SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Page 18
18 6. desember 2009
Þ
að ríkir mikil eftirvænting og kátína meðal krakkaskarans
í Óliver, jólasýningu Þjóðleikhússins, en æfingar standa
yfir í gamla húsinu með ríku söguna við Hverfisgötuna.
Og skemmtilegt fólk er á hverju strái þegar blaðamann
og ljósmyndara ber að garði. Þarna er Bergþór Pálsson
sem lokar útidyrunum varlega á eftir sér, því hann þolir
ekki skellinn. Friðrik Friðriksson og Álfrún Gunnlaugs-
dóttir kveðja í því sem þau heilsa; þau leika ekki í atriðinu sem á að æfa.
En í kaffikróknum er líf og fjör, hópur af krökkum í tölvuleik og í sóf-
anum sitja Þórunn Lárusdóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Valur Freyr Ein-
arsson, Edda Arnljótsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Örn Árnason.
Blaðamaður tyllir sér og hlustar á fjörugar umræður um Icesave og
mæðrastyrksnefnd, vinsældatónlist og tónlist á jaðrinum, leikarapartíin í
gamla daga þegar lesið var úr bókum og þulin ljóð og svo segir Örn frá
kynnum sínum af þýðandanum Helga Hálfdanarsyni, sem birtist allt í einu
ljóslifandi, í miklu stærri búk. Og hann flytur af innlifun það sem Helgi
sagði hina fullkomnu hendingu: „Þröstur minn góður! það er stúlkan
mín.“
Helgi var hlédrægur maður. Þegar flutt var hátíðardagskrá í Þjóðleikhús-
inu á 75 ára afmæli hans, þá sat hann á aftasta bekk og yst í sætaröðinni.
„Það mátti ekki beina ljósinu að honum,“ segir Örn. „Við stóðum á svið-
inu og hneigðum okkur, en svo gekk Stefán Baldursson leikhússtjóri fram
á sviðið með blómvönd og ætlaði að ávarpa Helga. En ekki tók lengri tíma
en það fyrir Helga að láta sig hverfa úr salnum.“
Örn hlær sínum hlýlega hlátri.
Sagan er sínálæg í húsinu, þó ekki væri nema fyrir ljósmyndirnar á
veggjunum, í tígulegum römmum. „Ég tók mig til og merkti allar mynd-
irnar,“ segir Örn, því faðir hans Árni Tryggvason leikari og trillukarl
þekkti bæði leikarana og rullurnar. Ef ekki er gætt að sögunni, þá flyst
vísdómurinn ekki á milli kynslóða.
Fjórum kaffibollum eftir komuna í leikhúsið, þar sem krakkar hlaupa
reglulega inn á kaffistofuna og út aftur, þá kveður blaðamaður. Hann náði
aldrei að komast í salinn til að fylgjast með æfingunni, því samræðurnar
voru svo skemmtilegar, en var sem betur fer með Kristin Ingvarsson ljós-
myndara með sér. Á útleið bregður Vigdísi Hrefnu Pálsdóttur fyrir í fal-
legum grænum kjól. Svo tekur Lindargatan við.
Krakkagengi
í leikhúsinu
Bak við tjöldin
Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Myndir: Kristinn Ingvarsson kristinn@mbl.is