SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Side 4
4 6. desember 2009
6-10 Vikuspeglar
Svisslendingar banna mínarettur við moskur, Tiger Woods í kröppum
dansi og verstu kynlífslýsingar í bókmenntum.
18 Krakkaskarinn í Óliver
Skyggnst bak við tjöldin á æfingu á jólasýningu Þjóðleikhússins.
26 Vill lyfta umræðunni
Kolbrún Bergþórsdóttir tók hús á Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur kynfræð-
ingi sem er nýbúin að senda frá sér bók.
28 Í frumskóginum á Krakatá
Ragnar Axelsson segir söguna bak við myndina.
34 Að kikna undan afborgunum
Vilhjálmur Bjarnason fasteignasali vill að erlend lán verði gerð ís-
lensk, annars verði mörg þúsund manns gjaldþrota.
36 Bitastætt bréfasafn
Afkomendur Einars H. Kvarans afhenda
þjóðdeild Landsbókasafnsins bréfasafn
hans í næstu viku.
40 Leyndardómar
hollustufæðisins
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir starfar
sem heilsukokkur.
Lesbók
48 Ljóð fyrir sálina
Einar Falur Ingólfsson ræðir við Ingunni Snædal í tilefni af nýrri ljóða-
bók hennar, Komin til að vera, nóttin.
54 Draumfarir, hrunadans og
óútreiknanlegar tilfinningar
Umsagnir um bækur Ara Trausta Guðmundssonar, Steinunnar
Sigurðardóttur og Sindra Freyssonar.
36
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Ingveldur Geirsdóttir,
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
Augnablikið
E
lskulegur, ungur þjónn í svörtu vesti
kemur að borðinu og spyr kurteislega:
Má bjóða þér kaffi?
„Ha! Mér? Ja... Nei. Ertu að gera grín
að mér?“ Ég hvessi á hann augun.
Mig langar satt að segja í gott kaffi eftir matinn
en þori ekki að taka áhættuna á því að þjónninn
ætli að eitra fyrir mig. Eða saki mig um að hafa
klipið sig í rassinn.
„Grínast?“ spyr þjónninn og virðist alveg eins
hafa átt von á spurningunni. „Alls ekki. Ég spurði
bara hvort það mætti bjóða þér kaffi.“
Ég stekk upp úr stólnum, þríf ekki í konuna
mína en hún þekkir augnaráðið þegar ég er ótta-
sleginn og fylgir mér út á hlaupum.
Það skal viðurkennt að ég var ekki í jafnvægi.
Nýbúinn að klappa hraustlega fyrir óvenjulegri en
skemmtilegri þjónustu nokkurra starfsmanna
Leikfélags Akureyrar og Arnrúnar Magnúsdóttur
verts á Friðriki V sem fer með hlutverk eins þjóns-
ins í verkinu Þjónn í súpunni. Ég held að minnsta
kosti að hún hafi verið í hlutverki; geymir tyggjóið
vanalega ekki á gólfinu.
Eða var það ekki lokaklappið? Var ég narraður?
Var leikritinu lokið þegar þjónninn bauð mér
kaffi? Hvernig gat ég verið viss?
Ekki færri en þrjár þjónustustúlkur sökuðu mig
um að hafa klipið sig í afturendann – eða strokið,
það kom svo sem ekki skýrt fram; áreitni var það
að minnsta kosti – meðan á málsverðinum stóð.
Alli Bergdal varla farinn úr salnum; skjóðufullur
kokkur sem angraði gestina með reglulegu milli-
bili og kveikti á endanum í frammi í eldhúsi; af því
að hann missti helv.. glóðina úr sígarettunni á vit-
lausan stað.
Þar sem fyrir nokkrum misserum var opnaður
hinn rómaði veitingastaður Friðrik fimmti í gilinu
á Akureyri segist bróðir Friðriks, Kristján níundi,
hafa tekið völdin. Hann tjáði að minnsta kosti
gestum það í anddyrinu, áður en sest var að borð-
um á fimmtudaginn, að Friðrik hefði gefist upp
eftir að kreppan skall á.
Tvennt skildi Friðrik eftir, eins og Kristján orðar
það; húsið, sem töluvert þurfi að lappa uppá, og
hana Öddu sína, sem sé reyndar ágætis þjónn, það
megi hún eiga, en sé að öðru leyti eiginlega bara
fyrir. „Farðu inn í geymslu og leggstu á gólfið!“
Í súpunni eru sveppir tíndir af ömmu, segir
Kristján. Altso, amma tíndi sveppina. Örugglega
væri hægt að tína sveppi af ömmunni en hann
hefur ekki sérstakan áhuga á því.
Asni var ég að setjast í hornsætið. Gesturinn í
því sæti er líklega alltaf sá sem klípur þjónana í
rassinn. Var að spá í að launa þeim lambið gráa
með því að láta vaða en fékk mig ekki til þess. Sé
þó hálfpartinn eftir því...
En ég má teljast heppinn miðað við suma.
Hvenær lýkur sprellinu og hvenær tekur raun-
veruleikinn við á ný? Ætli Kristjáni hafi verið al-
vara með því að hann ætli að rífa Hótel KEA og
setja þar upp auglýsingaskilti?
skapti@mbl.is
Arnrún Magnúsdóttir vert á Friðriki V, leikur þjón. Hún tyllti sér í gluggann í pásu með fullan munn af tyggjói.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tyggjó í súpunni
Laugardagur 5. og sunnudagur 6. desember
Íslandsmót í atskák 2009 fer fram báða dagana í húsnæði Taflfélags
Reykjavíkur að Faxafeni 12.
Tefldar verða tvær 25 mínútna skákir og verði jafnt skal tefla 7 mín-
útna bráðabana þar til hrein úrslit fást.
Öllum er heimil þátttaka og skal teflt með útsláttarfyrirkomulagi.
Íslandsmótið í atskák
Við mælum með…
Laugardagur 5. desember
Jólamarkaður Smugunnar verður
haldinn á Klapparstíg 28 frá kl 12-
17. Flóamarkaður, myndlist, hand-
unnið jólaskraut, ljósmyndasýning,
jólakort, jólagjafir og margt fleira.
Risamarkaður verður í KR-
heimilinu, Frostaskjóli 35, frá kl. 12-
17. Eins og verið hefur eru öllum vel-
komið að koma með það sem þeim
dettur í hug að selja. Ungmennaráð
Vesturbæjar verður með jólapappír
og jólakort til sölu. Veitingar, kakó-
sala unglinga í Frosta og fleira.
Sunnudagur 6. desember
Friðarsúlan – Imagine Peace tower.
Opin listsmiðja og notaleg sam-
verustund fyrir börn og fullorðna
verður í Viðeyjarstofu frá kl. 14:30-
16:30. Unnið verður út frá friðarsúlu
Yoko Ono og orðunum „hugsa sér
frið“.
! "