SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Qupperneq 21

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Qupperneq 21
6. desember 2009 21 „... stóri sig- urinn var að koma aftur á fót knattspyrnuliði, fá 40 til 50 stráka, ný- komna úr grenjunum á Hverfisgötu, úr harðri neyslu vímu- efna, til að mæta á æf- ingar, spila leiki, halda hópinn í rút- unni, borða og grilla saman.“ náttúrunnar og Bíódaga með Friðriki Þór. En í heimildarmyndum, ekki síst um þetta efni, verða ýmsar óvæntar uppákomur á vegi manns.“ Enn hlæja báðir. „Þá er maður ekki beinlínis að semja, því heim- ildirnar fara sína leið. Ég mætti stundum og fylgd- ist með leikjunum, en fékk þá Bjarna Grímsson, Árna Benediktsson og Ara Matthíasson til að halda þeim heimildum til haga.“ – En þú klæddist ekki stuttbuxum? „Nei, mér stóð það ekki til boða,“ segir hann og hlær. „Mínum knattspyrnuferli lauk fyrir löngu. Ég held mig við sundlaugarnar. En ég sá strax kjarnann í efninu og það var ýmislegt sem ég vissi að myndi gera sig í mynd, eins og æðruleys- isbænin. Þannig að mín fingraför eru á knatt- spyrnunni upp að vissu marki. En það sem vakti áhuga minn voru mennirnir. Við Einar vorum málkunnugir, en ég þekki Eyþór Frímannsson betur, hina aðalpersónuna. Svo tók ég viðtal við fleiri og hefði getað lengt myndina; efnið var ótæmandi. En þegar handrit er skrifað verður að halda sig við aðalatriðið og saga Einars Pálma tók yfirhöndina, enda var hann leiðtoginn í liðinu. Eins og Billy Preston sagði: „That’s the way God planned it.“ Það var eins og aðrir tækju leikstjórn- ina yfir.“ „Já-á,“ segir Einar Pálmi. Enn hlær hann. Létt yfir norðanmönnum. Og Einurum. Haldið út í óvissuna „Aðeins brotabrot af samtölunum við Einar og Ey- þór komst í myndina,“ segir Einar Már. „En Frið- rik Þór kenndi mér að taka í burtu það sem er gott og manni þykir vænt um, ef það er nauðsynlegt til að styrkja heildina. Það má segja að myndin hafi skrifað sig sjálf. Þetta er svolítið skylt skáldsögu að því leyti; maður leggur af stað, veit hvert förinni er heitið, en villist eða sér skemmtilegri leiðir – og heldur út í óvissuna.“ – Myndin stendur undir nafni. „Fótboltinn er táknrænn fyrir þessa baráttu,“ segir Einar Már. „Fyrirfram er staðan oft vonlaus, en þó er alltaf þessi stórkostlega von. Það er þemað í ljóðabókinni Ég stytti mér leið framhjá dauð- anum, að mönnum verður fyrst ljóst hvað lífið er stórkostlegt þegar þeir hafa klúðrað því. Þá rennur upp fyrir þeim ljós. Það er sigur í tapleik.“ – Þetta er líka innblástur fyrir þjóðina? „Já, svona er staðan í dag. Við getum sigrað í þessum tapleik. Við ræddum það raunar lengi, ég og nafni, þegar ég tók viðtölin skömmu eftir hrun, hverjar væru hliðstæður þjóðfélagsins og áfeng- isneyslunnar; þessar hliðstæður sem birtast í stjórnleysi alkóhólismans og græðgisvæðingu samfélagsins. Og líka í því hvernig stjórnvöld, sem lenda í varnarstöðu, grípa til skýringa sem minna á skýringar alkóhólistans.“ „Við vorum með tvö dæmi um risafyllirí fyrir framan okkur þegar við unnum myndina, annars- vegar það sem myndin fjallar um og svo þjóðina í heild sinni,“ segir Einar Pálmi. – Og þú hefur hrópað inn á völlinn, eins og Ein- ar Pálmi gerði í myndinni! „Á vissan hátt,“ segir Einar Már. „Nú veit ég ekki hvort ég var bakvörður eða í hvaða stöðu ég var. En Hvítbókin ber með sér, að ég nýti mér kerfið sem við notum til að sigrast á sjúkdómnum, til að takast á við mein samfélagsins. Það að hafa fengið innsýn í veröld alkóhólismans hefur dýpk- að skilning minn á þjóðfélaginu. Þó að ég viti það líka, að alkóhólismi á sér ekki nema að takmörk- uðu leyti félagslegar skýringar, því sjálfur sjúk- dómurinn verður til í huganum og ef hann er ekki þar fyrir, þá þróast hann. Það veit enginn hvort hann fæðist alkóhólisti eða verður það, en þegar maður er orðinn alkóhólisti skiptir það engu máli. Í bankahruninu kenndi hver öðrum um og þjóðfé- lagið varð meðvirkt að finna skýringar, sem liggja í félagslega veruleikanum, eins og að hafa átt erfiða æsku...