SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Side 40
40 1. nóvember 2009
S
amstarf þeirra Barða Jóhannssonar og fransk-
ísraelsku söngkonunnar Keren Ann Zeidel
hefur gefið af sér góðan ávöxt, eða svo fannst
mér í það minnsta er ég sat í smekkfullum
salnum í Pleyel-tónleikahöllinni í París sl. þriðjudags-
kvöld og beið eftir að þau birtust á sviðinu. Sinfón-
íusveitin Orchestre Lamoureux var búin að koma sér
fyrir með stjórnandann Christophe Mangou fremstan í
flokki og íslenski stúlknakórinn (dodecatetinn?)
einnig. Aðeins var beðið eftir aðalstjörnunum, Lady &
Bird - Það voru allir komnir til að sjá þau.
Þau Barði og Keren Ann hittust á bar í París árið
2000, en hann var þá staddur ytra að fylgja eftir plöt-
unni You, sem hann gaf út í nafni Bang Gang. Keren
Ann var líka að kynna skífu, var að slaka á eftir tón-
leika þar sem hún flutti lög af sinni fyrstu sólóplötu,
La Biographie de Luka Philipsen.
Það fór vel á með þeim Barða og Keren Ann, því þó
þau séu um margt ólíkir listamenn eiga þau líka sitt-
hvað sameiginlegt. Í kjölfar þessara óvæntu kynna
skiptust þau á plötum og ákváðu í framhaldinu að
reyna að vinna saman að einhverri tónlist. Sú vinna
fór svo fram sumarið 2003 í Brussel og gekk vel,
bráðvel reyndar, því þau leyfðu sér að prófa allt, eitt
lagið til að mynda samið og tekið upp á ferðatölvu
með kassagítar og diktafón og hluta af heyrnartólum
sem hljóðnema. Þess má og geta að samhliða upptök-
unum á Lady & Bird skrifuðu þau Barði og Keren Ann
eins konar dagbók sem gallerí í París gaf út í 500 ein-
tökum
Platan Lady & Bird kom svo út þá um haustið, um
líkt leyti og Bang Gang-platan Something Wrong og
sólóplata Keren Ann Not Going Anywhere. Í umsögn
um plötu Lady & Bird sagði í Morgunblaðinu: „Barði
Jóhannsson er séní og Keren Ann líka. Vonandi er
þetta samstarf Lady & Bird aðeins upphafið á langlífri
og dásamlegri vináttu.“
Þessi orð hins skarpskyggna gagnrýnanda urðu að
áhrínsorðum, því þau Barði og Keren Ann hafa haldið
samstarfinu áfram og vinátta þeirra styrkst með ár-
unum. Þau hafa þannig lagt hvort öðru lið við sóló-
skífur, samið tónlist fyrir kvikmyndir, til að mynda
fyrir heimildarmynd um Andy Warhol, sömdu lag
fyrir fyrir frönsku hraðlestirnar TGV, sem var mest
spilaða auglýsing Frakklands fyrir þremur árum og
svo má telja. Þau hafa líka haldið tónleika öðru hvoru
undir nafninu Lady & Bird eftir því sem færi hefur
gefist, héldu fyrstu tónleikana í Amerísku kirkjunni í
París 30. janúar 2004, fyrir fullri kirkju, nema hvað,
og síðan í Íslensku óperunni á Listahátíð í Reykjavík.
Umfang tónleikanna hefur aukist smám saman og
náði nýjum hæðum þegar Þorvaldur Bjarni Þorvalds-
son tók að sér að útsetja lög úr safni þeirra Barða og
Keren Ann, ýmist lög sem þau höfðu samið hvort í
sínu lagi eða saman.
Þessi herlegheit voru síðan flutt með viðhöfn í Há-
skólabíói í júní á síðasta ári á vegum Listahátíðar og
hljóðrituð til útgáfu. Platan, sem heitir La Ballade Of
Lady & Bird, kom út um daginn, og í tilefni hennar
var efnt til tónleikanna í Salle Pleyel í París.
Lögin sem Þorvaldur útsetti eru af ýmsum skífum
þeirra Barða og Keren Ann; af sólóplötum Keren Ann:
Not Going Anywhere, Nolita og Keren Ann og af plöt-
um Barða / Bang Gang: Ghosts From the Past og So-
mething Wrong, en lokalag tónleikanna er af plötunni
góðu Lady & Bird, einskonar samba, villt og settleg í
senn, sem sýnir einkar vel hverju þau áorka saman.
Þau Barði og Keren Ann eru bæði önnum kafin við
eigin tónlistariðkan, Keren Ann með sinn sólóferil og
Barði í gervi Bang Gang og sem hann sjálfur í ótal
verkefnum öðrum, sönglagakeppnum, leikhúsmúsík,
kvikmyndatónlist, upptökustjórn og svo má lengi
telja. Þegar við Barði setjumst niður til að spjalla á
kaffihúsi við stjörnutorg þeirra Parísinga daginn eftir
tónleikana er Keren Ann einmitt stödd í hljóðveri að
ganga frá tónlist við myndina Thelma, Louise et
Chantal, sem fjallar um miðaldra konur sem sletta úr
klaufunum, en í myndinni er grúi gamalla franskra
sönglaga sem Keren Ann útsetur upp á nýtt fyrir
helstu söngkonu Frakklands, en hún sér líka um sjálfa
kvikmyndatónlistina. Næst á dagskrá hjá henni er svo
ný sólóskífa en upptökur á henni hefjast í september.
Hvað Barða sjálfan varðar er hann rétt nýbúinn að
vinna tónlist fyrir sýningu í Þjóðleikhúsinu, en síðan
Lady & Bird, aukasjálf
þeirra Barða Jóhannssonar
og Keren Ann Zeidel, héldu
um daginn tónleika í einum
helsta tónleikasal Parísar.
Upphaflega áttu aldrei að
verða til nema eitt eða tvö
lög, en smám saman hefur
verkefnið undið upp á sig.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Hugur
og
hjarta