Organistablaðið - 01.07.1971, Síða 42
Kirkjutónleikar í Reykjavík.
Það má segja að töluverð gróska
hafi verið í tónleikahaldi á vegum
organista Reykjavikurprófastsdæmis á
fyrra helmingi þessa árs. Frá áramót-
um hafa 6 af 10 organistum prófasts-
dæmisins staðið að níu hljómleikum,
sem sumir hverjir hafa verið endur-
teknir. Þessi gróska hlýtur að verða
hvatning til okkar allra, sem að þess-
um mólum störfum, til að efla þennan
þátt tónlistarinnar í landinu sem mest
og gera auknar kröfur um gæði, hæði
í efnisvali og flutningi.
Dómkirkjan: Ragnar Rjörnsson hélt
orgeltónleika 19. marz og flutti Das
Orgelhiichlein eftir J. S. Bach.
Á föstudaginn langa flutti Dómkór-
inn ásamt einsöngvurunum Vilborgu
Árnadóttur, Borghildi Thors, Árna
Sighvatssyni og Jóni Kjartanssyni
passíu Atla H. Sveinssonar, sem var
frumflutt fyrir ári síðan. Að þessu
sinni var passían flutt í styttri mynd.
Nemendur úr Menntaskólanum í
Reykjavik lósu sálmana undir leiðsögn
Baldvins Halldórssonar.
1. mai héldu kórskóli Dómkirkjunn-
ar og Dómkórinn sameiginlega tón-
leika í Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
Þar söng Dómkórinn lög úr fyrrnefndri
passíu og einnig lög eftir Anton Heiller,
en sameiginlega fluttu kórarnir þjóð-
lög í útsetningu Sigfúsar Einarssonar
• og 2 motettur eftir Ingegneri og
Schiitz, fyrir kór acapella og 3 ein-
söngvara.
Tónleikar þessir voru endurteknir í
Skálholti 2. maí. Stjórnandi kórhljóm-
leikanna beggja var Dómorganistinn
Ragnar Björnsson.
Ilallgrímskirkja: Afmælistónleikar
kirkjukórs Hallgrímskirkju voru haldn-
ir 3. júní, en kórinn er 30 ára um
þessar mundir. Á þessum tónleikum
flutti kórinn ósamt Sólveigu M. Björ-
ling, Baldri Pólmasyni, Rut Ingólfs-
dóttur og Gústaf Jóhannessyni tónlist
eftir S. Kaldalóns, S.K. Hall, Wikander,
Nordkvist og Runbáck, ttndir stjórn
organista kirkjunnar Páls Halldórs-
sonar. f samsæti að tónleikum loknum
kom það fram að þetta var 19 sam-
söngur kórsins á 20 árum. Það er full
óstæða til að færa kórnum ham-
ingjuóskir af þessu tilefni, en ég hygg
að þetta sé einsdæmi í sögu íslenzkra
kirkjukóra hingað til.
Langholtskirkja: Kór Langholts-
kirkju, harnakór Árhæjarskóla ásamt
einsöngvurunum Elísabetu Erlingsdótt-
ur og Ólöfu Harðardóttur, héldu tón-
leika i Langholtskirkju 8. maí. Tón-
leikarnir voru endurteknir daginn eftir
í Háteigskirkju. Nokkrir hljóðfæraleik-
arar aðstoðuðu. Stjórnandi var Jón
Stefánsson, organisti kirkjunnar. Á
efnisskránni voru eftirfarandi verk:
5 Helgisöngvar í úts. R. A. O. 5 mot-
ettur eftir Dietsler, motetta eftir Ka-
minsky, messa eftir Haydn og að lok-
um Sancta Maria og Ave verum eftir
Mozart.
Luugarneskirkja: 29. marz voru org-
eltónleikar í Laugarneskirkju, en þar
lék organisti kirkjunnar Gústaf Jó-
hannesson verk eftir Bach, Hindemith,
Brahms og Reger.
26. maí voru aftur tónleikar í kirkj-
unni, en þar kom kór kirkjunnar fram
ásamt einsöngvurunum Guðfinnu D.
Ólafsdóttur, Sólveigu M. Björling og
Halldóri Vilhelmssyni. Flutt var tón-
list eftir Bach, Buxtehude og Reger.
42 ORGANISTABLAÐIÐ