabringur.
Ég geri það mjög oft.“
Tilraunamennska er líka hluti af matseld Páls en uppskriftin sem hér birt-
ist kom einmitt til á þann hátt. „Ég bý oft til spínatsalat með gráðosti, döðl-
um, furuhnetum og rauðlauk. Einn daginn átti ég mikinn afgang af slíku
salati frá kvöldinu áður og datt þá í hug að þetta gæti bragðast vel með fiski.
Síðan hef ég aldrei notað þetta sem salat heldur miklu frekar sem fiskrétt.“
Spínatsalat með furuhnetum, döðlum og gráðosti breyttist einn góðan veðurdag í
fljótlegan fiskrétt sem bakaður er í ofni. Gott hvítvín með skemmir ekki fyrir.
Mysa var helsti svaladrykkur Íslendinga fyrr
á öldum og einhverjir leggja sér hana
reglulega til munns enn í dag frekar en
gosdrykki, þó að þeim fari vísast fækk-
andi.
Aðallega er þessi séríslenska mjólkuraf-
urð þó notuð til þess að súrsa matvæli,
sérstaklega fyrir þorrann.
Á mysufernunum frá Mjólkursamsölunni
er greint frá því hvað gerist við súrsun;
m.a. er nefnt að hið lækkaða sýrustig
komi í veg fyrir vöxt óæskilegra gerla og
auki geymsluþol, fæðan verði auðmeltari
og næringargildið aukist. Þá segir að þar
sem bætiefni mysunnar síist inn í matvæli
sé súrmeti góð uppspretta bætiefna, eink-
um kalks og B1- og B2-vítamíns.
„Mysa verður til við skyrgerð. Gerlaflóra
mysu, bragð og gæði samsvara skyrinu
sem hún er síuð frá. Auk þess einkenna
gersveppir þessa seríslensku mjólkurafurð
og gefa henni sérstakt bragð og áferð.
Mjólkursýrugerlar í mysunni kljúfa mjólk-
ursykur og mynda mjólkursýru og getur
mysan því orðið mjög súr.“
Drykkur vikunnar Mysa
Helsti svala-
drykkurinn
fyrr á öldum