Organistablaðið - 01.07.1971, Blaðsíða 1

Organistablaðið - 01.07.1971, Blaðsíða 1
ORGANISTABLADIÐ 1. TBL. JÚLÍ 1971 4. ÁRG. Það er ekki óeðlilégt að menn spyrji nú, er 4. árgangur Organistablaðsins hefur göngu sína, hvort 3 fyrstu árgangar þess hafi sannað tilverurétt sinn og hvort ástæða sé að leggja í þá vinnu og margskonar amstur, sem óhjákvæmilega fylgir slíkri útgáfu. Við, sem skipum ritnéfnd blaðsins gerum ekki ráð fyrir að öll svör við þessum spurningum verði á einn veg, en þó er það álit okkar að þeir séu í meiribluta, sem telji það einhvers vert að samtök organista eigi sér málgagn og í því trausti hefst þessi árgangur með því, sem nú kemur út, en það er að mestu helgað tíunda norræna kirkjutónlistarmót- inu, sem haldið var á Islandi í júnímánuði 1970. Ritnefndin hefur fyrir skömmu skrifað viðkomandi stjórn- völdum bréf þar sem óskir voru bornar fram um árvissan styrk frá hinu opinbera vegna útkomu blaðsins. An slíkra styrkja væri útgáfa sem þessi óhugsandi með öllu. Það fer því mikið eftir undirtektum þessarar málaleitunar hvort áframhald getur orðið á útkomu blaðsins, þar sem aðrir lekjustofnar þess svo sem áskriftargjöld, auglýsingar og gjafir ná skammt ef ekki kemur annað og meira til. Við skulum vona að hinir opinberu aðilar sýni málinu skilning og leggi þar með sitt að mörkum til að þessi litli visir lognist ekki útaf, heldur megi vaxa og dafna og þannig verða að liði í hinni félagslegu og listrænu baráttu sem Organistafélagið verður að heyja, ef það gerir kröfu til að nokkur taki mark á því. —j , ___ . ' . í n ^ r _ . lUUItulUUUJ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.