SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Síða 10

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Síða 10
10 6. desember 2009 Undanfarin ár hefur lestrarfélagið Krummi veitt íslenskum rithöf- undum viðurkenningar fyrir kyn- lífslýsingar. Verðlaunagripurinn kallast Rauða hrafnsfjöðrin og þótt ekki sé beinlínis verið að verðlauna slæmar kynlífslýsingar er það reyndar oft raunin í ljósi þess hvað rithöfundum eru mis- lagðar hendur á þeim vettvangi. Fyrst voru verðlaunin veitt 2007 og þá sigraði Eiríkur Örn Norðdahl fyrir „Eitur fyrir byrj- endur“, 2008 varð Elísabet Jök- ulsdóttir hlutskörpust fyrir „Heil- ræði lásasmiðsins“ og Hermann Stefánsson hreppti verðlaunin 2008 fyrir „Algleymi“. Tilnefn- ingar eru jafnan birtar á vefnum hrafnaspark.blog.is. Dæmi þaðan: „Högni sarð Dísu með styrk górillunnar, fimi kattarins og slægð höggormsins. Dísa lét bara taka sig. Hún lét einfaldlega ginna sig út í raðfullnægingu eftir raðfullnægingu, stundi bara og gapti eins og hún hefði aldrei upp- lifað annað eins.“ (Úr Eitur fyrir byrjendur eftir Ei- rík Örn Norðdahl.) „Ferð mín í eldhúsið var jafn draumkennd og stinnur líkaminn sem skók sig við hlið mér. Ég strauk fingrunum eftir brjóstunum og niður eftir bakinu þar til hún settist klofvega yfir andlit mitt. Rök skapahárin bærðust við munninn eins og saltlausn í lopa eða andnauð og ég hugsaði að þetta væri dauðinn.“ (Úr Fljótandi heimi eftir Sölva Björn Sigurðsson.) „Lawrence fannst hann finna breytingu á henni þegar þau komu heim á hótel. Hann fann hana þeg- ar þau voru komin upp í og hann tók utan um hana og strauk mjó- an hálsinn, axlirnar og brjóstin. Þá var aftur farið að rigna.“ (Úr Aldingarði Ólafs Jóhanns Ólafssonar.) Rauða hrafnsfjöðrin Eiríkur Örn með hrafnsfjöðrina. R ithöfundar eru eins misjafnir og þeir eru margir og þeim gengur misvel að túlka til- finningar og binda í orð. Mestur virðist vandi þeirra þó vera þegar kemur að hisp- ursmálum og ræður sjálfsagt sitthvað eins og inn- byggð (lærð) blygðunarsemi. Hvað sem því líður hafa ýmsir orðið til þess í gegnum tíðina að verðlauna sér- staklega álappalegar kynlífslýsingar í skáldverkum og komst í heimspressuna fyrir stuttu þegar enska bók- menntatímaritið Literary Review birti tilnefningar sínar. Literary Review hefur veitt þessi verðlaun, sem mætti kalla skammarverðlaun, frá 1998 og sumir handhafar þeirra hafa verið rithöfundar í fremstu röð, til að mynda John Updike, Norman Mailer, Tom Wolfe og Sebastian Faulks, en aðrir minni spámenn eins og gengur. Færri konur hafa reyndar komist á listann – hugsanlega vegna þess að þeim er betur lag- ið að skrifa um kynlíf eða þá að þær eru ekki eins uppteknar af því. Á tilnefningalistann komust eftirfarandi bækur: John Banville fyrir „The Infinities, Nick Cave fyrir „The Death of Bunny Munro“, Jonathan Littell fyrir „The Kindly Ones“, Richard Milward fyrir „Ten Stor- ey Love Song“, Sanjida O’Connell fyrir „The Naked Name of Love“, Amos Oz fyrir „Rhyming Life and Death“, Anthony Quinn fyrir „The Rescue Man“, Philip Roth fyrir „The Humbling“, Paul Theroux fyrir „A Dead Hand“ og Simon Van Booy fyrir „Love Beg- ins in Winter“. Sumar lýsingarnar eru þess eðlis að ekki er hægt að birta þær hér og þá af tillitssemi við hugsanlega les- endur en ekki af blygðunarsemi, en dæmi eru um notkun á sjávarsamlíkingum í tveimur bókanna: „Hún faðmar hann þétt að sér og þrýstir líkama sínum að honum svo indælir seglbátar venda fram og aftur yfir úthaf baksins. Með fingurgómunum rekur hún hvítfyssandi öldur yfir húð hans … Því hærra sem unaðsöldur hennar rísa því meira svellur honum móður og því meiri gleði hefur hann af því að fresta eigin sælu þar til hálfkæfðar stunur hennar losna úr læðingi – þar til flóðbylgjan ber hana með sér eins og pappírsbát yfir grynningarnar.“ (Amos Oz ) „Hann var á floti í dimmgrænum sjó, öldurnar brotnuðu á honum, aðeins örfá sundtök að breiðri ströndinni … Hún stundi mjúklega þegar hann smeygði sér inn í hana; í birtunni frá eldinum stækk- uðu augu hennar og geisluðu og hann sá í djúp þeirra líkt og hann horfði í grænt grunnsævi þar sem öldur gæla við steina og bein. Og líkt og flóðbylgja fann hann hvernig unaður og alger sorg flæddu yfir hann.“ (Sanjida O’Connell) Dæmi út öllum tilnefndu bókunum má finna á vef- setri Literary Review, literaryreview.co.uk, en þar er líka hægt að lesa kafla úr sigurbókunum í gegnum ár- in þar á meðal þessi perla eftir Tom Wolfe: „… fingurnir leituðu undir nærbuxnateygjuna stuna stuna stuna stuna stuna heyrðist í Hoyt á meðan fingurnir skriðu skriðu skriðu skriðu og struku struku struku struku þar til þeir voru fáeinum tommum frá jaðri skapahára hennar – Hvað er að tarna! – nærbuxur hennar voru svo blautar niður … nú voru fingurnir komnir að ytri mörkum skapahára hennar og myndu fljótlega sökkva í raka óreiðuna sem beið einmitt … þarþar.“ Svo fór á endanum að bókin The Kindly Ones eftir bandaríska rithöfundinn John Littell hreppti „heið- urinn“ og þá aðallega fyrir þessa setningu: „Ég fékk fullnægingu skyndilega, kippur sem tæmdi huga minn eins og skeið hefði skafið innan úr linsoðnu eggi.“ Engum sögum fer af því hvernig Littell tók þessari viðurkenningu og ekki fer spurnum af því hvað við- komandi rithöfundum fannst um tiltækið, en þó barst yfirlýsing frá Caniongate, útgefanda Nicks Caves um það að hann væri mjög ánægður með tilnefninguna, enda rími hún mjög vel við innræti sögupersónunnar, þ.e. hann hafi verið að lýsa frumstæðri karlrembu með kynlífsþráhyggju. Svo sem gott og blessað en hefði ekki mátt lýsa athöfnum svo ókræsilegs karakt- ers af meira listfengi? Verðlaun fyrir lélegt kynlíf Rithöfundar streða við samfaralýsingar „Öldurnar brotnuðu á honum,“ skrifar Sanjida O’Connell. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vikuspegill Árni Matthíasson arnim@mbl.is Jonathan Littell, sem er sonur rithöfund- arins Roberts Littells, vakti mikla athygli fyrir bókina Les Bienveillantes sem kom út árið 2006, en hún segir frá fyrrverandi liðsforingja í SS sveitum Þjóðverja sem tók þátt í fjöldamorðum á gyðingum í hel- förinni. Bókinni var gríðarvel tekið í Frakklandi og hlaut þar helstu bók- menntaverðlaun. Hún kom út á ensku í byrjun þessa árs undir heitinu The Kindly Ones, og hefur fengið misjafna dóma; henni hefur verið hampað sem meist- araverki og hún löstuð fyrir tilgangs- lausan hrylling og tilgerð. Meistaraverk eða hryllingur?                  

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.