“ „... og verið lokaður inni í kústaskáp sex ára,“ skýtur Einar Pálmi inn í. „Þegar tilraunir er gerðar á öpum og hundum, þá laðast ákveðinn hópur að áfenginu, en það hef- ur ekkert með misnotkun að gera, þannig að slíkar skýringar eru oft lítið haldreipi,“ segir Einar Már. – Hvað fannst liðinu um myndina? „Strákarnir voru ánægðir,“ segir Einar Már. „Enda stóð aldrei til að sækja skýringar eða afsak- anir, þetta er ekkert öðrum að kenna. Þetta eru stoltir menn sem hafa frá miklu að segja, mjög klárir og skemmtilegir. Og þetta fall sem er í myndinni gerir hana enn sterkari. Kona sem séð hafði myndina, og á ekki í neinum vandræðum með áfengi, sagði við mig að nú horfði hún allt öðrum augum á útigangsmenn. Hún hefði verið full af fordómum, þetta væri fólk sem kæmi henni ekki við, en nú hugsaði hún með sér að það ætti sér sögu, væri menntað og ætti börn. Í kjarnann er þetta sama sagan og ég segi í Englum alheimsins og Rimlum hugans. Nema þetta er heimildarmynd og fólk getur séð það í sjóndepli, til dæmis hvað Einar í báðum þessum hlutverkum, hefur mikið að gefa.“ „Þetta er rússíbanasyndróm,“ segir Einar Pálmi. – Hvernig líður þér í dag? „Ég hef það fínt,“ svarar hann. „Hvernig viltu að ég svari þessu? Ég er bara frjáls og ánægður ein- staklingur, rek mitt eigið fyrirtæki, borga mína skatta og skyldur.“ – Það er nú meira en flest fyrirtæki! „Já, ég er eftirsóttur, hef engan tíma til þess að sitja í viðtölum,“ segir hann og hlær. „Myndin eykur hróður hans,“ segir Einar Már. „Annaðhvort það eða ég fæ aldrei kúnna aftur,“ svarar Einar Pálmi. „Ég hef engar áhyggjur af því að sú verði raun- in,“ segir Einar Már. „Svo við peppum upp sjálfs- vitund þjóðarinnar, þá sýndum við myndina á kvikmyndahátíð í Danmörku og af því tilefni var efnt til umræðufundar um alkóhólisma. Þá feng- um við spurningar frá áhorfendum um það, hvernig mennirnir þyrðu að vera í mynd og segjast vera alkóhólistar. Það er ennþá bannorð í Evrópu og sama viðhorf heyrði ég um daginn í Frakklandi. En hér á Íslandi þekkjum við orðið svo marga sem hafa fengið þessa hjálp, það finnst einhver í hverri fjölskyldu eða vinahópi. Og þetta er ekkert feimn- ismál lengur. Ég er hvorki marktækari né ómark- tækari, þótt ég hafi farið í áfengismeðferð.“ Stutt þögn. „Ja, frekar marktækari,“ bætir hann við. Þeir hlæja. „Gott hjá þér,“ segir Einar Pálmi. „Þannig að ég er þá mjög marktækur maður, miðað við allar mínar meðferðir!“ „Fæstir sem leita sér hjálpar á þessu sviði upplifa það sem neina hömlun,“ segir Einar Már. „Það er frekar að þeir öðlist fleiri tækifæri. Við viljum gott þjóðfélag, þar sem menn hafa færi á að bæta ráð sitt. Og það má gilda á öllum sviðum mannlífsins!“ „Þess vegna finnst mér mikilvægt að sýna þessa mynd í skólum og á vinnustöðum,“ segir Einar Pálmi. „Eina mottóið sem ég hef í lífinu er að dæma ekki annað fólk. En svo bættist við, þegar útgáfa á því blaði hófst, að ég ætla aldrei í Séð & heyrt.“ GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000 Ein gjöf sem hentar öllum Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður uppá að gefandinn ákveði upphæðina og viðtakandinn velji gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans. N B Ih f. (L an d sb an ki nn ), kt .4 71 0 0 8 -0 2 8 0 . E N N E M M /S ÍA /N M 39 89 1 PI PA R\ TB W A • SÍ A • 9 23 69 Upplýst umræða um nýtt skattafrumvarp og áhrif þess á atvinnulífið Í tilefni af nýju skattafrumvarpi býður Deloitte til opins upplýsingafundar um frumvarpið, miðvikudaginn 9. desember kl. 16.00–17.30 á 20. hæð í Turninum við Smáratorg. Fundurinn er öllum opinn og enginn aðgangseyrir. Heitt kaffi verður á könnunni. www.deloitte.is Skatta- og lögfræðisvið Deloitte

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.