SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Síða 47
1. nóvember 2009 47
LÁRÉTT
1. Derringur í söðli út af fituþykkildi. (11)
6. Kraftur og ólyfjan fyrir slæman. (8)
7. Margrét Anna rétt með líkamsleifar. (9)
9. Sjá oftast nær sérhverja slétta. (9)
10. Laga 1000 grömm með minni. (8)
11. Vörulest fer með sjávardýr til baka. (5)
12. Heilagasti staður er að hamla þéttbýli. (6)
15. Fara tíu til þess sem reynist vera á ákveðnum
aldri. (8)
17. Hross, varla fugl og þó. (9)
19. Æfðar, að vísu. (7)
23. Bara til líkra. (6)
24. Umturni nágrenni. (8)
27. Aldin vinsælla fugla í Japan? (8)
29. Kallinn sem ruglar um mannvonsku. (10)
31. Löpp með ullarhnoðra sýnir okkur plöntu. (7)
33. Eir, skilin, verður aftur einhvern veginn að
konu. (9)
34. Sjá Kremlarbúa detta og slasa sig einhvern
veginn. (10)
LÓÐRÉTT
1. Lækna með hugarafli heimili í höfði? (7)
2. Er Kristur ei fyrir hæverska á sinn hátt. (9)
3. Málmur með lykt. (6)
4. Í maí setjum við frú í skóla til að læra um
plöntuhluta. (10)
5. Þær sem loka sári eru fullar af ranghug-
myndum. (9)
7. Sigrar spil náttúrufyrirbæri. (7)
8. Dagsljóri birtir okkur tregan. (5)
13. Á tíma og með hálfvegis yndi verður til kapp.
(8)
14. Klettar úr eðalmálmi sem gott er fá. (10)
16. Sár yfir sverði. (6)
18. Möguleiki hjá því sem er ekki grand. (6)
20. Ekki flókinn drykkur. (9)
21. Plana einhvern veginn með hættulegu efni. (6)
22. Ég lerka rass minn aftur við að rekast á ílát.
(10)
25. Byrjaði kona að finna blóm. (8)
26. Hefur leppurinn aukaskammtinn. (6)
28. Er ellin keipótt? (6)
30. Fæ bæ frá granna. (5)
32. Af regni er hægt að fá fréttir. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausninni í um-
slagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum 2,
110 Reykjavík. Frestur til að skila
úrlausn krossgátu 31. október renn-
ur út næsta föstudag. Nafn vinn-
ingshafans birtist laugardaginn 7. nóvember.
Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinnings-
hafi krossgátunnar 24. október sl. er Sigrún Sig-
hvatsdóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina Morðið á
ferjunni eftir Sjöwall & Wahlöö. Forlagið gefur út.
Krossgátuverðlaun
Margar frægustu viðureignir skáksög-
unnar tengjast seinkaðri komu keppenda
að skákborðinu. Alþjóðaskáksambandið
hefur girt fyrir slíkt háttalag. Nú eiga allir
að sitja við borðið þegar umferð hefst.
Sértu of seinn, þá tapar þú góurinn, er hin
nýja dagskipun FIDE og hefur tekið gildi á
Evrópumóti landsliða í Novi Sad. And-
stæðingur Dags Arngrímssonar úr 1. um-
ferð, Tékkinn Viktor Laznicka, var fimm
sekúndum of seinn þegar hann mætti til
leiks í næstu umferð og var þegar í stað
dæmt tap. Annar möguleiki til að tapa án
baráttu birtist í viðureign Búlgara og Eng-
lendinga í 3. umferð. Þegar allir Búg-
ararnir voru sestir eins og reglur gera ráð
fyrir hringdi farsími 3. borðs mannsins
Delchev. Fremur vandræðaleg uppákoma
og félagar hans í liðinu, Toplaov og Chep-
arinov, vissu greinilega ekki hvort þeir
áttu að hlæja eða gráta, ef marka má
myndband af vefsíðu mótsins. En Chep-
arinov var áreiðanlega ekki skemmt þegar
hann mætti áðurnefndum Viktor Laz-
nicka í 6. umferð:
Cheparinov – Laznicka
Sikileyjarvörn
1.e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6
5. Rc3 a6 6. Rxc6 bxc6 7. e5 Dc7 8. Bf4 f5
9. g4 Rh6 10. gxf5 Rxf5 11. Df3 Bb4 12. Bd3
O-O 13. Hg1 Bb7 14. O-O-O Bxc3 15. bxc3
c5 16. Dg4 Hf7 17. Bxf5 exf5 18. Dh5 Dc6
19. Hd3 Da4 20. Dh6 Dc6 21. Hd6 De4 22.
e6 dxe6 23. Hxe6 Dc4 24. Be5
( Sjá stöðumynd)
( Hvítur hefur uppi hótanir gagnvart
g7. En svartur sá sér leik á borði. )
24. ... Bg2!
25. Hxg2 er nú svarað með 25. ... Df1+
og 26. ... Dxg2
25. Bxg7 Hxg7 26. He7! Dxc3
( Og nú er ekkert meira en jafntefli að
hafa með 27. Hxg7 Dxg7 28. Dxg7 og 29.
Hxg2+ o.s.frv. Cheparinov gáir ekki að
sér.)
27. Hxg2?? Da1+! 28. Kd2 Hd8+
og hvítur gafst upp.
Íslenska liðið liggur þegar þetta er ritað
í 33. sæti með 11½ vinning og 4 stig sem
er heldur lakari frammistaða en vonir
stóðu til en þeir geta lagað stöðu sína í
lokaumferðunum. Ekki er uppörvandi
fyrir þessa pilta að sitja undir stöðugum
árásum frá aðila, nýsloppnum úr eins árs
straffi, sem á vinsælu umræðuhorni
Skákarinnar hefur verið að „þeysa spýju“
yfir börn og unglinga í u.þ.b. tíu ár. Fátt
virðist geta sefað huga þessa einstaklings
nema þá helst er illa gengur og minnir
hann þannig sífellt á púkann á fjósbit-
anum úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar.
Úrslitaskák í fyrstu umferð
Margt bendir til þess að viðureign
Lenku Ptacnikovu og Hallgerðar Helgu
Þorsteinsdóttur í 1. umferð Íslandsmóts
kvenna sem nú stendur og lýkur á
sunnudag reynist úrslitaskák mótsins.
Hallgerður sem á titil að verja mátti játa
sig sigraða eftir langa og stranga við-
ureign en missti niður gjörunnið tafl í
tímahraki. Keppendur í efsta flokki eru
sex talsins og er Lenka sú eina sem hefur
unnið báðar skákir sínar en þær Hall-
gerður, Harpa Ingólfsdóttir, Tinna Krist-
ín Finnbogadóttir og Elsa María Krist-
ínardóttir hafa allar einn vinning.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Krókur á móti bragði
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang